Íþróttarabb HR

Íþróttarabb HR

By Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik UniversitySports
Download on the App Store

Íþróttarabb HR episodes

  • Íþróttarabb HR // 9. þáttur: Aron Gauti Laxdal

    Gestur Íþróttarabbsins að þessu sinni er Aron Gauti Laxdal, dósent í íþróttafræði við Háskólann í Agder í Noregi. Aron Gauti er með doktorsgráðu í skólaíþróttum frá Háskólanum í Stavanger og höfundur greinarinnar Til umhugsunar um framtíð skólaíþrótta. Aron Gauti hefur sinnt viðamiklum rannsóknum á skólaíþróttum í Noregi og var við kennslu við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík nú í desember. Þá hélt hann einnig opinn fyrirlestur um miðjan mánuðinn sem bar yfirskriftina Það á líka að fara fram nám í skólaíþróttum.

     

    UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI
    Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.

     

    UM ÍÞRÓTTARABBIÐ
    Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

     

    UM HR HLAÐVARPIÐ
    HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðandi hlaðvarpsins er Vilhjálmur Siggeirsson.

    38 min
  • Íþróttarabb HR // 8. þáttur: Chris Harwood og 5C aðferðafræðin

    Chris Harwood er gestur íþróttarabbs HR að þessu sinni. Hann er í fremstu röð meðal fræðimanna í íþróttasálfræði og starfar sem forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar íþrótta, heilsu og frammistöðuvísinda við Nottingham Trent háskólann í Bretlandi þar sem hann er jafnframt prófessor. Chris þróaði 5C aðferðafræðina sem er líklega útbreiddasta aðferðin til að kenna börnum, unglingum og foreldrum sálfræðilega færniþjálfun. Það er Daði Rafnsson sem stýrir Íþróttarabbi HR að þessu sinni og ræðir við Chris. Hann er doktorsnemi við sálfræðideild HR og stundakennari í íþróttafræðideild.

    Eftir Chris liggja yfir 160 fræðigreinar, bókakaflar og bækur. Hann situr í ritstjórn margra virtra fræðirita og hefur verið virkur þátttakandi í fjölþjóðlegu samstarfi, þar á meðal Erasmus verkefni sem hann hefur undanfarið unnið með HR, ÍSÍ og UMFÍ um sálfræðilega færniþjálfun unglinga.

    Rannsóknir Chris beinast einmitt helst að sálfélagslegum þáttum sem snerta þroska íþróttamanna, líðan þeirra og frammistöðu. Þar með talið jákvæðri nálgun þjálfara, stuðningshlutverki foreldra og umhverfisþáttum sem hafa áhrif á líðan og frammistöðu. Út frá reynslu sinni og störfum með enskum knattspyrnuliðum bjó hann til 5C aðferðafræðina sem verður þungamiðjan í þessum þætti.

    5C-aðferðafræði er líklega útbreiddasta aðferðin til að kenna börnum, unglingum og foreldrum sálfræðilega færniþjálfun. Hún byggir á kenningum um jákvæða og heildræna hæfileikamótun. Grunn c-ið er skuldbinding (commitment), svo koma samskipti (communication), einbeiting (concentration), sjálfsstjórn (control) og sjálfstraust (confidence), sem er afleiðing af því að taka ábyrgð á því að hugsa um og vinna markvisst í færninni. 5C eru byggð á fræðilegum grunni, eru auðskilin og sveigjanleg. Þannig hafa þau nýst sem kennsluaðferð, inngripsaðferð og foreldrafræðsla svo einhver dæmi séu tekin. 

    UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI
    Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.

    UM ÍÞRÓTTARABBIÐ
    Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

    UM HR HLAÐVARPIÐ
    HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðandi hlaðvarpsins er Vilhjálmur Siggeirsson.

