Karfan
Download on the App Store

Karfan episodes

  • Social Chameleon #11 - Jaka Brodnik um erfiðleika í byrjun ferilsins, að spila með Jokic og Nurkić í NBA sumardeildinni og ferðalagið til Íslands “Deildin á Íslandi er vanmetin”

    Dominykas Milka ræðir við leikmann Keflavíkur Jaka Brodnik um hvernig það hafi verið að alast upp í slóvenskum körfubolta, erfiðleika á fyrstu árum atvinnumennsku, ferðalag vestur um haf í sumardeild NBA deildarinnar, hvernig hann hafi endað á Íslandi og margt fleira.

    Jaka kom upphaflega til Íslands til Þórs í nóvember 2018. Þaðan fór hann til Tindastóls og var með þeim frá 2019 til 2021 áður en hann kom til Keflavíkur fyrir þetta tímabil. Fyrir landslið sitt í Slóveníu lék Jaka á sínum tíma með öllum yngri landsliðum og seinna a landsliðinu, en Slóvenía er ein sterkasta körfuboltaþjóð í heiminum um þessar mundir, samkvæmt heimslista í 4. sæti og innan Evrópu aðeins fyrir aftan Spán.

    Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugavert fólk bæði um hin ýmsu málefni sem snerta körfuknattleik, sem og málefni líðandi stundar.

    Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils og Subway.

    Með Dominykas er sem áður ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur.

    Hlustendum er bent á Instagram síðu þáttarins fyrir tillögur að skemmtilegu efni, sem og til þess að senda inn spurningar, en hún er aðgengileg hér.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    54 min
  • Fókus: Sterkur sigur Njarðvíkur og vandræði í Kópavogi

    Fókus kom saman og fór yfir fyrstu leiki eftir landsleikjahlé, mikilvægan sigur Grindavíkur á Breiðablik, vafaatriði í Dalhúsum, erfitt gengi Skallagríms og margt fleira.

    Umsjónarmaður Fókus er fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Ólöf Helga Pálsdóttir Woods, en henni til halds og trausts í dag var ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur.

    Fókus er í boði Kristalls, Lykils og Subway.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    41 min
  • Social Chameleon #10 - Logi Gunnarsson um Njarðvík, árin í Evrópu, landsliðsævintýrin og hvernig það sé að eldast sem körfuboltamaður “Vill ekki hætta fyrr en ég er tilbúinn til þess”

    Dominykas Milka ræðir við leikmann Njarðvíkur og fyrrum leikmann íslenska landsliðsins Loga Gunnarsson um ferilinn með Njarðvík, liðum víðsvegar í Evrópu, landsliðsævintýrin og hvernig það sé að eldast sem körfuboltamaður.

    Social Chameleon mun koma reglulega út í vetur, en í því mun Dominykas ræða við áhugavert fólk bæði um hin ýmsu málefni sem snerta körfuknattleik, sem og málefni líðandi stundar.

    Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils og Subway.

    Með Dominykas er sem áður ritstjóri Körfunnar Davíð Eldur.

    Hlustendum er bent á Instagram síðu þáttarins fyrir tillögur að skemmtilegu efni, sem og til þess að senda inn spurningar, en hún er aðgengileg hér.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 5 min
  • Aukasendingin - Máté rýfur þögnina, verðlaun fyrir fyrstu sjö í Subway og umræða um landsliðsvalið

    Aukasendingin fékk til sín Þann Hundtrygga Hraunar Karl og Snáða 2 Máté Dalmay til þess að ræða fréttir vikunnar, landsliðsvalið og fyrstu deildina. Þá eru veitt verðlaun fyrir fyrstu sjö umferðir Subway deildar karla, þar sem besti leikmaður, mestu framfarir, besti þjálfari, fimma manna úrvalslið og magt fleira er valið.

    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 35 min
  • Undir Körfunni - Raggi Braga um erfiðan viðskilnað í Breiðholtinu, bleika hárið og Íslandsmeistaratitilinn í Þorlákshöfn „Við höfum trú á því að við getum unnið alla“

    Ragnar Örn Bragason, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, er þriðji viðmælandinn Undir Körfunni. Ragnar ræðir ferilinn sinn, lífið sem Íslandsmeistari og hvernig það er að spila undir stjórn Lárusar Jónssonar.

