Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands

By Sinfóníuhljómsveit Íslands | Iceland Symphony OrchestraArtsPerforming Arts
Download on the App Store

Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands episodes

  • Einar Jóhannesson – Sinfónían í 75 ár

    Í þessum þætti Hljómkviðunnar ræða tveir klarinettuleikarar saman – Einar Jóhannesson sem var fyrsti klarinettuleikari sveitarinnar um árabil og Sigurður Ingvi Snorrason sem ræðir við nokkra hljóðfæraleikara sveitarinnar í tilefni 75 ára afmæli Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

    49 min
  • Víkingur og Daníel – Halla Oddný ræðir við tónskáldið og einleikarann um FEAST

    Þriðji píanókonsert Daníels Bjarnasonar, FEAST, var saminn fyrir Víking Heiðar Ólafsson að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Útvarp og Fílharmóníusveitarinnar í Los Angeles. Konsertinn var frumfluttur í Walt Disney-tónleikahöllinni í Los Angeles 18. febrúar síðastliðinn og er nú frumflutt á Íslandi á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Grænu röðinni miðvikudaginn 2. mars.

    Halla Oddný Magnúsdóttir tók þá Víking Heiðar og Daníel tali um nýja konsertinn og áralanga vináttu þeirra og samstarf.

    27 min
  • Sinfónía nr. 1 – Halla Oddný ræðir við Högna Egilsson

    Högni Egilsson hefur um langt árabil verið meðal kunnustu tónlistarmanna landsins. Þessir spennandi  tónleikar í Föstudagsröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru helgaðir nýrri sinfónískri tónlist Högna og mun hann einnig koma fram sjálfur með hljómsveitinni í sumum verkanna. Hljómsveitin hefur áður flutt tónlist Högna, meðal annars tekið upp tónlistina fyrir Netflix-sjónvarpsþáttaröðina Kötlu og verða tvö sinfónísk ljóð úr Kötlu flutt á tónleikunum. Ennfremur verða frumflutt verk sem samin eru sérstaklega í tilefni tónleikanna, þar á meðal er fyrsta sinfónía Högna, hans stærsta hljómsveitarverk til þessa.

    Halla Oddný Magnúsdóttir ræðir hér við Högna um tónlist hans.

    20 min
  • Töfrar fortíðar – Halla Oddný ræðir við Þórunni Ósk

    Í hverri sinfóníuhljómsveit starfa hátt í hundrað manns sem hver og einn á að baki langt og strangt nám í sinni grein. Hver leggur sitt af mörkum til heildarinnar en er um leið fær um að stíga inn í sviðsljósið sem einleikariþegar færi gefst. 

    Á næstu tónleikum Grænu raðarinnar, sem að þessu sinni bera yfirskriftina Töfrar fortíðar, stígur Þórunn Ósk Marinósdóttir, leiðari víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, á svið í einleikshlutverki í verkinu Lachrymae eftir enska 20. aldar tónskáldið Benjamin Britten. Lachrymae er samið út frá sönglagi Johns Dowland frá 16. öld. Lagið sjálft verður flutt af tenórsöngvaranum Benedikt Kristjánssyni í upphafi tónleikanna.

    Halla Oddný Magnúsdóttir ræðir hér við Þórunni Ósk um víóluna, verkin á efnisskránni og töfra tónlistarinnar.

    „Tónn fiðlunnar berst eins og ör sé skotið af boga aftur á aftasta bekk, meðan víólutónninnn berst meira svona eins og þegar þú sleppir pysju út á haf,“ segir Þórunn Ósk m.a. í viðtalinu.

    43 min
  • Strauss og Shostakovitsj – Halla Oddný spjallar við Árna Heimi

    Í fyrsta þætti Hlaðvarps Sinfóníuhljómsveitar Íslands spjallar Halla Oddný Magnúsdóttir við Árna Heimi Ingólfsson tónlistarfræðing um verkin á efnisskrá fyrstu tónleika grænu raðarinnar í vetur, sem bera yfirskriftina Strauss og Shostakovits.

    Verkin sem fjallað er um:

    Richard Strauss Hornkonsert nr. 1
    Dmítríj Shostakovitsj Píanókonsert nr. 2
    Richard Strauss Don Juan

    Tónleikarnir fara fram í Eldborg og í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV  miðvikudaginn 6. október 2021 kl. 20.00

    36 min

About Hljómkviðan – Hlaðvarp Sinfóníuhljómsveitar Íslands

From the publisher's feed

Í Hljómkviðunni er hlustendum veitt fjölbreytt innsýn í starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Rætt er við fólk sem tengist hljómsveitinni á einn eða annan hátt. Hugað er að sögu sveitarinnar,…