    58 min
  • Íþróttarabb HR // 7. þáttur: Daniel Gould og Robert Weinberg

    Gestir íþróttarabbsins að þessu sinni eru prófessoranir Daniel Gould og Robert Weinberg.  Weinberg og Gould eru vel þekktir fyrir störf sín á sviði íþróttasálfræði og líklega er á engan hallað þegar haldið er fram að þeir félagar séu með virtustu íþróttasálfræðingum allra tíma. Báðir hafa þeir verið tilnefndir á topp 10 lista yfir áhrifamestu íþróttasálfræðinga Bandaríkjana.  Þeir hafa þeir birt ótal fræðigreinar á sviði íþróttasálfræði og skrifað fjölmargar bækur. Weinberg og Gould eru líklega hvað þekkastir fyrir að vera höfundar af kennslubókinni Foundation of Sport and Exercise Psychologysem er langmest notaða kennslubók á sviði íþróttasálfræði. Báðir hafa þeir yfirgripsmikla reynslu af því að vinna með íþróttamönnum, þjálfurum og íþróttasamböndum.  Í þættinum er farið vítt og breytt yfir feril þeirra og þeir miðla af reynslu sinni.  Meðal annars er rabbað um hvað sálfæðilegu hæfni þeir sem ætla sér langt í íþróttum þurfa að tileinka sér,  hvaða sálfræðilega hæfni dómarar þurfa að hafa, hvað skiptir máli þegar starfað er með íþróttafólki og hvernig íþróttasálfræði getur komið að gangi í atvinnulífinu og lífinu sjálfu.. Það er Peter O´Donoghue prófessor við íþróttafræðideild sem rabbar við Weinberg og Gould.

    Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

    Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.

    HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.

    53 min
  • Íþróttarabb HR // 6. þáttur: Anton Sveinn Mckee

    Gestur Íþróttarabbsins að þessu sinni er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee. Hann náði í sumar Ólympíulágmarkinu í 200 metra bringusundi fyrir Ólympíuleikana í París á næsta ári. Anton bætist þá í fámennan hóp íslenskra íþróttamanna sem keppt hafa á fjórum Ólympíuleikum. Í þættinum er farið vítt og breitt yfir feril Antons hingað til en það er Sunna Kristín Hilmarsdóttir, verkefnastjóri hjá samskiptateymi HR, sem ræðir við hann.

    Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

    Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.

    HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.

    52 min
  • Íþróttarabb HR // 5. þáttur: Þórir Hergeirsson

    Í þessum þætti af Íþróttarabbinu er rætt við Þóri Hergeirsson, þjálfara norska kvennalandsliðsins í handbolta. Gestaspyrill í þessum þætti er íþróttafréttakonan Edda Sif Pálsdóttir. Þórir hefur þjálfað norska kvennalandsliðið sem aðalþjálfari frá árinu 2009. Árangur hans með liðið hefur verið afar eftirtektarverður; níu sigrar á stórmótum og samtals fjórtán skipti á palli á þessum fjórtán árum. Í janúar var Þórir kosinn þjálfari ársins í Noregi á Idrettsgallaen, uppgjörshátíð norskra íþrótta. Þar að auki hefur hann verið sæmdur konunglegri riddaraorðu í Noregi fyrir framlag sitt til handboltans þar í landi. Þórir er borinn og barnfæddur Selfyssingur og byrjaði ungur að stunda handbolta með Selfossi. Árið 1986 flutti hann til Oslóar og fór fljótlega að einbeita sér einvörðungu að þjálfun.

    Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

    Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.

    HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.

    52 min
  • Íþróttarabb HR // Hreyfivistkerfi: Sveinn Þorgeirsson, Snorri Örn Arnaldsson og Hafþór Aron Ragnarsson

    Sveinn Þorgeirsson, kennari við íþróttafræðideild HR, fær til sín tvo góða gesti í Íþróttarabbið til að spjalla um nýja nálgun við þjálfun hreyfinga sem byggir á hugmyndum um hreyfivistkerfi, sem áður hafa verið teknar fyrir í Íþróttarabbinu (þætti 3). Þessar kenningar eru meðal kennsluefnis sem tekið er fyrir í námskeiðinu Hreyfiþróun og -nám í grunnnámi íþróttafræðinnar.

