Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hve glötuð er vor æska? er tólf þátta sería þar sem Þorvaldur Sigurbjörn Helgason skoðar bókmenntaheiminn á Íslandi með sérstaka áherslu á unga höfunda og lesendur. Eiga bókmenntir ennþá erindi við un... more
FAQs about Hve glötuð er vor æska?:How many episodes does Hve glötuð er vor æska? have?The podcast currently has 21 episodes available.
November 19, 2019Staða loftslagsmála á Íslandi og Taylor SwiftÍ áttunda þætti Hnotskurn verður farið yfir stöðu loftslagsmálanna á Íslandi í tilefni af borgarafundi Kastljóss um loftslagsmál sem fram fer í kvöld. Þá skoðum við hvers vegna bandarískir nýnasistar og hvítir þjóðernissinnar sjá poppstjörnunaTaylor Swift í dýrðarljóma....more0minPlay
November 12, 2019Menntasjóður námsmanna og boxbardagi Logan Paul og KSIÁ Alþingi er nú til umfjöllunar frumvarp um Menntasjóð námsmanna sem ætlað er að koma í stað LÍN, við skoðum frumvarpið nánar og ræðum við Sigrúnu Jónsdóttur, forseta Landsamtaka íslenskra stúdenta. Svo skoðum við einar stærstu YouTube erjur sögunnar milli Logan Paul og KSI sem börðust í hnefaleikahringnum í annað sinn um helgina....more0minPlay
November 05, 2019CrossFit-kaos og frelsaður Kanye WestÍ Hnotskurn vikunnar skoðum við CrossFit og lyfjanotkunarumræðu síðustu daga og rýnum í nýjustu plötu tónlistarmannsins Kanye West....more0minPlay
October 29, 2019Nauðungarhjónabönd og saga hrekkjavökunnar.Í Hnotskurn í dag er fjallað annars vegar um sögu Hrekkjavökunnar, tengsl hennar við Ísland og gamlar hefðir. Í seinni hluta þáttarins er fjallað um barnahjónabönd á heimsvísu en þó sérstaklega í Malaví. Tilefni umfjöllunarinnar er Landssöfnun UN Women sem fer fram á RÚV 1. nóvember....more0minPlay
October 22, 2019Áróðurssíður á Facebook og fíaskóið í höllinniÍ þessum fjórða þætti Hnotskurnar fjöllum við um vandræðin í bresku konungshöllinni en breskir fjölmiðlar hafa verið sérstaklega óvægnir í garð nýju hertogaynjunnar Meghan Markle. Þá segjum við einnig frá íslenskum nafnlausum áróðurssíðum á samfélagsmiðlinum Facebook og veltum upp áleitnum spurningum um hvort þeim takist ætlunarverk sitt....more0minPlay
October 15, 2019Vandræði GAMMA og fimleikadrottningin Simone BilesÍ þessum þriðja þætti af Hnotskurn förum við yfir feril fimleikakonunnar stórkostlegu, Simone Biles, sem varð um helgina sú fimleikakona (og maður) sem hefur hlotið flesti verðlaun á heimsmeistaramóti frá upphafi. Við rýnum líka í vandræði fjárfestingafyrirtækisins GAMMA sem hafa verið áberandi í fréttum undanfarið....more0minPlay
October 08, 2019Bótakröfur í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu og Law & Order SVUí þessum öðrum þætti af Hnotskurn rýnum við í langlífustu leiknu sjónvarpseríu Bandaríkjanna, Law & Order: Special Victims Unit. Við förum líka yfir bótakröfurnar sýknaðra og aðstandenda í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu....more0minPlay
October 01, 2019Loftslagsmál og deilur innan embættis ríkislögreglustjóraÍ þessum fyrsta þætti verður farið yfir allar staðreyndirnar í málefnum loftslagsbreytinga, sögu þeirra, vísindalegar skýringar og mögulegar framtíðir. Þá verða deilur innan embættis ríkislögreglustjóra krufið til mergjar....more0minPlay
September 24, 2019KynningKynning á Hnotskurn, umsjónarmenn eru Helga Margrét Höskuldsdóttir og Snærós Sindradóttir....more0minPlay
September 24, 2018Tólfti þáttur - Framtíðin og skáldskapurinnFramtíðin er okkur sífelld uppspretta vangaveltna og spádóma. Við ímyndum okkur hana gjarnan sem tæknivæddari og sanngjarnari útgáfu af heimi nútíðarinnar en er endilega ástæða til að trúa því að svo verði? Hvaða hlutverk munu bókmenntir og skáldskapur spila í heimi framtíðarinnar? Í tólfta og síðasta þætti Hve glötuð er vor æska? veltir Þorvaldur Sigurbjörn Helgason þessum spurningum fyrir sér með hjálp nokkurra gesta. Rætt er við framtíðarfræðinginn Berg Ebba, bókmenntafræðinginn Sólu Þorsteinsdóttur og rithöfundinn Andra Snæ Magnason. Sapiens: A Brief History of Humankind eftir Yuval Noah Harari var gefin út af Harvill Secker árið 2014. Fyrir ítarlegri umfjöllun um anthropocene jarðsögutímabilið má benda á fréttasíður The Guardian og Kjarnans: https://www.theguardian.com/environment/2016/aug/29/declare-anthropocene-epoch-experts-urge-geological-congress-human-impact-earth https://kjarninn.is/frettir/2016-01-08-madurinn-ordinn-jardfraedilegur-orsakavaldur/ Ljóðið Krafturinn eftir Adam Zagajewski er að finna í ljóðasafninu Undir vernd stjarna í þýðingu Jóns Kalmans Stefánssonar sem var gefið út af Bjarti árið 2013. Upphafsstef þáttarins er Gunshowers með BADBADNOTGOOD. Millistef þáttarins er Stutt skref með Moses Hightower. Lokalag tólfta þáttar er Crack-Up með Fleet Foxes....more0minPlay
FAQs about Hve glötuð er vor æska?:How many episodes does Hve glötuð er vor æska? have?The podcast currently has 21 episodes available.