Kynstrin öll

Kynstrin öll

Download on the App Store

Kynstrin öll episodes

  • Hafrún Elísa Sigurðardóttir
    Heimilislausar konur og aðrar konur í vímuefnaneyslu eru jaðarsettur hópur sem mætir miklum fordómum í íslensku samfélagi. Þær standa höllum fæti þegar þær verða fyrir ofbeldi og standa frammi fyrir því að þurfa að leita aðstoðar hjá lögreglunni. Aðferðir þeirra til að eiga fyrir næsta skammti eru oft fordæmdar og konur í vímuefnaneyslu eru gagnrýndar harðlega fyrir að geta ekki séð um börn sín. Hafrún Elísa Sigurðardóttir, sérfræðingur í skaðaminnkun hjá Rauða krossi Íslands, varð heltekin af málaflokki þessa jaðarsetta hóps þegar hún hóf sjálfboðaliðastörf í Konukoti árið 2017. Hún er gestur Kynstranna alla í dag.
    40 min
  • Randi Stebbins
    Konur af erlendum uppruna eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu þegar þær verða fyrir heimilisofbeldi hér á landi. Randi Stebbins lögfræðingur hefur rannsakað hvernig kerfið tekur við konum af erlendum uppruna sem leita sér hjálpar og hefur komist að því að "íslenska leiðin" sé einstrengisleg og ósveigjanleg. Kerfið mæti ekki konunum með þær lausnir sem þær sumar hverjar óska eftir og það beri við að Íslendingar hlusti ekki á aðrar raddir en þær sem tala fyrir hinni formlegu réttarfarslegu leið í meðferð heimilisofbeldis.
    40 min
  • Bjarni Snæbjörnsson
    Gestur þáttarins er Bjarni Snæbjörnsson leikari sem þessa dagana sýnir verkið Góðan daginn faggi fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúskjallaranum. Í viðtalinu ræðir hann um það þegar hann áttaði sig á því að hann væri fullur af sjálfsfyrirlitningu og skömm þrátt fyrir að tuttugu ár væru síðan hann væri kominn út úr skápnum sem hommi.
    38 min
  • Renata og Ari
    Þátturinn er að þessu sinni helgaður baráttu fólks sem stundar kynlífsvinnu fyrir afglæpavæðingu starfs síns. Innreið vefsíðunnar OnlyFans á íslenskan markað hefur, bara á þessu ári, haft mikil áhrif á umræðuna um framleiðslu klámefnis og tæknin virðist að einhverju leyti hafa tekið völdin úr höndum moldríkra framleiðenda og fært þau til fólksins sem nú framleiðir, leikstýrir og leikur sjálft í efninu á sinni prívat síðu. Samhliða þessari umræðu verður æ háværara ákall um að taka upp umræðuna um lagaumhverfi kynlífsvinnu og breyta löggjöfinni í átt sem sumum þykir manneskjulegri, öruggari og heillavænlegri.
    Gestir þáttarins eru Renata Arnórsdóttir og Ari.
    40 min
  • Erna Kristín Stefánsdóttir
    Gestur þáttarins er Erna Kristín Stefánsdóttir guðfræðingur og aktivisti fyrir líkamsvirðingu, sem berst gegn fitufordómum. Í þættinum er fjallað um feminísma innan Þjóðkirkjunnar og hugmyndir Ernu um túlkun á trúnni sem hún aðhyllist. Þá er talað um aðgerðir Ernu gegn fitufordómum og fyrir sjálfsást en hreyfingu sem kennir sig við líkamsvirðingu hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum.
    40 min
  • Hanna Björg Vilhjálmsdóttir
    Í þættinum ræðir Hanna Björg Vilhjálmsdóttir um kynhlutverkin á æskuheimili sínu í Keflavík, sársaukann sem hefði mátt spara með sterkari sjálfsmynd og sína skoðun á næstu skrefum í storminum sem nú geisar í kringum KSÍ
    40 min

About Kynstrin öll

From the publisher's feed

Heimurinn er að breytast hratt og kynslóðin sem nú vex úr grasi sér eitt og annað athugavert við stöðu kynjanna. Í þættinum er rætt við skemmtilegt fólk um feminísma, kynjatvíhyggju og kynrænt…