Chris Harwood er gestur íþróttarabbs HR að þessu sinni. Hann er í fremstu röð meðal fræðimanna í íþróttasálfræði og starfar sem forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar íþrótta, heilsu og frammistöðuvísinda við Nottingham Trent háskólann í Bretlandi þar sem hann er jafnframt prófessor. Chris þróaði 5C aðferðafræðina sem er líklega útbreiddasta aðferðin til að kenna börnum, unglingum og foreldrum sálfræðilega færniþjálfun. Það er Daði Rafnsson sem stýrir Íþróttarabbi HR að þessu sinni og ræðir við Chris. Hann er doktorsnemi við sálfræðideild HR og stundakennari í íþróttafræðideild.
Eftir Chris liggja yfir 160 fræðigreinar, bókakaflar og bækur. Hann situr í ritstjórn margra virtra fræðirita og hefur verið virkur þátttakandi í fjölþjóðlegu samstarfi, þar á meðal Erasmus verkefni sem hann hefur undanfarið unnið með HR, ÍSÍ og UMFÍ um sálfræðilega færniþjálfun unglinga.
Rannsóknir Chris beinast einmitt helst að sálfélagslegum þáttum sem snerta þroska íþróttamanna, líðan þeirra og frammistöðu. Þar með talið jákvæðri nálgun þjálfara, stuðningshlutverki foreldra og umhverfisþáttum sem hafa áhrif á líðan og frammistöðu. Út frá reynslu sinni og störfum með enskum knattspyrnuliðum bjó hann til 5C aðferðafræðina sem verður þungamiðjan í þessum þætti.
5C-aðferðafræði er líklega útbreiddasta aðferðin til að kenna börnum, unglingum og foreldrum sálfræðilega færniþjálfun. Hún byggir á kenningum um jákvæða og heildræna hæfileikamótun. Grunn c-ið er skuldbinding (commitment), svo koma samskipti (communication), einbeiting (concentration), sjálfsstjórn (control) og sjálfstraust (confidence), sem er afleiðing af því að taka ábyrgð á því að hugsa um og vinna markvisst í færninni. 5C eru byggð á fræðilegum grunni, eru auðskilin og sveigjanleg. Þannig hafa þau nýst sem kennsluaðferð, inngripsaðferð og foreldrafræðsla svo einhver dæmi séu tekin.
UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI
Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.
UM ÍÞRÓTTARABBIÐ
Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.
UM HR HLAÐVARPIÐ
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðandi hlaðvarpsins er Vilhjálmur Siggeirsson.