Heimsendir

Heimsendir

By Stefán Þór ÞorgeirssonSociety & CultureHistory
Download on the App Store

Heimsendir episodes

  • #34 Rafmagnslaus heimur með Bergi Þór Ingólfssyni

    Árið 2024 verður gríðarstórt sólgos sem veldur alvarlegum segulstormi á Jörðu. Raftæki hætta að virka og samfélag manna fer aftur um árþúsund í þróun. Hvað gerist næst? Í þessum þætti ræðum við Bergur Þór Ingólfsson, leikari og leikstjóri, um rafmagnslausan heim. Þá ræðum við wifi-leysi og hvort það myndi ekki bara gera okkur gott. Önnur þemu eru meðal annars fortíðarþrá, undirbúningur fyrir heimsendi og Ísland einangrað frá restinni af heiminum. 

    Kæri hlustandi, ef þú ert að hlusta á Spotify, nennirðu þá að henda í "follow"? Ef þú ert á Apple Podcasts, nennirðu þá að gefa einkunn og umsögn? Ef þú gerir þetta, þá gætirðu dottið í lukkupottinn og unnið glaðning!

    1 hr 37 min
  • #33 COVID speciale og Japan með Stefáni Þór Þorgeirssyni

    There's always a first time. Podcastari talar við sjálfan sig - frétt til næsta bæjar! Í þessum þætti geri ég upp COVID fyrir fullt og allt, og svo hættum við bara að hugsa um það. Ég fer einnig yfir árið 2022 og hvers má vænta frá TOKYO! 

    Kæri hlustandi, kíktu á hópinn Heimsendir á Facebook þar sem þú getur komið með innlegg í umræðuna og haft áhrif á þættina. Einnig minni ég á heimsendir_podcast á Instagram þangað sem koma geggjaðar teiknaðar myndir af viðmælendum.
    Sayonara.

    49 min
  • #32 Trúarbrögð með Halldóru Geirharðsdóttur

    Jesus is King. Allahu akbar. Namaste. Trúarbrögð eru allt um kring og spila líklega stærra hlutverk í okkar lífi en við höldum. Í þessum þætti ræðum við Halldóra Geirharðsdóttir meðal annars um uppruna trúarbragða, leit að okkar eigin trú, og regluverk og kerfi nútímans. 

    Kæri hlustandi, kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast fyrir hálfteiknaðar myndir af viðmælendum. Svo minni ég á Facebook hópinn: Heimsendir, þar sem þú getur haft áhrif á umræðuefni og viðmælendur þáttanna.
    Slava Ukraini!

    1 hr 20 min
  • #31 Hvernig bregst fólk við heimsendi með Kjartani Darra Kristjánssyni

    24.2.2022 - Rússland ræðst inn í Úkraínu. Í þessum þætti ræðum við Kjartan Darri Kristjánsson, leikari, um stríð og ástæður þess, zombie apocalypse, geimverur, loftsteina og hvernig fólk bregst við svona aðstæðum. Hvort við hjálpum öðrum eða hugsum um okkur sjálf.

    Kæri hlustandi, endilega kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, til að fá listilega unnar myndir af viðmælendum. Einnig minni ég á Facebook hópinn: Heimsendir, þar sem þú getur haft áhrif á umræðuefni og jafnvel viðmælendur þáttanna.

    1 hr 33 min
  • #30 Geimstríð með Arnmundi Ernst Backman

    Stríð í geimnum: Er það Kína gegn Bandaríkjunum, eða mannkynið gegn geimverum? Í þessum þætti skoðum við Arnmundur Ernst Backman, leikari, geimstríð og hvernig það hefur birst í umræðu og skáldskap. Þá ræðum við eðlisfræðipælingar, vísindaskáldskap, hnattræna hlýnun og margt fleira.

    Kæri hlustandi, ef þú ert að lesa þetta þá bið ég þig að fara inná Apple Podcasts og skilja eftir umsögn. Það er mikil hjálp í því! Ef þú ert á Spotify þá væri "follow" líka vel þegið.
    Tack så mycket!

