Heimsendir

Heimsendir

By Stefán Þór ÞorgeirssonSociety & CultureHistory
Download on the App Store

Heimsendir episodes

  • #4 Geimverur með Ellen M. Bæhrenz

    Við vitum að það eru milljarðar stjarna í Vetrarbrautinni. Við vitum að meðal þeirra leynist mikill fjöldi reikistjarna á borð við Jörðina okkar. Ef við göngum út frá því að líkt og á Jörðinni geti líf sprottið upp á öðrum reikistjörnum er ekki úr vegi að segja að það sé nokkuð líklegt að geimverur séu til. En hvar eru þær? 

    Í þessum þætti fæ ég leikkonuna Ellen M. Bæhrenz til liðs við mig til að ræða geimverur. Við spyrjum spurninga á borð við: Hvað er Area 51? Hvernig líta geimverur út? Eru geimverur ský? Hvað ef við erum alein?


    1 hr 21 min
  • #3 Sértrúarsöfnuðir með Tómasi Helga Baldurssyni

    Í þriðja þætti Heimsendis ræðum við Tómas Helgi Baldursson um sértrúarsöfnuði og okkar reynslu af þeim úr daglegu lífi. Við ræðum aðallega um söfnuði í Japan, Bandaríkjunum og á Íslandi. Einnig skoðum við ástæður þess að fólk gengur í slíka söfnuði. 

    Heimsendir er hlaðvarp þar sem tekin eru fyrir alls konar málefni sem eiga það sameiginlegt að geta á einn eða annan hátt leitt til endaloka þessa heims. Umræðurnar eru á léttum en þó heimspekilegum nótum þar sem sköpunargleði og ímyndurnaraflið ráða för. 

    Tekið skal fram að við erum ekki sérfræðingar heldur áhugamenn og munu umræðurnar endurspegla það.

    1 hr 21 min
  • #2 Zombie Apocalypse með Urði Bergsdóttur

    Í þessum þætti ræðum við Urður Bergsdóttir um allt sem viðkemur heimsendi af völdum uppvakninga. Umræðupunktar á borð við rafmagnsleysi, skotvopn vs. handvopn, Kringlan sem griðarstaður, tegundir uppvakninga og fleiri koma við sögu. 

    1 hr 4 min
  • #1 Gervigreind með Nilla

    Í þessum fyrsta þætti Heimsendis ræðum við Níels Thibaud Girerd um gervigreind og hvernig hún mun hafa áhrif á okkur í náinni framtíð. Við leitumst við að svara spurningum á borð við: Hver er munurinn á gervigreind og manneskju? Hver er framtíð vinnunnar? Mun gervigreindin taka yfir?

    Heimsendir er hlaðvarp þar sem tekin eru fyrir alls konar málefni sem eiga það sameiginlegt að geta á einn eða annan hátt leitt til endaloka þessa heims. Umræðurnar eru á léttum en þó heimspekilegum nótum þar sem sköpunargleði og ímyndurnaraflið ráða för. 

    Tekið skal fram að við erum ekki sérfræðingar heldur áhugamenn og munu umræðurnar endurspegla það.

    Upphafs- og endastef: Ísidór Jökull Bjarnason.
    Artwork: Sherine Otomo

    1 hr 2 min

About Heimsendir

From the publisher's feed

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

More shows like Heimsendir

声动早咖啡 by 声动活泼

声动早咖啡

306 Listeners