Hlaðvarp Landsnets

Hlaðvarp Landsnets

By LandsnetBusiness
Download on the App Store

Hlaðvarp Landsnets episodes

  • Elma - Skipulagður og virkur viðskiptavettvangur raforku á Íslandi
    Að skapa betri skilyrði fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, færa orkuviðskipti landsins í samkeppnishæft og skilvirkt umhverfi sem stuðlar að verðmætasköpun og styður orkuöryggi er umfjöllunarefni þáttarins.
    Þau Einars Snorri Einarsson og Steinunn Þorsteinsdóttir fengu Katrínu Olgu Jóhannesdóttur að hljóðnemanum til að ræða framtíðina, Elmu og orkumarkaðinn.
    37 min
  • Er framtíðin fyrirsjáanleg ?
    Þær Svandís Hlín Karlsdóttir framkvæmdarstjóri og Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi tóku fimmtán mínútu spjall um framtíðina og hvað Landsnet er að gera til að þoka okkur nær henni m.a. með virkum raforkumarkaði.
    17 min
  • Orkuskiptin og orkugeymslur
    Gnýr Guðmundsson skólastjóri Orkuskiptaskólans og Magni Pálsson yfirkennari, okkar helstu sérfræðingar í orkuskiptunum á spjalli um þetta mikilvæga málefni. #þátturnúmersjö
    54 min
  • Virkir raforkumarkaðir eru í lykilhlutverki við að ná loftslagsmarkmiðunum
    Við hjá Landsneti vorum að gefa út nýja skýrslu þar sem farið var yfir helstu atriði um hlutverk og ábata af virkum raforkumarkaði Í skýrslunni kemur fram að virkur raforkumarkaður er nauðsynleg forsenda þess að ná fram skilvirkara raforkukerfi og auka þannig þjóðhagslegum ábata, öllum til hagsbóta. Ábati sem mun á endanum nema tugum milljarða árlega. Við fengum þá Jón Skafta Gestsson og Svein Guðlaug Þórhallsson höfunda skýrslunnar að hljóðnemanum til að ræða málið og helstu áskoranir sem settar eru fram í skýrslunni.
    36 min
  • Er framtíðin orkuörugg ?
    Nils Gústavsson framkvæmdastjóri reksturs og eigna mætti Landsnetshlaðvarpið og spjallaði við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa um flutningskerfið, orkuöryggið og leiðina að orkuskiptunum - sem sagt stútfullur þáttur af rafmagnaðri framtíð.
    41 min
  • Sjálfbærni og samfélagsábyrgð
    Við hjá Landsneti höfum sett okkur þá stefnu að vinna markvisst að því að lágmarka neikvæð áhrif sem hljótast af rekstri og uppbyggingu flutningskerfis raforku á umhverfið. Engilráð Ósk Einarsdóttir verkefnastjóri samfélagsábyrgðar og umbóta settist við hljóðnemann í Landsnetshlaðvarpinu og spjallaði við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa um eitt og annað sem snýr að þessum mikilvæga málaflokki sem umhverfis - og sjálfbærnimálin eru hjá Landsneti.
    29 min
  • Verkefnastjóraspjall - nýliðinn og reynsluboltinn
    Áttu einhver tips handa mér ? Kristján Ari Úlfarsson var búinn að vera hjá okkur í mánuð þegar hann settist við hljóðnemann í Landsnetshlaðvarpinu og spurði Daníel Scheving Hallgrímsson um eitt og annað sem viðkemur starfi verkefnastjóra hjá Landsneti.
    40 min
  • "Það þarf heilt þorp til að gera við streng" - sagan af viðgerðinni á Vestmannaeyjastreng 3
    Þann 30. janúar 2023 kom upp bilun á Vestmannaeyjastreng 3, sæstrengnum sem liggur frá Rimakoti og út Eyjar. Í upphafi óraði engan fyrir því að fram undan væri ríflega hálft ár þar til strengurinn væri kominn aftur í rekstur. Okkar fólk var ótrúlega lausnamiðað þegar kom að undirbúningi, viðgerðinni og að halda ljósunum á eyjunni logandi allan tímann. Til að segja okkur söguna af af viðgerðinni fengum við þá Þórarinn Bjarnason fyrirliða reksturs lína og Helga Bogason forstöðumann aðfangastýringar að hljóðnemanum í Landsnetshlaðvarpinu en þeir spiluðu báðir stórt hlutverk í sögunni.
    53 min
  • Raforkuspáin og orkuskiptin
    Nýlega kom út ný raforkuspá Landsnets. Í henni kemur meðal annars fram að ekki sé útlit fyrir að fullum orkuskiptum verði náð árið 2040 eins og markmið stjórnvalda ganga út á, heldur 10 árum síðar. Hún Svala Birna Þórisdóttir vann að útgáfu Raforkuspárinnar og kom í heimsókn í Orkuskiptaskólann til þeirra Magna Þórs Pálssonar og Gnýs Guðmundssonar og sagði frá helstu niðurstöðum vinnunnar.
    47 min
  • Með byggðalínuna á heilanum
    Heimildarmyndin Rafhringur Íslands var sýnd í sjónvarpinu sunnudaginn 27. ágúst. Myndin er saga af stórhuga uppbyggingu, saga af fólki, hugrekki, dugnaði, elju, sorgum, sigrum og meira að segja ást. Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets settist niður með framleiðendum myndarinnar þeim Hans Orra Kristjánssyni og Sigurði Frey Björnssyni kvikmyndagerðarmanni og fór yfir söguna, tilurðina og helstu áskoranir með þeim en þau hafa öll verið með byggðalínuna á heilanum undanfarin ár.
    41 min

About Hlaðvarp Landsnets

From the publisher's feed

Við stjórnum og rekum flutningskerfi raforku á Íslandi. Fylgstu með hlaðvarpinu okkar þar sem við fjöllum reglulega um málefni líðandi stundar í raforkukerfinu.

More shows like Hlaðvarp Landsnets

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners