Heimsendir

Heimsendir

By Stefán Þór ÞorgeirssonSociety & CultureHistory
Download on the App Store

Heimsendir episodes

  • #74 Lífið á Íslandi

    ÞESSI ÞÁTTUR ER Í ÁSKRIFT. KOMIÐ YFIR Á PATREON!

    Ég er á Íslandi og það er næs. Í þessum þætti fjalla ég um ferðalagið vestur til Íslands og taktbreytinguna sem ég upplifi hér samanborið við Japan. Þetta er eintalsþáttur þar sem ég tala í frjálsu flæði um allt og ekkert, kem aðeins inná sértrúarsöfnuði sem mig langar að taka fyrir nánar í næstu þáttum. Takk fyrir að hlusta og við skulum sjást á Patreon!

    6 min
  • #73 Lífið í Tokyo - Hættuleg dýr, glæpamenn og skrýtnar staðreyndir Japans

    Þessi þáttur er í áskrift. Ég mæli með að hlusta í Patreon appinu! 

    Hver eru hættulegustu dýr Japans? En glæpamenn? Hverjar eru frægustu konur Japans? Skrýtnar auglýsingar, staðreyndir og ríkasta fólkið. Allt þetta og meira til í þætti dagsins þar sem ég fjalla um topp 5 Japans í ýmsum flokkum. Önnur umræðuefni eru baðhúsamenning, hjólreiðar og hlutabréf.

    Kæri hlustandi, árið 2023 ætla ég að stækka Patreon fjölskylduna upp í 50 manns. Viltu vera með? Náðu þá í Patreon appið, finndu Heimsendi og skráðu þig. Það kostar ekki nema 700 kr. á mánuði. Takk fyrir að hlusta!

    7 min
  • #72 Versta flugslys í sögu Japans

    Japan Airlines 123 var versta flugslys í sögu Japans. Bilun kom upp í stórri Boeing þotu félagsins með 524 manns um borð. Í þessum þætti fjalla ég um aðdrög og afleiðingar slyssins sem lifir enn í manna minnum hér í Japan. 

    Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef þú vilt styrja þáttinn OG fá fullan aðgang að öllum þáttum mæli ég með að ná í Patreon appið og gerast áskrifandi. Takk fyrir að hlusta!

    30 min
  • #71 Lífið í Tokyo - Hvað gerist ef maður borðar bara kjöt og ávexti?

    ÞESSI ÞÁTTUR ER Í ÁSKRIFT. Ég mæli með að ná í Patreon appið og hlusta þar, það kostar ekki nema 700 kr. á mánuði!

    Í þessum þætti fjalla ég um mataræði síðustu vikna: svínasteik, epli, nautasteik, lifur, bláber, jógúrt, camembert, kjúklingur, og mikið af eggjum. Hverjir eru kostir þessa mataræðis? Hverjir eru gallarnir? Hvernig eru hægðirnar? Önnur umræðuefni eru stærstu ógnir ársins 2023.

    6 min
  • #70 Músík og módelstörf með Tyler Toic

    Tyler Toic er tónlistarmaður, leikari og fyrirsæta í Tokyo. Við kynntumst þegar við unnum sem lífverðir (eða þvíumlíkt) fyrir Gucci. Í þessum þætti ræðum við líf listamannsins í Japan - tónlist, leiklist og módelstörf. Seinna í þættinum rýnum við hart í félagsleg vandamál Japans og möguleika og tækifæri framtíðar. 

    Kíkið á tylertoic.com fyrir allt sem Tyler hefur uppá að bjóða!

    Kæri hlustandi, ef þú hefur gaman af Heimsendi þá bið ég þig að kíkja á Patreon.com/heimsendir og skoða úrvalið. Þar má nálgast fullan aðgang að öllum þáttum. Takk fyrir að hlusta!

    1 hr 30 min
  • #69 Japanski hermaðurinn sem gafst ekki upp

    Þessi þáttur er í áskrift á Patreon.com/heimsendir - ÉG MÆLI MEÐ AÐ HLUSTA Í PATREON APPINU!

    Hiroo Onoda var japanskur hermaður í seinni heimstyrjöldinni sem barðist á Lubang eyju Filippseyja. Hann er frægastur fyrir heldur síðbúna uppgjöf en hann gafst ekki upp fyrr en árið 1974, þá hafði hann búið í frumskóginum í um 30 ár. Þessi þáttur Heimsendis er ákveðinn söguþáttur sem fjallar um líf Onoda liðsforingja í felum sem og um aðdraganda stríðsins í Austur og Suðaustur Asíu. 

    Kæri hlustandi, sjáumst á Patreon! 

    4 min
  • #68 Japönsk dystópía með Sólbjörtu Sigurðardóttur

    Er Japan dystópía eða útópía? Í þessum þætti ræðum við Sólbjört Sigurðardóttir, dansari og leikaranemi, um upplifun hennar af Japan, leiklistina og listir almennt, og hvort heimsendir sé í nánd. 

    Kæri hlustandi, þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef þú vilt fullan aðgang að öllum þáttum þá mæli ég með að ná í Patreon appið og skrá þig þar.
    Takk fyrir að hlusta!

    1 hr 17 min
  • #67 Frí frá Tokyo - Syðstu eyjar Japans og deilur við Kína

    ÞESSI ÞÁTTUR ER AÐGENGILEGUR Á PATREON!
    Hlekkur: https://www.patreon.com/heimsendir
    Ath. best að hlusta í Patreon appinu.

    Ryukyu-eyjar Japans voru eitt sinn sjálfstætt konungdæmi með verslun við Taiwan og Kína. Nú tilheyra þær Japan og mynda eina mikilvægustu varnarkeðju landsins - fyrstu eyjakeðjuna. Í þessum þætti fjalla ég um sögu eyjanna og mikilvægi. Ég tek fyrir Okinawa, Ishigaki, Yonaguni og Senkaku eyjar sem og deilur við Kína. Önnur efni þáttarins eru Katakana vikunnar, Hljóð vikunnar, móðulaus gleraugu og skortur á ruslatunnum.


    Kæri hlustandi, ef þú vilt styðja hlaðvarpið og hlusta á þáttinn í heild sinni, þá mæli ég með að ná í Patreon appið og finna Heimsendi þar.
    Takk fyrir að hlusta!

    7 min
  • #66 Lífið í Tokyo - Japönsk jól og áramót

    JÓL Í JAPAN! Í þessum þætti fjalla ég um japanskar jóla- og áramótahefðir, matarmenningu (KFC), skreytingar, neysluhyggju og fleira. Önnur umræðuefni þáttarins eru japönsk brúðkaup og líf leikarans í Japan. 

    Þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á patreon.com/heimsendir fyrir fullan aðgang að öllum þáttum. Tilvalin jólagjöf fyrir þig og þau sem þú elskar. Takk fyrir að hlusta og gleðileg jól!

    1 hr 2 min
  • #65 Lífið í Tokyo - Er Japan woke?

    Þessi þáttur er í áskrift. Skráið ykkur á patreon.com/heimsendir fyrir fullan aðgang að öllum þáttum!

    Kvenréttindi, hinsegin og kynsegin fólk, rasismi og menningarnám. Er þriðja stærsta hagkerfi heims eins framarlega í woke-menningu eins og það er í kapítalisma? Það er spurning dagsins.

    7 min

About Heimsendir

From the publisher's feed

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

More shows like Heimsendir

声动早咖啡 by 声动活泼

声动早咖啡

305 Listeners