Heimsendir

Heimsendir

By Stefán Þór ÞorgeirssonSociety & CultureHistory
Download on the App Store

Heimsendir episodes

  • #54 Lífið í Reykjavík með Almari Blæ Sigurjónssyni

    Hver er munurinn á Reykjavík og Tokyo? Túristar og tímaferðalög, mávar í Garðabæ, post-covid leikhús og fleiri umræðuefni prýða þennan þátt með góðvini Heimsendis, Almari Blæ Sigurjónssyni, leikara við Þjóðleikhúsið. 

    Kæri hlustandi, takk fyrir að hlusta! Í haust heldur veislan áfram með Lífið í Tokyo sem og gestaþáttum. Það verða hljóð og katakana, vettvangsferðir og afkimar japanskrar menningar. Fylgist þið með!

    1 hr 17 min
  • #53 Lífið í Tokyo - Frumbyggjar í Japan

    Ainu eru frumbyggjar Japans. Þau numu eyjuna Hokkaido langt á undan japönum og byggðu upp samfélag við Okhotskhaf í sátt og samlyndi við náttúruna. En hvað er Ainu í dag? Af hverju heyrum við svo lítið af þeim? Í þessum þætti fjalla ég um Ainu fólkið og samband þeirra við Japan. Önnur umræðuefni eru áfengi í apótekum og ríkisstjórn sem vill að ungt fólk drekki meira, þúsund tilkynningar á lestarstöðvum og sjónvarp í saununni.

    Kæri hlustandi, ef þig langar að heyra umfjöllun um eitthvað sérstakt efni má endilega senda skilaboð (AKA DM) á Instagram reikninginn heimsendir_podcast!

    52 min
  • #52 Framtíð Japans með Early Saisoku

    Early Saisoku er tónlistarmaður frá Sapporo sem varði stórum hluta ævi sinnar í Tokyo. Þar kynntist hann björtum sem og dekkri hliðum borgarinnar sem vill ekki sofa. Í þessum þætti ræðum við stórborgina og partýlífið, kosti og galla við japanskt samfélag og mögulega framtíð landsins. 

    ENGLISH. Early Saisoku is a musician from Sapporo who spent a big part of his life in Tokyo where he got to know its bright side as well as its darker side. In this episode we discuss the metropolis and its vibrant nightlife, pros and cons of Japanese society and the potential future of Japan. 

    Kæru hlustendur, one love frá Japan. Takk fyrir að hlusta og taka þátt í að halda þessu gangandi. Án ykkar væri ég bara að tala við sjálfan mig, sem ég geri reyndar líka, en það er gaman að vita af ykkur hinum megin við línuna. Mata ne!

    55 min
  • #51 Lífið í Tokyo - Kína, Taiwan og frumraun í japönsku leikhúsi

    Kína og Taiwan, hvað er nú það? Mörg okkar hafa heyrt fréttaflutning síðustu vikna um mögulega innrás Kína í Taiwan, um heimsókn Nancy Pelosi og heræfingar, jafnvel um mögulega þriðju heimsstyrjöldina, en hvar og hvernig byrjaði samband Kína og Taiwan? Af hverju er það samband nú stirrt? Verður stríð eða status quo?
    Í þessum þætti skoðum við sögu Taiwan og samband þess við meginlandið. Önnur umræðuefni eru frumraun þáttastjórnanda í japönsku leikhúsi og litlar körfur í japönskum matvöruverslunum. 

    Kæri hlustandi, takk fyrir að hlusta. Ég minni á Instagram reikninginn heimsendir_podcast fyrir myndir og myndbönd tengd efni þáttanna. Yoroshiku onegai shimasu! 

    55 min
  • #50 Lífið í Tokyo - Mun Mt. Fuji gjósa?

    Mt. Fuji, eða Fuji-san á japönsku, er virkt eldfjall og sömuleiðis hæsti tindur Japans með 3.776m hæð yfir sjávarmáli. Fuji-san er aðeins um 100km frá Tokyo og sumir vísindamenn segja að eldgos geti hafist á næstu árum eða áratugum. Spurningin er: hvað geta íbúar Japans gert og enn fremur hvort maður eigi yfirleitt að undirbúa sig? Er kannski bara betra að slaka á og mæta örlögunum? 
    Í þessum þætti fjalla ég um Fuji-san og síðasta eldgosið þar árið 1707, hvað myndi gerast ef Fuji-san gysi og mögulegar leiðir til að undirbúa sig. Önnur umræðuefni eru fjárhættuspil í Japan, sólarvarnir, flugpöddur og fleira. 

