
Sign up to save your podcasts
Or


Þátturinn er í boði World Class og Reykjavik Foto! Í þættinum förum við yfir hvað hlustendum finnst einkenna góða sálfræðinga ásamt því að ræða hvaða rannsóknir sýna og okkar eigin reynslu á meðferðarvinnu.
Þátturinn er í boði World Class! Brot úr þætti nr 40. Anna Sigga - Kulnun (burn out). Í klippunni er talað um hvort þarf að auka eða minnka virkni þegar manneskja er í kulnun og hvort veikindaleyfi sé nauðsynlegt til að ná bata. Í þættinum er talað um hópmeðferð sem er í boði á Kvíðameðferðarstöðinni.
Þátturinn er í boði World Class, Eimskip og Reykjavík Foto! Í þættinum fræðir Þorkatla okkur um hvernig hún nýtir dýr í sinni meðferðarvinnu, kosti þess og áskoranir. Þorkatla er sálfræðingur og rekur sálfræðistofuna Hlöðuloftið í Hafnarfirði en veitir líka viðtöl á Lífsgæðasetrinu St. Jó.
Þátturinn er í boði World Class, Eimskip og Reykjavík Foto! Í þættinum deilir Villi reynslunni sinni af þunglyndi og kvíða. Við förum yfir æskuna, flutning til Íslands, höfnun frá LHÍ, að fara til sálfræðings í fyrsta skipti og hvaða verkfæri hann nýtir sér í dag.
Þátturinn er í boði World Class, Eimskips og Reykjavík Foto! Hvað eiga trigger warnings, hawthorne effect, að vera áhugaverður í samtali og rafstuð sameiginlegt? Að vera topic í þessum svakalega rannsóknarþætti!
Þátturinn er í boði World Class, Eimskips og Reykjavík Foto. Engilbert Sigurðsson, geðlæknir og prófessor í geðlæknisfræðum mætti til okkar og fór yfir skilgreininguna á þunglyndi, orsök og algengi þess. Engilbert fræðir okkur einnig um helstu meðferðir við þunglyndi, ásamt því að fara yfir nýjar meðferðir á borð við segulörvun, psilocybin og ketamín nefúða.
Klippan er úr þætti 9. Kristjana Þórarinsdóttir - Hvaða áhrif hafa áföll á okkur? Í klippunni fer Kristjana yfir hvernig hugrof lýsir sér, af hverju heilinn okkar bregst við aðstæðum með því að fara yfir hugrof og hvernig hugrof skýrir ákveðin viðbrögð í hættulegum aðstæðum.
Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Í þættinum förum við yfir sögu hugtaksins taugaáfalls, hvaða einkenni fólk lýsir sem taugaáfalli og sálfræðilegar skýringar þeirra.
Þátturinn er í boði World Class og Eimskip. Daðey Albertsdóttir, sálfræðingur og Ásgerður Arna Sófusdóttir, hjúkrunarfræðingur á Geðheilsumiðstöð barna komu til okkar í spjall. Í þættinum fjöllum við um hvernig streita birtist í foreldrahlutverkinu og af hverju, spennustig foreldra, áreitastjórnun og önnur gagnleg verkfæri.
Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Andrés er sálfræðingur og einn af eigendum Sálfræðistofunnar á Höfðabakka. Hann rekur einnig úrræðið Heimilisfriður sem er meðferðarúrræði gerenda heimilisofbeldis. Í þættinum ræðum við um mismunandi tegundir ofbeldis, hvernig "ofbeldishringur" verður til, rauð flögg og það sem einkennir oft gerendur heimilisofbeldis og hvað er gert í úrræðinu Heimilisfrið.
From the publisher's feed

36 Listeners

14 Listeners