Heimsendir

Heimsendir

By Stefán Þór ÞorgeirssonSociety & CultureHistory
Download on the App Store

Heimsendir episodes

  • #44 Lífið í Tokyo - Yakuza og japanskt leikhús

    Yakuza er hin japanska mafía og ég hef ekki orðið var við hana áður, fyrr en nú. Svo fór ég í japanskt leikhús og hóf rannsókn mína á því hvernig japanskt leikhús er frábrugðið vestrænu leikhúsi. Önnur umræðuefni þáttarins eru síðan eyjastefna Japans, japanska í bíómyndum, upphífingar bannaðar, og margt fleira.

    Kæri hlustandi, ef þú hefur gaman af Heimsendi máttu endilega segja vinum eða fjölskyldumeðlimum frá þáttunum og jafnvel deila þeim á samfélagsmiðla! 
    Yoroshiku onegai shimasu! 

    1 hr 1 min
  • #43 Lífið í Tokyo - Lífvörður fyrir Gucci

    Hvernig er að vera leikari í Japan? Hvernig verkefni eru í boði? Svarið er: alls konar, þar á meðal verkefni sem lífvörður/lyftuhnappur á Gucci viðburði. Í þessum þætti fjallar Stefán Þór um lífið í Tokyo og hvernig það er að vera íslendingur í stærstu borg heims. Meðal umræðupunkta eru; frægð í Japönsku sjónvarpi, forræðishyggja, lestarhljóð og enska með japönskum hreim.

    Kæri hlustandi, vilt þú sjá mynd af lífverði Gucci? Kíktu þá á Instagram síðuna: heimsendir_podcast og njóttu vel!
    Sayonara.

    48 min
  • #42 Fólksfækkun í Japan með Höskuldi Hrafni Guttormssyni

    30% japana eru 65 ára og eldri. Hvað þýðir það nú? Er Japan rísandi sól eða hnignandi stórveldi? Í þessum þætti ræðum við Höskuldur Hrafn Guttormsson, viðskiptafræðingur í Tokyo, um fólksfækkun í Japan, fortíð þess og framtíð. Við ræðum um menninguna, siði og venjur, og hvernig það er að vera útlendingur í Japan. 

    Kæri hlustandi, komdu með á Instagram reikninginn heimsendir_podcast fyrir myndir og myndbönd frá Japan og víðar! 
    Mata ne. 

    1 hr 7 min
  • #41 Heimsendir er kominn til Japan!

    THIS IS BIG! Heimsendir hefur flutt höfuðstöðvarnar til Tokyo, Japan. Í þessum þætti ræðir Stefán Þór við sjálfan sig um ferðina til Japan (með kött meðferðis), nýja hverfið og íbúðina, og almennt um mannlífið í Tokyo.

    Kæri hlustandi, næstu þættir verða góð blanda af viðtölum við gesti, solo-session um lífið í Tokyo, og mögulega nokkrum handritsþáttum í stíl útvarpsleikhúss (enn í þróun). 
    Ég hlakka til að heyra í ykkur á Facebook hópnum Heimsendir! 
    Arigatou gozaimashita! 

    50 min
  • #40 Bylting með Ragnari Bragasyni

    Bylting og Heimsendir. Hvort kemur á undan og hvort á eftir? Í þessum þætti ræðum við Ragnar Bragason, leikstjóri og höfundur, meðal annars um þáttaseríuna Heimsendir og tengingar við frönsku byltinguna, um svartsýni og bjartsýni nútímans,  kvikmyndagerð, háskólanám og margt fleira. 

    Kæri hlustandi, TILKYNNING: Heimsendir heldur til Japan og þaðan er ýmislegt nýtt í vændum.
    Takk fyrir að hlusta! 

    1 hr 27 min
  • #39 Pólland, Ítalía og heimsendir með Ólafi Ásgeirssyni

    Gestur þáttarins er Ólafur Ásgeirsson, leikari og meðlimur leikhópsins PóliS. Við förum um víðan völl og ræðum meðal annars vinnustaðamenningu, tungumál og heimsenda í skáldskap. Þá snertum við á loftslagsmálum (air-battle), sýndarveruleika og framtíð Íslands.

    Kæri hlustandi, smá tilkynning: fljótlega heldur Heimsendir á vit ævintýranna í Japan og mun halda áfram útsendingum frá höfuðborg hinnar rísandi sólar. Fylgist þið með á samfélagsmiðlum sem og á hlaðvarpsveitum!
    Dziękuję!

    1 hr 14 min
  • #38 Saga mannkyns og líftækni með Ísarri Nikulási Gunnarssyni

    Hvaðan komum við? Hver er munurinn á Homo erectus og Homo neanderthalensis? Hvernig tengist þetta líftækni? Í þessum þætti fæ ég til mín Ísarr Nikulás Gunnarsson sem er líftæknifræðingur og meistaranemi við Cambridge-háskóla. Við byrjum fyrir milljónum ára og þræðum mannkynssöguna, með stórum stökkum þó, til framtíðar. Við skoðum líftækni 21. aldarinnar, tækifæri og ógnir. 

    Kæri hlustandi, kíktu á grammið @heimsendir_podcast fyrir myndir af viðmælendum og fleiru.
    Gleðilega páska!

    1 hr 30 min
  • #37 Kína með Guðbjörgu Ríkey Thoroddsen Hauksdóttur

    Kína er fjölmennasta land heimsins. Það hefur verið miðpunktur mikilla breytinga og uppbyggingar síðustu áratugi. Í þessum þætti skoðum við Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, doktorsnemi, Kína og stöðu þess í alþjóðlegu samhengi. Þá förum við yfir næstu áratugi og skoðum mögulegar áskoranir sem Kína þarf að mæta.

    Kæri hlustandi, kíktu á Instagram reikninginn: heimsendir_podcast, fyrir myndir af viðmælendum! 
    Takk og bless!

    1 hr 5 min
  • #36 Svefn með Árna Beinteini Árnasyni

    Er Matthew Walker mættur í klefann? Nei, ennþá betra: Árni Beinteinn Árnason, leikari með meiru, er mættur til að deila reynslu sinni af svefnvenjum og svefnleysi og öllu þar á milli. Við förum um víðan völl og snertum á magnesíum, japönskum futon-dýnum, rauðgleraugum og sömuleiðis ýmsu alls ótengdu svefni. 

    Kæri hlustandi, Heimsendir er í stöðugri þróun og þú getur tekið þátt í þróuninni á Facebook hópnum Heimsendir. Ég vil heyra í þér hvað þig langar að heyra í næstu þáttum! Allar vangaveltur velkomnar.
    Góða nótt.

    1 hr 23 min
  • #35 Lífið með Hákoni Jóhannessyni

    Hver er munurinn á leik og starfi? Eru áhugamál mikilvæg? Hvað gera salaryman í Japan? Við Hákon Jóhannesson ræðum lífið og tilveruna, nútíð og framtíð, og mikilvægi vinnu og peninga inn í þetta heildarsamhengi. 

    Kæri hlustandi, ég vek athygli á Facebook hópnum Heimsendir þar sem þú getur haft áhrif á efni þáttanna, og Instagram-ið heimsendir_podcast þar sem myndir af viðmælendum birtast í mikilli teiknidýrð. 
    Nos vemos.

    1 hr 23 min

About Heimsendir

From the publisher's feed

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

More shows like Heimsendir

声动早咖啡 by 声动活泼

声动早咖啡

306 Listeners