    1 hr 29 min
  • #29 Alheimurinn með Steinunni Arinbjarnardóttur

    Hvað er stærsta umræðuefni í heimi? Svar: Það sem er stærst í heiminum - Alheimurinn sjálfur. Er Alheimurinn endalaus eða er hægt að fara út fyrir endimörkin eins og Bósi ljósár? Í þessum þætti ræðum við Steinunn Arinbjarnardóttir, leikkona, um upphaf og endi Alheimsins, hvað kom áður og hvað kemur á eftir. Ef þig langar að spæla egg á enninu á þér, þá er þessi þáttur fyrir þig!

    Kæri hlustandi, endilega kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, fyrir geggjaðar myndir! Komdu síðan í Facebook hópinn Heimsendir þar sem þú getur haft áhrif á þróun þáttanna.
    Arigatou gozaimasu!

    1 hr 28 min
  • #28 Líkamsrækt og geðsjúkdómar með Steineyju Skúladóttur

    Er pílukast líkamsrækt? Hver er besta æfingin? Hvað ertu að maxa í réttstöðu? Í þessum þætti ræðum við Steiney Skúladóttir um tengls milli líkamsræktar og geðsjúkdóma og hvort geðsjúkdómar séu algengari hérlendis en annars staðar. 

    Kæri hlustandi, keyrðu inná Apple Podcasts og hentu í umsögn og einkunn! Það er mikil hjálp og tekur aðeins mínútu af tíma þínum. That's all, folks!

    1 hr 25 min
  • #27 Meiri kapítalismi með Ásthildi Úu Sigurðardóttur

    Er ekki bara best að kjósa kapítalismann? Eða hvað, þurfum við kannski að endurskoða kerfið? Í þessum þætti ræðum við Ásthildur Úa Sigurðardóttir, leikkona, um kapítalismann í nærtæku samhengi. Hvernig kemur hann fyrir í okkar daglega lífi? Hverjir eru helstu gallarnir og hvernig gætum við breytt því?

    Kæru hlustendur, kíkið á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, og follow-ið! Einnig Facebook hópinn: Heimsendir, þar sem mikil snilld á sér stað. 
    Upp og áfram!

    1 hr 22 min
  • #26 Kapítalisminn með Ólafi Kjarani Árnasyni

    Er kapítalismi rót alls ills? Erum við að sigla inn í heimsendi auðvaldsins? Eða er kapítalisminn kannski besta efnahagsstefnan sem fundist hefur? Ættum við að berjast gegn honum eða með honum? Til þess að leita svara fæ ég til mín Ólaf Kjaran Árnason, ráðgjafa og hagfræðing. Saman skoðum við kerfið í sögulegu samhengi og berum saman við heimsendaspár nútímans.

    Gott fólk, kíkið á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, og skráið yður. Síðan er það Facebook hópurinn: Heimsendir, þar sem þið getið haft áhrif á umræðuefni þáttarins. Takk og bless!

    1 hr 14 min
  • #25 Sítenging með Arnari Dan Kristjánssyni

    Eruð þér límd við skjáinn? Er símtækið besti vinur þinn? Í þessum þætti ræðum við Arnar Dan Kristjánsson, leikari, um sítengingu og skilgreiningu hennar. Einnig ræðum við hreyfingu og kyrrsetu, rækt og stöðnun, samfélagsmiðla og útivist. Þá kíkir Mark Zuckerberg í heimsókn með Meta-bókina sína og boðar heimsendi.

    Kæru hlustendur, kíkið á Instagram reikninginn "heimsendir_podcast"... (smá hræsni kannski miðað við efni þáttarins), og skráið ykkur í Facebook hópinn "Heimsendir". Við skulum nýta samfélagsmiðlana áður en við kollvörpum þeim og sköpum veröld nýja og góða. 

    1 hr 22 min

About Heimsendir

From the publisher's feed

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

More shows like Heimsendir

声动早咖啡 by 声动活泼

声动早咖啡

306 Listeners