Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík

Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík

Download on the App Store

Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík episodes

  • El Normale um tímabilið hingað til og allt annað

    Óskar Már Alfreðsson, El Normale, Domusnovakóngurinn og hvaðeina, er maðurinn sem mætti í spjall við þá Snorra og Hannes um stöðuna í deildinni, frammistöðu liðsins og umhverfi félagsins fyrir bikarleikinn gegn Val á Hlíðarenda. Óskar er ekki vanur að halda aftur af sér og skemmst er frá því að segja að þetta var snarp en skemmtilegt spjall. Njótið vel. 

    46 min
  • Pepsi-Max Pre-season spjall við Sigga

    Það er komið að hinu árlega spjalli við aðalþjálfara Leiknis sem blessunarlega er Siggi Höskulds. Þegar 3 dagar eru í fyrsta leik í Pepsi-Max settist hann niður með Snorra og svaraði nokkrum spurningum um hópinn, stemninguna, taktíkina og annað slíkt. Það er skemmst frá því að segja að okkar maður er klár í bátana og tilbúinn að sokka þá sem spá liðinu umsvifalausu falli niður í Lengjudeild á ný. 

    #StoltBreiðholts
    #HverfiðKallar
    #SockTheWorld

    33 min
  • Pepsi-Max leikmannahópurinn rýndur: Miðja og Sókn

    Þeir Juarez og Agon héldu áfram að greina hópinn með Snorra og kláruðu miðju og sókn þar sem ýmis umræðuefni komu upp eins og við var að búast. Hér eru leikmennirnir sem til tals komu. Það var bara Bandaríkjamaðurinn Máni Austmann sem skilinn var eftir útundan enda vitum við ekkert hvenær má búast við honum til baka úr NCAA ævintýrinu. 

    Emil Berger    1:28
    Danni Finns    8:05
    Vélin Ernir Bjarna    14:10
    Daði Bærings    17:25
    Árni Elvar  19:55
    Octavio   23:40
    Davíð Júlían   30:30
    Shkelzen Veseli   33:25
    Róbert Quental   35:10

    Manga   37:35
    Sólon   43:35
    Gústi   47:38
    Sævar Atli    52:50

    1 hr 4 min
  • Pepsi-Max leikmannahópurinn rýndur: Vörnin
    Þeir Juarez og Agon slógust í hóp með Snorra til að ræða allan leikmannahópinn eins og venja er orðin fyrir byrjuna tímabils. Þessir ungu menn eru nýbúnir með 2. flokkinn og spila báðir fyrir KB í sumar en þeir höfuð sitthvað að segja um þá leikmenn sem Siggi leiðir inn í bardagann í sumar. Við byrjuðum á að ræða markverði og vörn og eiga þeir þennan þátt. 
    Fyrir þá sem þykjast þekkja ákveðna leikmenn og þurfa ekkert að fræðast um þá, þá geta þeir skippað yfir því hér að neðan er listi yfir þá leikmenn sem ræddir voru í þessu Ljónavarpi og hvenær umfjöllun um þá hefst: 

    Markið:
    Guy Smit   3:10
    Viktor Freyr    8:20
    Bjarki Arnaldar   10:05

    Miðverðir: 
    Bjarki Aðalsteins 12:57
    Binni Hlö   16:30
    Loftur 21:15
    Dagur     24:18
    Gyrðir    27:20
    Ósvald    34:35
    Arnór Ingi   39:15
    Birgir Baldvinsson   43:15
    Birkir Björns   45:40
    Andi Hoti   47:05

    #StoltBreiðholts
    #HverfiðKallar

    53 min
  • Helgi Óttar um framkvæmdastjóraárin sín 2017-2020

    Helgi Óttar Hafsteinsson tók við framkvæmdastjórastól félagsins af Dodda árið 2017, þegar félagið var enn að hrista af sér fallið úr Pepsideildinni 2015. Hann skilaði félaginu svo af sér í haust með liðið nýkomið aftur upp í efstu deild og bókhaldið réttum megin við línuna. Það er stutta sagan. Helgi settist niður með Snorra til að fara yfir söguna í aðeins lengra máli. Hann tjáir sig um hlutverk Leiknis í hverfinu, ársreikninginn og hvernig hann sér sumarið fyrir sér auðvitað. 

    1 hr 14 min
  • Emil Berger um Covid og tímabilið framundan-Þáttur 36

    Daginn áður en eðlilegar æfingar voru leyfðar á ný og tilkynnt var að mótið myndi byrja 2 vikum síðar, settist Emil Berger, sænski miðjumaðurinn okkar, með Snorra í Austurbergi að ræða flókinn vetur að baki og spekúlera hvernig það kemur til með að hafa áhrif á tímabilið sem framundan er. Hann ræddi feril sinn, búningsklefann og margt fleira í stuttu og laggóðu innliti. 

    39 min
  • Davíð Snorri um 2015 og núið: "Þetta var rosalegt!"

    Í seinni hluta spjallsins okkar við Davíð Snorra Jónasson, fer okkar eini sanni U-21 árs landsliðsþjálfari yfir ævintýrið í Pepsideildinni 2015, undirbúninginn og eftirmálana ásamt því að ræða aðeins um liðið okkar eins og það er í dag. 
    Ótrúlega skemmtileg yfirsýn frá ómetanlegum tíma í sögu félagsins. Takk Davíð Snorri! 

    1 hr 10 min
  • Davíð Snorri um 2012-2014: "Við möxuðum gjörsamlega hvern einasta blóðdropa"

    Davíð Snorri Jónasson þarf vart að kynna fyrir Leiknisfólki sem er meira en tvívetra. Hann og Freyr Alexandersson létu drauma allra úr hverfinu rætast þegar þeir keyrðu félagið upp í deild þeirra efstu í fyrsta sinn í sögu félagsins haustið 2014. Þessi meistari settist niður með Hannesi og Snorra og opnaði minningarnar um hvernig þeir fóru að þessu. Í fyrri hluta spjallsins ræddi hann uppeldið sitt hjá félaginu og aðdragandann að því að þeir félagar náðu upp í efstu deild. 

    55 min
  • Uppgjör Seinni Hluti: Miðja og sókn

    Hópurinn kláraður í seinni hluta Ljónavarpsins: 

    0:15 Ernir "Vélin" Bjarnason
    6:00 Árni Elvar og Daði Bærings
    12:30 Danni Finns
    19:45 Máni Austmann
    26:35 Vuk Oskar Dimitrijevic
    37:00 Sævar Atli
    50:00 Sólon Breki
    58:05 Arnór Ingi og Ágúst Leó

    1 hr 6 min
  • Uppgjör Fyrsti Hluti: Vörnin og unglingarnir

    Halldór, Hannes, Ósi og Snorri tóku gott kvöld saman í vikunni þar sem þeir ræddu frammistöðu og útlit fyrir alla leikmenn sem komu við sögu meistararflokks í Lengjudeildinni í ár, og rúmlega það. 

    5:50 Guy Smith
    16:25 Viktor Freyr
    22:05 Bjarki Aðal
    28:40 Binni Hlö
    34:20 Dagur Austmann
    38:35 Gyrðir Hrafn
    47:10 Ósvald
    53:00 Birgir Bald
    54:10 Birkir Björns
    56:00 Unglingarnir: Shkelzen, Róbert Vattnes, Andi Hoti og Jamal Klængur

    2 hlutar í viðbót koma á næstu dögum. 

    1 hr 6 min

About Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík

From the publisher's feed

Leiknir í Reykjavík er okkar félag og Leiknisljónavarpið er staðurinn þar sem hægt er að ræða málefni félagsins hispurslaust og jafnvel heyra í leikmönnum og starfsmönnum félagsins.