Heimsendir

Heimsendir

By Stefán Þór ÞorgeirssonSociety & CultureHistory
Download on the App Store

Heimsendir episodes

  • #104 Yukio Mishima II (OPINN ÞÁTTUR)

    Annar þáttur um japanska rithöfundinn og byltingarsinnann Yukio Mishima. Í þessum þætti fjöllum við um seinni hluta lífs hans, þar sem hann varð pólitískari og jafnvel herskárri. Við fjöllum um stærsta ritverk hans, Sjó frjóseminnar, og endalok lífsins á annarri hæð í herstöð í Tokyo.

    Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir heldra fólk. Þar er allt efni Heimsendis á verði kaffibolla!

    43 min
  • #103 Lífið í Sapporo - 2 vikna sonur og 2 eldri konur

    Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendir

    Allt sem þú þarft að vita um líf mitt í Norður Japan. Í þættinum fjalla ég um son minn so far, japönsk nöfn á jólatertum, núðluauglýsingar, muninn á Íslandi og Írlandi, einmanaleika og samfélagið í Sapporo.

    10 min
  • #102 Yukio Mishima I (OPINN ÞÁTTUR)

    Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir fullan aðgang að öllu efni Heimsendis.

    Fyrsti þáttur um rithöfundinn og byltingarsinnann Yukio Mishima. Í þessum þætti fjöllum við um uppvöxt Mishima og innreið í japanskt menningarlíf. Við tökum fyrir fyrstu skáldsögurnar, fyrirsætustörf og leiklist ásamt hugmyndafræðinni sem mótaði einn þekktasta rithöfund Japans.

    34 min
  • #101 Næsta stórveldi Asíu

    Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendir

    Þessi er RISASTÓR. Keppendur eru Japan, Kína, Indónesía og Indland. Keppnisgreinar eru efnahagur, hernaður og sjálfbærni. Í þessum þætti leitum við svars við spurningunni: Hvert er næsta stórveldi Asíu. Heimurinn er að breytast og næsta stórveldi Asíu mun hafa áhrif um allan heim - bein áhrif í gegnum stjórnmál, viðskipti og hernað, óbein áhrif í gegnum menningu og samskipti. Leikarnir hefjast!

    8 min
  • #100 Sonur (OPINN ÞÁTTUR)

    Þátturinn er í opinni dagskrá í boði Bíó Paradís. Ég minni þó á Patreon fyrir fólk sem vill styðja við framleiðsluna.

    Ég er faðir - Faðir Stefán. Á feðradaginn 2023 fæddist mér sonur. Í þessum þætti fjalla ég um meðgönguna og fæðinguna þó ég eigi sjálfur aðeins um 5% heiðursins, Sherine er hetjan. En ég var á hliðarlínunni og fjalla hér um þá upplifun. Halló heimur!

    42 min
  • #99 Hrekkjavakan sem kostaði 159 ungmenni lífið (ÓKEYPIS)

    Árið 2022 átti sér stað stórslys í Itaewon hverfinu í höfuðborg Suður Kóreu. Hvernig getur svonalagað gerst í einu þróaðasta landi heims og hvar liggur ábyrgðin? Nú þegar ár er liðið frá hörmungunum er tækifæri til að líta til baka og skoða troðninginn á hrekkjavökunni í Itaewon. 

    Þátturinn er í boði Bíó Paradís en þér er einnig velkomið að koma í hlýtt faðmlag Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. 

    29 min
  • #98 Sjálfshjálparþáttur Heimsendis

    ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON! SJÁUMST ÞAR!

    Stefán Þór, Heimsendir CEO, tells it all. Hér förum við á dýptina og ræðum alla nauðsynlega sjálfshjálp á heimsendatímum - samfélagsmiðlar, mataræði, áfengi og partý, föstur, Wim Hof, hlaupin, svefn og fleira. Podcastlegasti þáttur Heimsendis til þessa, mögulega.

    7 min
  • #97 Laxeldi á Íslandi (ÓKEYPIS)

    ÞÁTTURINN ER Í OPINNI DAGSKRÁ Í BOÐI ÞEIRRA SEM HAFA SKRÁÐ SIG Á PATREON. SJÁUMST ÞAR!

    Á síðasta áratug hefur laxeldi stóraukist á Íslandi, sérstaklega sjókvíaeldi. Eldisfyrirtækin tala fyrir öruggri og umhverfisvænni framleiðslu en þegar þúsundir kynþroska eldislaxa hefja göngur í helstu laxveiðiár landsins er eðlilegt að efasemdir vakni. Í þessum þætti fjalla ég um sögu og stöðu laxeldis á Íslandi, vandamálin og mögulegar lausnir.

    56 min
  • #96 Heimsókn til Tokyo og símtal til Íslands

    ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í HEILD SINNI Á PATREON!

    Vinnuferð til Tokyo, AKA. Sin City, Sódóma og Gómorra. Ég gekk mikið og vann yfir mig en það er eins og það er. Í þættinum fjalla ég líka um lífið í Japan almennt - Búddhíska brennu, náttúrulífsþætti, langlífi í Okinawa og fleira. Loks heyrum við símtal til Íslands við góðvin þáttarins, Almar Blær Sigurjónsson. 

    7 min
  • #95 Sértrúarsöfnuðurinn Unification Church

    ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON! ÞÚ GETUR PRÓFAÐ FRÍTT Í 7 DAGA!

    Taka tvö. Þessi er góður þó röddin sé rám. Þriðjungur kóreubúa er kristinn en aðeins færri aðhyllast trú kennda við Sameiningarkirkjuna (e. Unification Church) sem þó er öflug í alþjóðlegu samhengi. Í þessum þætti fjalla ég um herra Moon, stofnanda kirkjunnar, og svokallaða Moonista sem fylgja honum í einu og öllu. Ég fjalla um samband kirkjunnar við Japan og hvernig það tengist morðinu á fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Shinzo Abe.

    Sjáumst á Patreon, án gríns.

    8 min

About Heimsendir

From the publisher's feed

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

More shows like Heimsendir

声动早咖啡 by 声动活泼

声动早咖啡

305 Listeners