    Til upprifjunar, þá eru þetta hugmyndir sem saman gjörbylta sýn okkar á það hvernig hreyfingar mótast og lærast. Helsti munurinn á þessum kenningum og þeim hefðbundnu eru að í þeim hefðbundnu er einn stjórnandi og hreyfingarnar eru endurteknar til að endurtaka þær og gera „sjálfvirkar“ og festa í minninu. Hreyfingarnar gera ráð fyrir því að skynjun og hreyfing gerist hvort á eftir öðru, líkt og tölva sem fær upplýsingar, vinnur úr þeim og gefur svo svar. Hér er breytileiki milli tilrauna óæskilegur, og í raun mistök við að reyna að framkvæma réttu hreyfinguna.

    Hreyfivistkerfi sjá aftur á móti hreyfingar birtast út frá stöðugu og virku samspili okkar við umhverfið. Hreyfingar mótast þá af takmörkunum í umhverfi, okkur sjálfum og verkefninu. Þá er ekki hægt að endurtaka sömu hreyfinguna aftur tvisvar, og breytileikinn milli tilrauna er vísbending fyrir því að við erum aðlögunarhæf, sem er lykilhugtak í þessum pælingum. Hreyfingar birtast með samhæfingu líkamans sem flókins kviks kerfis sem er stöðugt að þróast og vinnur án eins eiginlegs stjórnanda, og því er talað um sjálfsskipulag.

    Til að ræða það hvernig þessar hugmyndir virka á gólfinu, í praktík fær Sveinn tvo góða gesti.  Í fyrri hlutanum ræðir Snorri Örn Arnaldsson körfuboltaþjálfari um þessar hugmyndir út frá þjálfun sem hann hefur mikla reynslu af. Talað er við Snorra um hvernig þessar hugmyndir passa inn í körfuboltaþjálfun og hvað breytist þegar að fólk tileinkar sér þessa nýju sýn á hreyfingar. Snorri talar um það svigrúm sem þarf að skapa fyrir iðkandann til að móta sinn persónulega stíl og hvernig þjálfarar geta haft áhrif á hreyfinámið gegnum verkefnið í stað þess að fara í gegnum hreyfimynstur leikamannsins sem slíks. Þær aðferðir byggjast á svokallaðri takmarkanastýrðri nálgun (constraint led approach) eða ólínulegri kennslufræði (non-linear pedagogy), en hvort um sig byggir á hugmyndum hreyfivistkerfa um myndun og nám hreyfinga.

    Í síðari hlutanum kemur Hafþór Aron Ragnarsson í heimsókn, en hann er forsetalistanemandi við íþróttafræðideild HR. Hafþór starfar við Hamraskóla og hefur meðal annars fengist við íþróttakennslu og því fengið að prófa þær hugmyndir sem hafa verið til umfjöllunar í vetur. Hann talar um hvernig það var að taka upp þessar nýju hugmyndir eftir að hafa tekið áfangann Hreyfiþróun og -nám. Hugmyndir hreyfivistkerfa birtast meðan annars í aðferðum sem kenndar eru við ólínulega kennslufræði en það er einmitt nálgun sem Hafþór Aron kynntist í námskeiðinu í verklegri vinnu með börnum á grunnskóla aldri.

    _______________________

    Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

    HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.

    1 hr 7 min
  • Íþróttarabb HR // 4. þáttur: Ingi Þór Einarsson og Gunnar Páll Jóakimsson

    Ingi Þór Einarsson, lektor við íþróttafræðideild HR, og Gunnar Páll Jóakimsson, stundakennari við íþróttafræðideild HR, settust niður í Íþróttarabbi HR og ræddu þolþjálfun á breiðum grundvelli. Auk þess að vera fræðimenn með áratugareynslu í sínum fögum hafa báðir þjálfað sömuleiðis um áratugaskeið, Ingi Þór einkum í tengslum við sund og Gunnar Páll hefur sérhæft sig í hlaupum. Íþróttarabbið er ný þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu. Það var Stefán Hrafn Hagalín hjá samskiptateymi HR, sem spjallaði við Inga Þór og Gunnar Pál.

    Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

    Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.

    HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.

    1 hr 8 min
  • Íþróttarabb HR // 3. þáttur: Sveinn Þorgeirsson

    Í þessum þætti fræðumst við um hugmyndir sem Sveinn Þorgeirsson, kennari við íþróttafræðideild HR, er að kynna sér og gætu haft mikil áhrif á hvernig við nálgumst þjálfun hreyfingar í framtíðinni. Þetta eru hugmyndir hreyfivistkerfa og í þættinum eru þær bornar saman við þær hefðbundnu kenningar sem við höfum flest alist upp við og hafa mótað nálgun okkar við þjálfun og kennslu hreyfinga til þessa. Það er Ása Guðný Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri við íþróttafræðideild, sem spjallar við Svein.

    Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

    Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.

    HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.

    ________________________________________________________________________________________


    Þessi grein er frábær lesning til að kynna sér hugmyndirnar:
    https://www.researchgate.net/publication/351061205_Understanding_How_Athletes_Learn_Integrating_Skill_Training_Concepts_Theory_and_Practice_from_an_Ecological_Perspective


    Hér er efni á íslensku eftir Svein og meira á leiðinni:
     https://sveinnthorgeirsson.com/2023/03/17/a-auto-pilot-eda-adlogunarhaef-tvo-olik-sjonarhorn-a-thjalfun-hreyfinga/

    https://sveinnthorgeirsson.com/2023/04/11/einstaklingsmidud-hopthjalfun-morg-verkefni-eda-margar-lausnir/

    https://sveinnthorgeirsson.com/2023/04/24/eru-10-000-endurtekningar-thversogn-i-thjalfun-hreyfinga/


    Hér er frábær þáttur á góðri rás á youtube eftir dr. Rob Gray sem tekur saman þessar helstu pælingar:
    https://www.youtube.com/watch?v=cCsezh7ijzs&t=450s&ab_channel=RobGray


    Hérna er verkefnið Handbolti á heimavelli eftir Svein Þorgeirsson og Kristján Halldórsson sem vísað er til í þættinum:
    https://handboltiaheimavelli.com/ 

    54 min
  • Íþróttarabb HR // 2. þáttur: Peter O´Donoghue

    Gesturinn í þessum þætti af Íþróttarabbi HR er Peter O´Donoghue prófessor við Íþróttafræðideild HR. Peter er þekktur á alþjóðavettvangi fyrir vinnu sína, rannsóknir og kennslu á sviði frammistöðugreininga í íþróttum (sport performance analysis). Margir fyrrum nemenda hans hafa náð langt í íþróttaheiminum og meðal annars starfað fyrir Liverpool FC. Í þættinum er farið yfir feril Peters, sem í grunninn er tölvunarfræðingur, hvernig leið hans lá inn í íþróttaheiminn og rætt um áhugaverðir aðferðir hans við kennslu og rannsóknir. Það er John David Baird, kennsluráðgjafi hjá HR, sem spjallar við Peter.

    Íþróttarabb HR er ný þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

    Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.

    HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.

    2 hr 26 min
  • Íþróttarabb HR // 1. þáttur: Clive Brewer

    Í fyrsta þætti af Íþróttarabbi HR á Spotify er rætt við Clive Brewer sem er einn þeirra erlendu sérfræðinga sem kemur reglulega hingað til lands að kenna nemendum meistaranáms íþróttafræðinnar í HR. Sérsvið Clive er styrk- og þrekþjálfun og afreksþjálfun. Hann hefur víðtæka reynslu af líkamlegri þjálfun íþróttafólks allt frá börnum til Ólympíufara. Clive hefur skrifað hagnýtar kennslubækur fyrir þjálfara í styrk- og þrekþjálfun með æfingum og góðum ráðum. Undanfarin ár hefur hann mest starfað í Bandaríkjunum í tengslum við hafnabolta og fótbolta, en nú síðast sem stjórnandi afreksíþróttamiðstöðvar Ortho Arizona. Áður hafði hann unnið á Bretlandseyjum með stórum knattspyrnuliðum í úrvalsdeildinni, rúgbýliðum, sérsamböndum og fagfélögum.

    Íþróttarabb HR er ný þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.

    Það er Sveinn Þorgeirsson, kennari við íþróttafræðideild HR, sem ræðir við Clive. Sérsvið Sveins er íþróttaþjálfun og nánar tiltekið þjálffræði, afreksþjálfun og handknattleikur.

    Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.

    HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptasvið HR sem er umsjónaraðili hlaðvarpsins ([email protected]). Framleiðendur HR hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.

    51 min

About Íþróttarabb HR

From the publisher's feed

Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun…