Konur í nýsköpun

Konur í nýsköpun

By Alma Dóra RíkarðsdóttirBusinessEntrepreneurshipScienceSocial Sciences
Download on the App Store

Konur í nýsköpun episodes

  • 30. FRUMKVÖÐLAUMHVERFIÐ KENNIR MANNI MIKLA SEIGLU – Sigurlína Ingvarsdóttir, stofnandi Behold Ventures

    Sigurlína Ingvarsdóttir hefur síðan árið 2006 unnið við að búa til þekkta tölvuleiki bæði á Íslandi og víða um heim. Í COVID ákvað hún að flytja heim til Íslands og skipti um hlutverk innan tölvuleikjaheimsins þegar hún stofnaði sjóðinn Behold Ventures sem fjárfestir í fyrirtækjum sem eru að þróa tölvuleiki og tengda tækni á Norðurlöndunum. Lína sagði mér frá sinni vegferð og Behold Ventures auk þess að gefa sín bestu ráð til frumkvöðla.

     

    Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi

    30 min
  • 29. MENNTUN STÚLKNA ER ÁHRIFARÍK LOFTSLAGSLAUSN – Guðný Nielsen, framkvæmdastjóri og stofnandi SoGreen

    Guðný Nielsen er framkvæmdastjóri og stofnandi SoGreen sem er sprotafyrirtæki sem hefur þróað aðferðafræði til þess að reikna út hversu mikil loftslagsáhrif það hefur að tryggja stúlkum menntun. Guðný sagði mér frá sinni vegferð og upplifun af því að byggja sprotafyrirtæki með stórt samfélagslegt markmið, eins og að tryggja 130 milljónum stúlkna menntun.

     

    Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi

    27 min
  • 28. HVERNIG BÝRÐU TIL HUGVERK SEM GETUR NÁÐ ÁRANGRI ALÞJÓÐLEGA – Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Tulipop

    Helga Árnadóttir er framkvæmdastjóri og ein af stofnendum Tulipop sem er fyrirtækið á bakvið töfraheiminn, fígúrurnar, sögurnar, teiknimyndirnar og vörurnar sem mörg okkar, og þá allra helst börn og foreldrar, könnumst við. Helga sagði mér söguna af því hvernig Tulipop varð til og hvernig þeim hefur tekist að fjármagna verkefnið, en Tulipop tók inn 250 milljón króna fjárfestingu í byrjun árs 2023.

    Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi

    34 min
  • 27. EF ÉG ER AÐ GERA ÞAÐ SEM ÉG BRENN FYRIR ÞÁ MUN ÞAÐ LEIÐA MIG Á RÉTTAN STAÐ – Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, framkvæmdastjóri Empower

    Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé er  framkvæmdastjóri og ein af stofnendum Empower sem er að þróa hugbúnaðarlausn sem stuðlar að auknu jafnrétti og fjölbreytni á vinnustöðum. Þórey hefur farið um víðan völl allt frá fyrirsætubransanum yfir í aktívisma, pólitík og ráðgjafastörf. Hún sagði mér frá sinni vegferð og hvernig jafnrétti og fjölbreytni varð að rauða þræðinum í hennar leik og starfi.

     

    Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi.

    36 min
  • 26. NETÖRYGGI: HIÐ FULLKOMNA TÆKIFÆRI TIL AÐ GERA ÓLÖGLEGA HLUTI Á LÖGLEGAN HÁTT – Guðrún Valdís Jónsdóttir, upplýsingaöryggisstjóri og öryggisráðgjafi hjá Syndis

    Guðrún Valdís Jónsdóttir er upplýsingaöryggisstjóri og öryggisráðgjafi hjá tölvuöryggisfyrirtækinu Syndis. Hún er með gráðu í tölvunarfræði frá Princeton og hefur starfað við öryggisprófanir bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi auk þess að vera virk í félagsstarfi kvenna í atvinnulífinu. Guðrún sagði mér frá sinni vegferð, hvernig hún byggði upp tengslanet á Íslandi eftir nám í Bandaríkjunum og hvernig það væri að starfa sem „góður hakkari“.

