
Sign up to save your podcasts
Or


I'm still on a boat. Í þætti dagsins fjalla ég um líf mitt um borð á ævintýraskipinu National Geographic Resolution. Hvernig er týpískur dagur um borð? Er ég þreyttur og ef svo er, hvar? Hvað er það erfiðasta við starfið? En það skemmtilegasta? Þessum spurningum og fleirum verður svarað í þættinum.
Þessi þáttur er ókeypis en... Í GUÐANNA BÆNUM KOMIÐ Á PATREON!
I'm on a boat. Ég bý á ævintýraskipinu National Geographic Resolution og verð þar næstu vikurnar. Við erum að sigla um suðvestur Japan og komum við á stöðum á borð við Naoshima, Ehime, Hiroshima, Nagasaki, Yakushima, Busan (S-Kórea), Hagi og Kanazawa. Í þessum þætti fjalla ég um lífið um borð - hvaða stöðu ég gegni og hvaða skyldum ég þarf að sinna, hvenær ég vakna og hvenær ég sef (ekki oft).
ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON. SJÁUMST ÞAR!
Árið er 1942 og japanska keisaraveldið er á hápunkti ferilsins - það nær alla leið frá Kamchatka skaga í norðri til Ástralíu í suðri. Það inniheldur stærstan hluta Austur og Suðaustur Asíu og stefnir á heimsyfirráð. En Bandaríkin eru komin inn í stríðið og þau ætla ekki að gefast upp. Í þessum þætti fjalla ég um orrustuna um Midway og endalok japanska keisaraveldisins.
ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON. SJÁUMST ÞAR!
Í þessum þætti tökum við fyrir árin 1940-1942 sem marka upphaf Kyrrahafsstríðsins og mestu útþenslu japanska keisaradæmisins. Við skoðum árásina á Perluhöfn, ræðuna hans Roosevelt, olíuleit Japana og ástæður þess að Japan fór í stríð við Holland, Bretland og Bandaríkin.
Fyrsti þáttur í nýrri seríu um seinni heimstyrjöldina í Japan. Við byrjum á seinni hluta 19. aldar við Meiji endurreisnina og þræðum japanska sögu í gegnum nútíma- og iðnvæðingu, uppbyggingu hers og þjóðar. Sérstaklega verður tímabilið 1930-1939 tekið fyrir enda markar það upphaf seinni heimstyrjaldar í Japan og hefur óafturkræf áhrif á söguna.
Kæri hlustandi, rífðu þig í gang og hentu þér á Patreon. Næstu tveir heimsstyrjaldarþættirnir verða í lokaðri dagskrá þar og eina leiðin fyrir þig til að sjá hvernig stríðið endaði er að skrá þig. Mark my words!
ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í FULLRI LENGD Á PATREON. KOM ÞÚ ÞANGAÐ!
Allt að gerast í Japan, nema kannski barneignir. Japönsku þjóðinni fer fækkandi enda fæðingartíðni í lágmarki og innflytjendur enn fáir. Í þessum þætti fjalla ég um þróun fólksfjölda í Japans ásamt því að skoða hvað ríkisstjórnin er að gera til að bregðast við fólksfækkun. Loks fjalla ég um hvernig við Sherine upplifum stuðning frá borg og ríki þar sem við, ólíkt mörgum í Japan, eigum jú von á barni.
Gervigreind, ChatGPT og geópólitík eru umræðuefni dagsins. Ég fjalla almennt um gervigreind og mismunandi tegundir hennar, hættur og áskoranir, og hvort hún muni taka af okkur öll störf. Ég fer líka yfir hvernig gervigreind spilar inn í alþjóðastjórnmál og varnarmál ásamt því að fjalla um soft power vestursins gegn rísandi þjóðum á borð við Rússland og Kína.
Kæri hlustandi, þátturinn er opinn en mikið þætti mér vænt um að sjá þig á Patreon þar sem þú færð fullan aðgang að öllum þáttum og myndbandsþáttum Heimsendis. Sjáumst þar!
ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON. SJÁUMST ÞAR!
Bless bless, kæra Tokyo. Sæl vertu, Sapporo. Í þessum þætti geri ég upp árið í Tokyo og komandi tíma á nýjum stað í Norður Japan. Kostir og gallar stærstu borgar Jarðar, stolt mitt og eftirsjá. Hvað gerði ég vel og hvar hefði ég mátt bæta mig? Svo endum við þáttinn á nokkrum vel völdum; rassabón, Smells like Xi, Like-pandemic og fleira.
Guðni Guðnason er íslendingur búsettur í Japan. Hann rekur skólann The Modern Mistery School sem býður upp á alls konar námskeið í andlegri og líkamlegri iðkun, hugleiðslu og heilun. Yfirlýst markmið skólans er heimsfriður og í þessum þætti ræðum við Guðni markmiðið, vegferð hans til dagsins í dag, vandamál Japans og heimsins, menningarmun og mögulegar lausnir.
Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á Patreon appið! Þar geturðu fengið fullan aðgang að öllu efni Heimsendis fyrir litla $5 á mánuði.
ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í FULLRI LENGD Á PATREON!
Yōkai eru japanskir andar og draugar. Sumir eru góðir, aðrir illir. Í þessum þætti fjalla ég um nokkrar tegundir Yōkai og hvernig ber að verjast þeim. Ég tek líka nýjan dagskrárlið - spurningakeppni vikunnar - ásamt punktum um lífið og tilveruna í Tokyo.
Sjáumst á Patreon!
From the publisher's feed

305 Listeners