Karfan
Download on the App Store

Karfan episodes

  • Aukasendingin: Áhugaverðir atvinnumenn, vörutalning í Subway og blóðug barátta í neðri deildum

    Aukasendingin fékk Ólöfu Helgu og Árna Jóhanns í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, Subway deild karla, Subway deild kvenna, bikarkeppnina, fyrstu deildir karla og kvenna og margt, margt, margt fleira. Þá er farið yfir minnistæðustu erlendu leikmenn síðustu tíu ára í úrvalsdeild karla og kvenna.

    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 24 min
  • Tvígrip: Geitin til Stólana, allir reknir og Herbert og Paxel á línunni

    Tvígrip: Karfan körtlögð
    Tímabilið 1995 til 1996 / Fyrri hluti

    Pétur Guðmundsson í Tindastól, Ingólfur Hannesson lætur KKÍ heyra það en Pétur Hrafn svaraði fullum hálsi. Var þáttastjórnandi Tvígrips svikinn um miða á NBA leik í London eða var það bara misskilningur? Ef leikmaður er í banni má hann ekki sitja á bekknum? Héldu KR-ingar að þeir yrðu Íslandsmeistarar eftir 9 umferðir? Herbert Arnars á línunni, en þar fer hann yfir víðan völl. Við hringjum einnig í Paxel sem fer vel yfir úrslitakeppnina ásamt Örvars-horninu þar sem Örvar segir frá miður skemmtilegu atviki á Valsmótinu. Kristinn rekinn, Axel rekinn, Hreinn rekinn og Burns rekinn ásamt fleirum. 

    Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    2 hr 10 min
  • Aukasendingin: Úrslitadagar í Subway, félögum gefin ráð og hvort er það KR eða ÍR

    Aukasendingin fékk Hallgrím Brynjólfsson í heimsókn til þess að ræða Subway deild karla, síðasta landsliðsglugga, bikarkeppnina, fyrstu deildir karla og kvenna og margt, margt, margt fleira. Þá er farið yfir ráðgjöf til félaga fyrir sumarið, þar sem að Tindastóll, Keflavík, Haukar og fleiri lið fá nokkur ráð gefins.


    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 34 min
  • Fyrstu fimm: Hlynur Bæringsson

    Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer Grundfirðingurinn, leikmaður Stjörnunnar og fyrrum landsliðsfyrirliðinn Hlynur Bæringsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann hefur spilað með.

    Hlynur er einn af þeim eldri sem spila í Subway deildinni á Íslandi í dag, en á sínum tíma var hann einn af þeim yngstu þar sem hann byrjaði aðeins 15 ára að spila í úrvalsdeildinni. Þá átti hann einnig 23 ára langan feril með íslenska landsliðinu, en þar lék hann fyrst árið 2000 og síðast var hann með því í febrúar á síðasta ári, 2023.

    Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 33 min
  • The Uncoachables: The Whole Gang is Back

    Helgi, David and Jeanne are finally reunited as they discuss the last two months (sorry, everyone was moving, sick or busy) of basketball, the transfers and Grindavík going out with a bang. We talk about the splitting of the women's Subway league into A and B, the battle in the men's Subway league for the last few playoff spots and the upcoming national team games on the men's side. Enjoy!


    Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne Sicat

    The Uncoachables is brought to you by Lykill, Subway, Kristall and Lengjan.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 28 min
  • Fyrstu fimm: Haukur Helgi Briem Pálsson

    Í þessari síðustu útgáfu af Fyrstu fimm fer landsliðsmaðurinn og leikmaður Álftaness Haukur Helgi Briem Pálsson yfir sitt besta byrjunarlið. Haukur hefur verið atvinnumaður í íþróttinni megnið af ævi sinni, en ásamt því að hafa leikið með skólum Montverde og Maryland vestan hafs, átti hann einnig góðan feril á meginlandi Evrópu áður en hann kom aftur til Íslands 2021.

    Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    59 min
  • Tvígrip: Samsæriskenningar, afhverju fór Guðjón í Grindavík og Valur á línunni

    Tvígrip: Karfan körtlögð
    Tímabilið 1994 til 1995 / Seinni hluti

    Grindvíkingar reka Frank B. í miðri úrslitakeppninni og var ásakaður um að hjálpa Keflvíkingum. Guðni Ö. lét blaðamenn, dómara og KKÍ heyra það. Guðjón Skúlason sagði okkur ástæðuna af hverju hann fór í Grindavík. Einnig komu góðar sögur af fyrrum þjálfara Keflavíkur. Njarðvíkingurinn Valur Ingimundar á línunni.

    Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    2 hr 30 min
  • Aukasendingin: Aþena í Subway, sjóðandi Grindavík, falsanir og fimm uppáhalds Stólar

    Aukasendingin fékk Pálma Þórs og Hraunar Hundtryggan í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, síðustu umferð í Subway deild karla, fyrstu deildir karla og kvenna og leikmenn erlendis. Þá velur Pálmi sína fimm uppáhalds leikmenn Tindastóls allra tíma og Hraunar fer yfir þrjá skemmtilegustu körfuboltaleiki sem hann hefur verið viðstaddur.

    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Tactica og Lengjunnar.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 10 min
  • Tvígrip: Efnilegir Sandgerðingar, John Rhodes skrifar í blöðin, Örvar á línunni og margt fleira

    Tvígrip: Karfan körtlögð 
    Tímabilið 1994 til 1995 / Fyrri hluti

    Miklar leikmanna og þjálfara hræringar, Grindvíkingar fá fullt af erlendum leikmönnum.
    Kærumál í torfærunni þar sem VAR kemur við sögu. Keflvíkingar fá einn efnilegasta leikmann Sandgerðinga. Nýtt fyrirkomulag á Úrvalsdeildinni, John Rhodes sá ástæðu til að skrifa grein í blöðin. Njarðvíkingurinn Örvar Kristjáns á línunni ásamt fullt af öðru í 6. þætti Tvígrips

    Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 55 min
  • Aukasendingin: Leikmannakapphlaup Suðurnesjaliða og sögulega vond lið Íslandsmeistara

    Aukasendingin fékk Árna Jóhanns og Ólöfu Helgu til þess að ræða fréttir vikunnar, bikardráttinn, stöðuna í Subway deildunum og margt, margt, margt fleira. Sérstaklega er farið yfir Subway deild kvenna, þar sem liðunum er raðað upp í kraftröðun og þá er valið í fimm leikmanna úrvalslið leikmanna sem best væri að hafa með sér inn í úrslitakeppnina. Þá fer Árni undir lokin yfir hvaða fimm hallir landsins gera best í að taka á móti blaðamönnum.


    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Tactica, Subway og Lengjunnar.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 30 min

About Karfan

From the publisher's feed

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

More shows like Karfan

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Endalínan by Podcaststöðin

Endalínan

9 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Boltinn Lýgur Ekki by SiggiOrri

Boltinn Lýgur Ekki

1 Listeners