    Kæri hlustandi, fylgdu Heimsendi á Instagram undir heimsendir_podcast og á Facebook undir Heimsendir. 
    Takk fyrir að hlusta og við heyrumst í næsta þætti!

    56 min
  • #49 Tíska og tónlist með David Alejandro Ossorio

    David Alejandro Ossorio er tónlistarmaður og frumkvöðull í fatahönnun. Ég kynntist honum fyrir 10 árum þegar við vorum í skiptinámi í Hokkaido en nú erum við báðir orðnir Tokyobúar. Umræðuefni þáttarins eru tíska og tónlist í Tokyo, háskólanám, japönsk fyrirtæki, partýmenning í Japan og margt fleira. Þetta er fyrsti þáttur Heimsendis á ensku og ég vona innilega að þið njótið vel. 

    David Alejandro Ossorio is a musician and a pioneer of fashion design. We met some 10 years ago when we were exchange students in Hokkaido. Now we have both become Tokyoites. In this episode we discuss fashion and music in Tokyo, university education, Japanese companies, parties in Japan and more. Please enjoy!

    1 hr 1 min
  • #48 Lífið í Tokyo - Morðið á Shinzo Abe

    Shinzo Abe var forsætisráðherra Japans frá 2006-2007 og svo aftur 2012-2020. Hann var meðlimur í Liberal Democratic Party sem er stærsti stjórnmálaflokkur Japans. Þann 8. júlí 2022 var hann myrtur á kosningaviðburði í borginni Nara í vesturhluta Japan. 

    Kæri hlustandi, takk fyrir að hlusta. Mig langar að biðja um lítinn greiða: að taka mynd af þér að hlusta á þáttinn og tagga heimsendir_podcast á Instagram. 
    Arigatou gozaimasu!

    1 hr 5 min
  • #47 Leiklist í Tokyo með Thelmu Rún Heimisdóttur

    Gestur þáttarins er Thelma Rún Heimisdóttir, leikari og framleiðandi í Tokyo. Við ræðum meðal annars leiklistarsenuna í Japan, tækifæri fyrir útlendinga sem og áskoranir þess að búa í stórborg. Lífið er list og borg hinna 37 milljón sála er okkar leiksvið. 

    Kæri hlustandi, einn tiny little greiði: taktu mynd af þér að hlusta á hlaðvarpið og taggaðu heimsendir_podcast á Instagram! 
    Takk fyrir það og takk fyrir að hlusta!

    1 hr 11 min
  • #46 Lífið í Tokyo - Er her í Japan?

    Er her í Japan? Já og nei. Skiptir það einhverju máli? Já, því sumir vilja meina að Austur-Asía sé að sigla ákveðinn ólgusjó þegar kemur að alþjóðasamskiptum. Það er Kína og Taíwan, Suður- og Norður-Kórea, Japan og Rússland og fleiri hlekkir í flókinni tengslakeðju sem einkennir heimshlutann. Önnur umræðuefni þáttarins eru af léttari toga; veiðiferðir í Japan, portúgölsk áhrif í tungumálinu og ramen-menning, svo eitthvað sé nefnt.

    Kæri hlustandi, ef þú hefur gaman af Heimsendi þá máttu endilega segja fólki frá þáttunum. Þannig fáum við fleiri meðlimi í Heimsendafjölskylduna og það er alltaf stemning!
    Obrigado.

    59 min
  • #45 Framtíð hafsins með Ingibjörgu Björgvinsdóttur

    Hafið er mikilvægt, það er bara þannig. Ísland og Japan eiga það sameiginlegt að vera þjóðir tengdar hafinu og auðlindum þess. Gestur þáttarins er Ingibjörg Björgvinsdóttir, doktorsnemi við Tokyo University of Marine Science and Technology. Við ræðum hafrannsóknir í Japan, tækifæri og ógnir, snertifleti landanna tveggja, og almennt um framtíð hafsins. 

    Kæri hlustandi, komdu í Facebook hópinn Heimsendir þar sem þú getur haft áhrif á þættina með þátttöku í skoðanakönnun.
    Takk fyrir að hlusta, ævinlega!

    1 hr 10 min

About Heimsendir

From the publisher's feed

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

More shows like Heimsendir

声动早咖啡 by 声动活泼

声动早咖啡

306 Listeners