
Sign up to save your podcasts
Or


Þeir Ágúst Leó, Arnóri Ingi og Birgir Bald komu í heimsókn daginn eftir rústið gegn nöfnum okkar á Fáskrúðsfirði. Þeir ræddu hlutverk sín í liðinu, baráttuna um Pepsi-Max sætið og margt annað skemmtilegt við þá Hannes og Snorra.
Sólon Breki Leifsson er aðeins búinn að vera hjá félaginu í tæp 3 ár en er löngu búinn að festa sig í sessi sem Leiknismaður mikill og hann hefur skorað ófá mörkin á þessum tíma. Ekkert fallegra en Beckham-fleygurinn gegn ÍBV bara núna um daginn.
Sólon ræddi við Hannes og Snorra um boltann, tímabilið hingað til og auðvitað rappferilinn margumtalaða.
Fyrir leikinn við ÍBV í Vestmannaeyjum fengum við Guy Smit í spjall í Ljónavarpinu. Hann talaði hispurslaust um fótboltann um víða veröld og líka það sem hann hefur séð af honum á Íslandi. Í aðdraganda leiksins við Eyjamenn bar hin margumtalaða Gary Martin á góma og hans orðspor hafði ekkert farið framhjá Hollendingnum okkar. Hins vegar þekkir hann kannski ekki eins vel og hinn almenni Íslendingur hversu auðveldlega Englendingurinn knái getur náð að nýta sér minnstu ummæli andstæðinga til að mótivera sig.
Því var það okkar ákvörðun í Ljónavarpinu að halda eftir stuttum ummælum sem Smitarinn hafði um sóknarmanninn svo hann gæti ekki fundið sér neitt til að berja sér á brjósti um og mæta dýrvitlaus inn í teiginn hans Guy.
Nú þegar leiknum er lokið með sigri okkar manna og núll mörkum frá þeirra besta manni, þá birtum við þennan stutta bút með góðri samvisku um að það kostar okkur ekki nein stig. Allavega ekki þetta sumarið.
Guy Smit er hollenski happafengurinn okkar sem stendur milli stangana í sumar. Hann hefur á sinn einstaka hátt náð að fylla stóra hanska sem Eyjó skildi eftir sig í haust. Hann ræddi við Hannes og Snorra fyrir ferðina til Heimaeyjar um uppeldið í Hollandi, stemninguna í Breiðholti og margt margt fleira.
-------------------------------------
Guy Smit is our Dutch goalkeeper who joined us shortly before the season kicked off. He has filled the legendary gloves of Eyjó Tómasson in impressive fashion right away. He stopped by to chat with Hannes and Snorri ahead of the clash with unbeaten ÍBV in the Westmann Islands this week.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, meistaraflokksþjálfari fór yfir fyrri helming Lengjudeildarinnar með þeim Hannesi og Snorra í góðu spjalli um sálfræðistríð þjálfarastarfsins, dvölina á toppnum, faraldurinn og það sem framundan er.
Leon Einar Pétursson er á sínu fyrsta ári sem þjálfari 2. flokks Leiknis. Hann hefur skemmtilega sýn á unglingastarfið og hlutverk félagsins okkar í samfélaginu. Hann mætti í skemmtilegt spjall við Snorra ásamt fyrirliða sínum Marko Zivkovic. Fyrsta flokks menn þar á ferð. Þið viljið ekki missa af þessu.
Tvíburunum úr Garðabæ, líður vel í Leikni og hafa byrjað tímabilið óaðfinnanlega. Þeir mættu í skemmtilegt spjall um stemninguna í Leikni, uppeldið í boltanum og margt fleira.
Halldór, Óskar og Snorri tóku svo stóran Stuðningsmannaspjallpakka enda 7 keppnisleikir nú þegar að baki í góðri törn áður en Magnamenn koma í heimsókn næstkomandi laugardag.
#HverfiðKallar
#StoltBreiðholts
#OperationPepsiMax
#DagurAustmann
#MániAustmann
Örn Þór Karlsson settist niður með Snorra, annað árið í röð, og hver einasti leikmaður Meistaraflokks (og rúmlega það) var ræddur í aðdraganda fyrsta leiks tímabilsins.
Fyrir þá sem geta ekki beðið eftir að heyra um sinn uppáhaldsleikmann þá er tímaröðunin ca svona:
2:15 Guy Smit
3:40 Viktor Freyr-Markvörður
4:25 Atli Jónasson-Markvörður
6:15 Ósvald Jarl-Bakvörður
7:30 Ernir Freyr
8:50 Hjalti Sigurðsson
10:30 Jamal og Róbert Vattnes
11:20 Birkir Björnsson
12:05 Bjarki Aðal
14:55 Dagur Austmann
16:45 Gyrðir Hrafn
18:10 Binni Hlö
21:00 Ernir Bjarnason
22:10 Daði Bærings
23:50 Árni Elvar
25:05 Danni Finns
28:55 Máni Austmann
31:55 Vuk Óskar
36:40 Sólon Breki
39:05 Sævar Atli
----------------------
41:50 Shkelzen Veseli
42:50 Andi Hoti
44:35 Sævin Alexander
47:00 Arnór Ingi Kristinsson
#StoltBreiðholts
#OperationPepsiMax
Boltinn er farinn að rúlla á Domusnovavellinum og stutt í að stigin hrannist inn. Hannes, Halldór og Snorri fengu að setjast niður með manninum sem togar í alla spotta í Meistaraflokki, Sigurði Heiðari Höskuldssyni, sem svaraði öllum þeirra spurningum og skoraði þá jafnvel á hólm ásamt öllum Leiknisljónum. Njótið.
Leikmaður númer 145.364 hjá KSÍ, færeyskur meistari, bikarmeistari og meistari yfir höfuð, Brynjar Hlöðversson, settist niður með Snorra á köldu febrúarkvöldi að ræða endurkomuna heim í Leikni, sumarið framundan og auðvitað ljúfar minningar á geggjuðum áratug þar sem hann var í aðalhlutverki á miðjunni.
From the publisher's feed