Hlaðvarp Landsnets

Hlaðvarp Landsnets

By LandsnetBusiness
Download on the App Store

Hlaðvarp Landsnets episodes

  • Unnur Helga, framkvæmdir og flutningskerfi framtíðarinnar
    Það er margt í gangi hjá okkur hjá Landsneti og í nýjasta hlaðvarpsþætti Landsnetshlaðvarpsins fáum við skýra mynd af stöðunni frá Unni Helgu Kristjánsdóttur, forstöðumanni verkefnastjórnunar framkvæmda.
    Unnur fer yfir:
    🏗️ Hvaða framkvæmdir eru í gangi núna
    📍 Hvar þær fara fram og hvers vegna
    📅 Hvenær hægt er að búast við að framkvæmdum ljúki
    📊 Og hvernig verkefnin eru forgangsraðuð með öryggi, afhendingaröryggi og samfélagsþörf að leiðarljósi
    Framkvæmdirnar skipta máli – fyrir orkuskipti, aukið öryggi í raforkukerfinu og framtíðina sem við erum að byggja saman.
    23 min
  • Ef lífið væri leikskóli – væri þá Landsnet staðurinn?
    Hvað gerist þegar sameindalíffræðingur, nútímafræðingur og sagnfræðingur setjast saman við hlaðvarpsmíkrafóninn og ræða orkumál ? Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi fékk þá Hall Þór Halldórsson vefstjóra og Erlingur Fannar Jónsson verkefnastjóra í spjall þar sem óvæntar tengingar, ný sjónarhorn og samtal varð til - ekki missa af þessum þætti af Landsnetshlaðvarpinu.
    41 min
  • Vörumerki, orkufyrirtækin og fólkið sem elskar að tala um það
    Í Landsnetshlaðvarpsþætti dagsins fá Steinunn Þorsteindóttir upplýsingafulltrúi og Einar S. Einarsson, forstöðumaður skrifstofu forstjóra hjá Landsneti, til sín að hljóðnemanum þær Heiðu Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra hjá Orkusölunni og Birnu Lárusdóttur, upplýsingarfulltrúa hjá HS Orku – og saman ræða þau ímynd, traust og þá list að tala um rafmagn með hjartanu.
    44 min
  • Að skapa virði fyrir samfélagið með öruggum og sjálfbærum rekstri
    Sjálfbærni-, árs- og frammistöðuskýrslan okkar fyrir árið 2024 veitir skýra mynd af árangri okkar á árinu. Hún sýnir hvernig við tryggjum traustan raforkuflutning, eflum afhendingaröryggi og vinnum að sjálfbærri framtíð og fengum við hjá Landsnetshlaðvarpinu þær Margréti Guðmundsdóttur verkefnastjóra og Guðnýju Björg Hauksdóttur framkvæmdastjóra í spjall um skýrsluna og allt það áhugaverða sem þar er að finna.
    29 min
  • „Þegar þið haldið ljósunum logandi í hamförum, haldið þið einnig voninni lifandi.“
    Með þessum öflugum orðum lauk Sóley Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur vorfundinum okkar í Hörpu þann 5. mars sl.
    Í framhaldinu settust þær Sóley og Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi fyrir framan hljóðnemann í Landnsetshlaðvarpinu og ræddu saman um þjóðaröryggi, rafmagn, viðbúnað og ábyrgð.
    Hvað merkir það í raun að halda landinu gangandi, sama hvað dynur á?
    25 min
  • Leifur Ingimundur og leiðin til Landsnets
    Leiðin til Landsnets og sánuferðir til Finnlands var eitt af því sem þau Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi og Leifur Ingimundur Runólfsson einn af nýjustu liðsmönnum Landsnets spjölluðu um í þessum Hlaðvarpsþætti.Ekki missa af þessu skemmtilega spjalli – Leifur og og leiðin hans til Landsnets.
    30 min
  • Guðný Björg Hauksdóttir, mannauðsmálin og framtíðar vinnustaðurinn Landsnet
    Guðný Björg Hauksdóttir framkvæmdastjóri mannauðs og umbóta settist við hljóðnemann í Landsnetshlaðvarpinu og ræddi við Steinunni Þorsteinsdóttur um mikilvægi mannauðs í umhverfi eins og okkar sem er á fleygiferð. Hún ræddi m.a. um áskoranir og tækifæri sem eru fram undan og hvernig Landsnet vinnur markvisst að umbótum fyrir betri framtíð. Kíktu á samtalið til að fá dýpri innsýn í mannauðsmálin hjá okkur !
    37 min
  • Úr raforkuverkfræði yfir í upplýsingatækni - Jóhannes Þorleiksson
    Í þessum þætti hittum við Jóhannes Þorleiksson, nýjan framkvæmdastjóra, sem breytti um kúrs þegar hann réð sig ný verið til Landsnets. Jóhannes deilir hér í spjalli við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa áhugaverðum hugmyndum og markmiðum sem allar eiga að leiða að því að koma manni til tunglsins - kannski samt ekki alveg í orðsins fyllstu merkingu en krefjast hugrekkis, vilja og teymisvinnu. Spennið sætisbeltin og hlustið á hlaðvarpið – þetta er þáttur sem þú vilt ekki missa af !
    23 min
  • Fjárfestingar og framtíðin
    Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri og Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi ræddu um fjármál, framkvæmdir og framtíðina í nýjasta þætti Landsnetshlaðvarpsins. Stútfullur þáttur af áhugaverðu efni en Guðlaug hefur farið með Landsneti í gegnum stórar áskoranir á þeim tíma sem hún hefur verið framkvæmdastjóri fjármála og árangurs.
    41 min
  • Holtavörðuheiðarlína 1, hlutverk, leiðir og staðan
    Holtavörðuheiðarlína 1, lína sem liggja mun frá Hvalfirði að nýju tengivirki á Holtavörðuheiði, var umfjöllunarefni Landsnetshlaðvarpsins nú í byrjun október. Daginn sem hlaðvarpið var tekið upp var hálft landið einmitt án rafmagns – en nýja línan hefði að öllum líkindum komið í veg fyrir það.
    Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi, og Kristinn Magnússon, verkefnastjóri línunnar, ræddu línuna, hlutverk hennar og hvar hún er stödd í ferlinu í hlaðvarpsþætti dagsins.
    36 min

About Hlaðvarp Landsnets

From the publisher's feed

Við stjórnum og rekum flutningskerfi raforku á Íslandi. Fylgstu með hlaðvarpinu okkar þar sem við fjöllum reglulega um málefni líðandi stundar í raforkukerfinu.

More shows like Hlaðvarp Landsnets

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners