Í þessum fyrsta þætti af Hljómboxinu keppa mæðgurnar Erlen Ísabella Einarsdóttir og Eva Björk Sigurjónsdóttir og feðgarnir Lúkas Emil Johansen og Darri Johansen.
Þau glíma við Sturtusöngvarann, hvert er hljóðið, ká-ba-rut-fa og kvöldverðar konsert svo eitthvað sé nefnt.
Kveikið á kuðungi og hlustið með okkur.
Umsjón: Sigyn Blöndal
Framleiðsla og spurningahöfundar: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson
Hugmynd og höfundur leiks: Sindri Bergmann
Leikarar: Hera Ólafsdóttir, Karl Pálsson og Rúnar Freyr Gíslason
Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson