Kvíðakastið

Kvíðakastið

Download on the App Store

Kvíðakastið episodes

  • 58. Kristín Kristjánsdóttir - Sorg

    Þátturinn er í boði Eimskips og World Class! Kristín er er djákni í Grafarvogskirkju, með diplómanám í sálgæslu og handleiðslu og starfar hjá Sorgarmiðstöðinni. Í þættinum ræðum við um sorg, hvernig hún birtist, góð bjargráð við sorg, hvernig aðstandendur geta brugðist hjálplega við, að útskýra dauðann fyrir börnum og fleira.

    1 hr 31 min
  • 55. Heiðdís Snorradóttir - Næring og andleg heilsa

    Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Heiðdís er stofnandi og meðeigandi Endurnæringar og næringarfræðingur með áherslu á lýðheilsu. Hún sérhæfir sig í að hjálpa einstaklingum að byggja upp heilbrigt sambandi við mat. Í þessum þætti fræðir Heiðdís okkur m.a. um svengdarvitund, emotional eating, matarkvíða hjá börnum og hvernig greiningar eins og ADHD og einhverfa geta haft áhrif á matarinntöku.

    1 hr 8 min
  • 54. Að setja mörk

    Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Í þættinum ræðum við um af hverju er mikilvægt að setja mörk, hvernig við setjum mörk, hvaða erfiðleika geta komið í kjölfarið af því að setja mörk eða ekki að setja mörk og förum yfir og hvað við eigum að gera þegar aðrir virða ekki mörkin sem við setjum.

    1 hr 16 min
  • 53. Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson - Hvað er incel?

    TW: Þátturinn inniheldur lýsingar um kynferðisofbeldi. Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Bjarki er doktor í stjórnmálasálfræði og starfar sem lektor við Háskólann á Bifröst. Í þættinum fræðumst við um hugtakið incel, hvernig það varð til og hvernig það hefur þróast í gegnum tíðina. Bjarki segir okkur frá afleiðingum þess að tilheyra incel og hvernig megi bera kennsl á þá sem tilheyra þeim hópi. Að lokum fer hann yfir forvarnir og meðferðarúrræði.

    48 min
  • 52. Draumar og martraðir

    Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Í þættinum förum við yfir kenningar um hvað draumar og martraðir eru og nýjustu rannsóknir á þeim, hvaða tilgangi draumar þjóna, útskýrum svefnrofalömun (e. sleep paralysis) og næturtrylling (e. night terrors) og förum yfir hvaða meðferðir eru í boði til að takast á við martraðir.

    1 hr 2 min
  • 51. Gunnlaugur Pétursson - Heilsukvíði

    Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Gunnlaugur er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni og sérhæfir sig í ýmsum kvíðaröskunum eins og þráhyggju- og árátturöskun, heilsukvíða, ofsakvíða og félagskvíða. Í þættinum ræðum við um einkenni heilsukvíða, hvernig við aðgreinum heilsukvíða frá öðrum röskunum, hvernig heilsukvíði þróast og verður að vanda og hvaða fyrstu skref er hægt að taka til að byrja að takast á við hann.

    1 hr 9 min
  • 50. Viktor Örn Margeirsson - Geðheilsa íþróttafólks

    Þátturinn er í boði World Class og Eimskips! Viktor er sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni og Heil heilsumiðstöð. Í þættinum ræðum við um mótlæti sem íþróttafólk verður oft fyrir, að takast á við gagnrýni og mistök, kulnun íþróttafólks og förum yfir verkfæri til að stuðla að góðri geðheilsu.

    Hægt er að hafa samband við Viktor í gegnum netfangið [email protected]

    1 hr 23 min
  • 49. Gleðiskruddurnar - Jákvæð sálfræði og gleðiverkfæri

    Þátturinn er í boði World Class og Eimskip! Yrja og Marit eru á bakvið Gleðiskrudduna sem var lokaverkefnið þeirra í diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði vorið 2020. Í þættinum ræðum við um jákvæða sálfræði og hvernig nýta má hana í vinnu með börnum. Þá ræðum við gleðiverkfærin sem m.a. snúa að styrkleikum, núvitund og að sýna sjálfum sér sjálfsvinsemd.

    1 hr 17 min

About Kvíðakastið

From the publisher's feed

Sálfræðingar spjalla saman um málefni tengd geðheilsu. Þáttastjórnendur eru Katrín Mjöll, Nína Björg og Sturla Brynjólfsson sálfræðingar á Kvíðameðferðarstöðinni og Litlu Kvíðameðferðarstöðinni.

More shows like Kvíðakastið

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners