Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hve glötuð er vor æska? er tólf þátta sería þar sem Þorvaldur Sigurbjörn Helgason skoðar bókmenntaheiminn á Íslandi með sérstaka áherslu á unga höfunda og lesendur. Eiga bókmenntir ennþá erindi við un... more
FAQs about Hve glötuð er vor æska?:How many episodes does Hve glötuð er vor æska? have?The podcast currently has 21 episodes available.
July 09, 2018Fyrsti þáttur - Að lesa bækurUm þessar mundir er mikið rætt um stöðu bókarinnar og stöðugt heyrast áhyggjurraddir um dvínandi lestraráhuga ungs fólks. En hver hefur tíma til að lesa í dag, nú þegar hvert mannsbarn hefur í höndum sínum tæki sem gerir því kleift að nálgast alla stafræna þekkingu mannkynsins með einni snertingu? Í þessum fyrsta þætti seríunnar er fjallað um bóklestur ungs fólks og reynt að svara því hvort hann þrífist í grunn- og framhaldsskólum landsins. Rætt verður við bókmenntafræðinginn Jón Yngva Jóhannsson sem unnið hefur að rannsókn um viðhorf ungmenna til bókmennta auk þess sem tveir menntaskólanemar (nú reyndar útskrifaðir), þau Björg Steinunn Gunnarsdóttir og Magnús Thorlacius, ræða um sína upplifun af lestri. Ljóðið Að lesa bækur eftir Adam Zagajewski kom út í ljóðasafninu Undir vernd stjarna í þýðingu Jóns Kalman Stefánssonar. Upphafsstef þáttarins er Gunshowers með BADBADNOTGOOD. Millistef þáttarins er Stutt skref með Moses Hightower. Lokalag fyrsta þáttar er Enginn Tími með Geisha Cartel....more0minPlay
FAQs about Hve glötuð er vor æska?:How many episodes does Hve glötuð er vor æska? have?The podcast currently has 21 episodes available.