     

    Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi.

    25 min
  • 25. ÞVÍ FJÖLBREYTTARI, ÞVÍ BETRI - Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica

    Fida Abu Libdeh er framkvæmdastjóri og stofnandi Geosilica sem framleiðir náttúruleg fæðubótarefni í vökvaformi sem unnin eru úr steinefnum úr jarðhitasvæðum Íslands. Fida kemur upprunalega frá Palestínu, er með meistarapróf í  umhverfis- og orkutæknifræði og hefur undanfarin áratug byggt fyrirtækið sitt frá grunni ásamt því að vera áberandi í nýsköpunarumhverfinu á Íslandi. Við Fida ræddum um hennar vegferð, hvernig hún byggði sitt tengslanet á Íslandi sem innflytjandi og muninn á fjölbreytni, inngildingu og jafnrétti.

    Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi.

    25 min
  • 24. ÞAÐ ER SVO GAMAN AÐ STARFA Á ÞESSUM VETTVANGI – Soffía Kristín, Product Manager fyrir Paxflow hjá Origo og stjórnarformaður KLAK

    Soffía Kristín Þórðardóttir er Product Manager fyrir Paxflow hjá Origo og stjórnarformaður KLAK. Hún hætti í læknisfræði til þess að vinna í tækni- og nýsköpunarheiminum og fá að „föndra í vinnunni“. Soffía sagði mér frá sinni vegferð, hennar bestu ráðum til frumkvöðla og hvernig nýsköpun á líka heima í rótgrónum fyrirtækjum eins og Origo.

    Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi.

    32 min
  • 23. IF SOMEONE ELSE HAS DONE IT, WELL, I CAN DO IT! – Renata Bade Barajas, CEO and Co-founder of Greenbytes

    This is the first time I am publishing an episode in English and it is with a good reason. My guest is Renata Bade Barajas, CEO and co-founder of Greenbytes. Renata is originally from Mexico, her parents being Mexican and German, and she has lived, learned and worked around the globe. She told me about her journey, how Greenbytes is working towards solving foodwaste and how the startup has secured over 1M dollars in funding.

     

    This is the episode: „If someone else has done it, well, I can do it!“ With Renata Bade Barajas.

     

    The podcast is sponsored by Origo and Framvís.

    33 min
  • 22. ÞAÐ ER ALLTAF PLÁSS FYRIR ÞIG Í NÝSKÖPUNARSENUNNI - Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK

    Kristín Soffía Jónsdóttir er framkvæmdastjóri KLAK sem styður við frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi með ýmsum hröðlum, prógrömmum, viðburðum og fleiru. Kristín sagði mér frá sinni vegferð úr pólitík yfir í nýsköpun, stemmingunni hjá KLAK, mikilvægi inngildingar í nýsköpunarheiminum og deildi einnig frábærum ráðum fyrir frumkvöðla.

     

    Þetta er þátturinn „það er alltaf pláss fyrir þig í nýsköpunarsenunni“ með Kristínu Soffíu.

     

    Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi.

    28 min
  • 21. VIÐ ERUM AÐ HJÁLPA HUGMYNDUM AÐ FLJÚGA - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Íslands. Hún er ung kona sem hefur sannarlega sett sitt mark á íslensk stjórnmál á undanförnum árum og vinnur nú að því að byggja glænýtt ráðuneyti með nýrri nálgun og áherslum. Áslaug ræddi við mig um sína vegferð, mikilvægi fjölbreytileikans og forgangsröðunar og hvað það er mikilvægt að sækjast eftir tækifærunum og láta það ekki á sig fá þótt manni mistakist.

     

    Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi.

    35 min

About Konur í nýsköpun

From the publisher's feed

Alma Dóra Ríkarðsdóttir ræðir við konur í nýsköpun um nýsköpunarumhverfið á Íslandi, jöfn tækifæri, fjölbreytni og valdeflingu kvenna til nýsköpunar. Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís.