
Sign up to save your podcasts
Or


QAnon, Illuminati, Eðlufólkið, Tungllendingin, 9/11, Covid-19, bólusetningar, etc. Allt feik? Í þessum þætti ræðum við Gréta Arnarsdóttir samsæriskenningar og af hverju fólk aðhyllist þær, sérstaklega núna á tímum veirunnar miklu. Síðan skoðum við sveppi, bæði æta og óæta, í matargerð og til hugbreytingar. All things shroom.
Kæra preppnation, kíkið á Instagram og fylgið "heimsendir_podcast" þar sem alls kyns myndir munu fá að líta dagsins ljós. Komið svo í Facebook hópinn Heimsendir þar sem hægt er að hafa áhrif á næstu umræðuefni þáttanna. Takk og bless!
Loftsteinar eru relevant. Af hverju? Jú, vegna þess að þeir eru stærsta ógn mannkynsins. Nýverið kom til dæmis út bíómynd sem fjallar að mestu leyti um loftstein. Síðan er það náttúran og náttúruleysi - ekki getuleysi, það kemur seinna, heldur skortur á tengingu við náttúruna. Þarf að borgarvæða náttúruna eða náttúruvæða borgina?
Til þess að ræða þessa snilld fæ ég til mín góðkunningja þáttarins, Almar Blær Sigurjónsson, leikara við Þjóðleikhúsið.
Kæri hlustandi, takk fyrir 2021! Endilega kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, og hentu í "follow". Síðan máttu segja 1-3 einstaklingum frá þáttunum og láta mig svo vita þegar þú ert búin/n. Þá færðu Kimchi-krukku!
Jó-olin, jó-olin, a-alls staðar. Starkaður Pétursson, AKA. Anthony Stark, mætti í sérstakt jólaspjall þar sem við kryfjum jólin og hefðirnar í kringum þau. Vissulega koma áramótin við sögu og sömuleiðis samanburður við japanskar jóla- og áramótahefðir.
Heimsendir óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!
Fordómar eru stórt umræðuefni, og sérstaklega mikilvægt til umræðu á 21. öldinni. En hvað eru fordómar og hvaðan koma þeir? Hvernig tengjast samskipti inn í heim fordóma? Enn fremur, getur samskiptaleysi leitt til þeirra?
Við Fannar Arnarsson, leikari og fyrrverandi bekkjarbróðir, leitumst við að varpa ljósi á þessar spurningar og fleiri.
Kæri hlustandi, ég minni á að skilja eftir umsögn og gefa einkunn á Apple Podcasts. Einnig að henda í "follow" á Spotify. Síðan vil ég benda á Facebook hópinn Heimsendir sem er snilld.
Full steam ahead!
CRISPR, Gain-of-Function og GMO. Líftækni er ein mikilvægasta grein vísindanna. Hún á sérstaklega vel við á tímum Covid. En hvað er líftækni og að hvaða leiti kemur hún okkur við? Í þessum þætti ræðum við Daníel Takefusa Þórisson, verkfræðimenntaður leikari, ýmiss vandamál og mögulegar lausnir tengdar líftækni. Við tölum einnig um tækniþróun almennt og komum vissulega að góðkunningjum þáttarins; gervigreind og samfélagsmiðlum.
Kæri hlustandi, nú er Heimsendir kominn á Vísi.is í flokknum Útvarp. Þar eru stuttar bitastæðar klippur úr hverjum þætti fyrir þig og þína. Kíktu síðan á Facebook hópinn Heimsendi sem opnar á umræður og vangaveltur tengdar þáttunum.
Grazie mille!
Hvað varð um heimsendi ársins 2012? Hvað myndi gerast ef önnur pláneta rækist á Jörðina? Hver byggði píramídana?
Í þessum þætti ræðum við Davíð Þór Katrínarson, leikari, um heimsendaspár ársins 2012, dagatal Mayanna, Erik von Daniken, Plánetu X og hvað myndi gerast ef við ættum bara 6 mánuði eftir ólifaða.
Kæri hlustandi, endilega hentu í Follow á Spotify og gefðu einkunn og umsögn á Apple Podcasts. Síðan eru allir velkomnir í Facebook hópinn Heimsendir!
Brimfullur þáttur af pælingum! Við Jónas Alfreð Birkisson, leikari, tökum fyrir stóru málin og ræðum meðal annars ADHD greiningar, einangrun og þunglyndi, hversu erfitt það er að vinna heima hjá sér, jákvæðar og neikvæðar hliðar á gervigreindinni og framtíð vinnunnar.
Kæri hlustandi, ég vil biðja þig að gefa þáttunum einkunn á Apple Podcasts, jafnvel skilja eftir umsögn, og henda svo í "Follow" á Spotify. Síðan minni ég á Facebook hópinn Heimsendir þar sem þú getur lagt í ljós skoðun þína á þáttunum.
Arigatou gozaimasu!
Eru draugar til? Hvernig er biðstofa Himnaríkis? En Helvítis? Hreinsunareldur, paranormal investigators, draugaský og latneskar þulur. Við Björk Guðmundsdóttir, leikkona og grínisti, ræðum ýmislegt er viðkemur vofum, afturgöngum og draugum.
Kæri hlustandi,
Nr. 1 - kíktu á Facebook hópinn Heimsendir.
Nr. 2 - hentu í follow á Spotify og/eða einkunn og umsögn á Apple Podcasts.
Merci very bien!
THIS IS BIG. Hnattræn hlýnun er heimsendir sem flestir kannast við. COP26, Greta Thunberg, mataræði og matarsóun, orkuframleiðsla, samgöngur, að versla föt eður ei, og fleira. Við Rakel Ýr Stefánsdóttir, listakona, tæklum þetta stóra mál í þættinum en athugum þó að umræðan er alls ekki tæmandi enda ein stærsta áskorun mannkyns til þessa.
Hlustandi góður, endilega kíktu á Facebook hópinn Heimsendir þar sem þú getur lagt í ljós skoðun þína á þáttunum, komið með hugmyndir að umræðuefnum eða viðmælendum, og verið með í heimsendafjölskyldunni. Takk fyrir að hlusta!
From the publisher's feed

306 Listeners