    Ragnar fer yfir hörð einvígi á parketinu við fyrirmynd sína í körfuboltanum, Brynjar Þór Björnsson, ásamt því að segja sögu af Kinu Rochford, útskýra mismunandi hárliti sína, fara yfir stemninguna í klefanum hjá Þór og margt fleira.

    Ragnar velur svo að sjálfsögðu bæði draumalið samherja sem hann hefur leikið með ásamt úrvalsliði í Subway deildinni.

    Umsjón: Atli Arason 

    Undir Körfunni er í boði Subway, Lykils og Kristalls.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 19 min
  • The Uncoachables: National team and trade windows

    Helgi and David sat down to talk about trade windows and what teams changed up their rosters. They also discussed the women's national team games and the men's national team roster. Enjoy!

    Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 23 min
  • Aukasendingin - Ægir Þór um lífið á Spáni, Subway deildina og landsleikina sem framundan eru

    Aukasendingin ræddi við leikmann íslenska landsliðsins og Acunsa GBC á Spáni um hvernig það hafi verið að flytja með fjölskylduna til Spánar nú í haust, hverjar væntingar fyrir tímabilið séu í San Sebastian, hvernig honum lítist á gengi liða í Subway deildinni á þessu tímabili og hvernig hann sjái landsliðsgluggann sem framundan er fyrir sér. Þá spáir Ægir í restina fyrir um leiki 7. umferðar Subway deildar karla sem hefst á morgun fimmtudag 18. nóvember.

    Beðist er velvirðingar á að hljóð upptökunnar sé ekki upp á tíu, en það er vegna þess að Ægir er staddur í San Sebastian á Spáni, en Aukasendingin er tekin upp í Vesturbæ Reykjavíkur.

    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    41 min
  • Undir Körfunni - Helena og nýliðar Njarðvíkur stefna á þann stóra "Við getum farið alla leið"

    Í öðrum þætti mætir Helena Rafnsdóttir, leikmaður Njarðvíkur, undir körfuna og ​ræðir uppgang Njarðvíkur liðsins og væntingar liðsins fyrir tímabilið 2021/22. 

    Helena fer yfir gengi hins umtalaða 2003 árgangs og velur úrvalslið sitt í Subway deildinni.

    Undir Körfunni er í boði Lykils, Kristalls og Subway.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    36 min
  • Undir Körfunni - Styttist í endurkomu Hauks Helga Pálssonar á parketið. „Ökklinn minn hefur ekki verið í lagi síðan 2014“

    Í fyrsta þætti undir körfunni mætir Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Njarðvíkur, og ræðir um ferilinn sinn til þessa. Haukur ræðir sína löngu sögu meiðsla og aðgerðina sem hann fór í nýlega til að koma sér aftur í stand. 

    Rætt er um bestu og verstu leiki Hauks og Haukur gefur upp draumalið sitt af leikmönnum sem hann hefur spilað með ásamt því að stilla upp það sem er að hans mati, bestu leikmenn Subway deildarinnar í fimm manna liði.

    Umsjón: Atli Arason

    Undir Körfunni er í boði Subway, Lykils og Kristalls.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    52 min
  • Aukasendingin - Nýtt blóð í Breiðholtið og hvaða lið þurfa mest að breyta til? - Styrmir Snær í viðtali frá Davidson “Þú verður að vera harður víkingur eins og Jón Axel”

    Aukasendingin fékk Þann Hundtrygga og Siggeir Ævarsson til að ræða fréttir vikunnar, síðustu og næstu umferð í Subway deild karla og margt fleira. 

    Þá er í lokin viðtal við fyrrum leikmann Íslandsmeistara Þórs, Styrmi Snær Þrastarson um nýtt upphaf hans með Davidson í bandaríska háskólaboltanum, en deildarkeppni þeirra er að rúlla af stað þessa vikuna.

    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 27 min

About Karfan

From the publisher's feed

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

More shows like Karfan

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Endalínan by Podcaststöðin

Endalínan

9 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Boltinn Lýgur Ekki by SiggiOrri

Boltinn Lýgur Ekki

1 Listeners