
Sign up to save your podcasts
Or


"Vélin" Ernir Bjarna settist niður með þeim Halldóri og Snorra í Ljónavarpinu að ræða tímabilið hingað til, það sem framundan er og auðvitað fortíðina í Breiðablik, Vestra og meira að segja Roy Keane.
Halldór og Snorri ræddu svo það sem á daga Leiknis hefur drifið síðan síðast í Ljónaspjallinu. Góða skemmtun kæru Leiknismenn og konur!
Í tólfta þætti Ljónavarpsins fengu þeir Árni Þór og Snorri formann Leiknis, Oscar Clausen, í langt og gott spjall um lífið í Breiðholti, innan Leiknis og harkið að sinna trúnaðarstörfum fyrir félagið. Við fengum mikið skýrari mynd af því sem þarft til að svona klúbbur gangi upp og vonandi þið hlustendur líka.
Áfram LEIKNIR!
Uppaldir eðalmenn mættu í búrið að ræða liðið, tilveruna, stórleikinn við Gróttu og í tilfelli Daða, dvölina í Bandaríkjunum sem heldur áfram eftir Víkingsleikinn að tveimur viknum liðnum. Árni Þór og Snorri grilluðu drengina létt og höfðu gaman að. Vonandi eruð þið sama sinnis.
Elvar Geir Magnússon, fótboltasérfræðingur af hæstu gráðu, fæddur Leiknismaður og nú stjórnarmaður hjá félaginu, kom í heimsókn í Ljónavarpið og hjálpaði Halldóri og Snorra að fara yfir fyrri helming leiktímabilsins, ræða stöðuna í dag og hvaða vonir menn geta bundið við næstu tvo mánuði þar sem Siggi tekur liðið áfram inn í haustið og næsta sumar.
Nýráðinn aðalþjálfari meistaraflokks, Sigurður Heiðar Höskuldsson, gaf sér tíma með þeim Halldóri Marteins og Snorra Vals til að fara yfir fyrri helming leiktímabilsins, brottför Stebba Gísla, framtíðina og allt hitt sem Leiknisfólk gæti mögulega viljað fá að vita um okkar mann.
Í áttunda þætti Ljónavarpsins mætti eini útlendingur liðsins, Spánverjinn Nacho Heras, í spjall við þá Snorra og Ósa Kóng. Hann fór um víðan völl frá æsku sinni í Madrídarborg til hörkunnar í Breiðholtinu. Einstaklega skemmtilegur karakter í hópnum okkar.
Svo ræddu Snorri og Ósi um gengi liðsins hingað til í Ljónaspjallinu sem hefst á 56.mínútu upptökunnar. Góða skemmtun og Áfram Leiknir!
Í sjöunda þætti Ljónavarpsins komu KR-ingarnir þrír í heimsókn til Snorra og Halldórs. Þeir Gyrðir Hrafn, Hjalti og Stefán Árni ræddu muninn á Frostaskjóli og Austurberginu, tímabilið hingað til, bestu stöður sínar og margt fleira. Svo mætti Egill Þór Jónsson í stuðningsmannaspjallið og ræddi við Snorra um félagsfræðina á bakvið liðið sem fór í Pepsideild sumarið 2014 en hann gerði BA ritgerð um nákvæmlega það.
Við gripum upptökugræjurnar með okkur á fyrsta leik Leiknis í Inkassodeildinni 2019. Upphitun hófst tveimur tímum fyrir leik og var góð stemning í Leiknishúsinu. Ekki minnkaði hún þegar leikurinn hófst og okkar menn spiluðu glimrandi fótboltaleik.
Árni Þór, Halldór, Ósi og Snorri sáu um þáttinn.
Gestir: Þorsteinn Þormóðsson, formaður Magna, og Árni Elvar Árnason, leikmaður Leiknis.
Örn Karlsson eða Össi, eins og flestir þekkja hann, er þjálfari hjá yngri flokkum Leiknis og KB. Hann kannast allir við sem koma einhvern tíma við í Leiknishúsi. Hann þekkir betur til en flestir hjá félaginu og fór yfir málin með strákunum í aðdraganda fyrsta leiksins í Inkasso. Össi svaraði alls konar spurningum um leikmannamál, stefnu félagsins og margt annað. Nú mega jól...ég meina Inkasso koma.
Að þessu sinni hlýddu þeir Árni Þór og Snorri á þau Gæja og Sirrý um meistaraflokk kvenna auk þess sem þeir fengu Elvar Geir í spjall eftir Bikartapið við Fjölni á miðvikudagskvöldið.
From the publisher's feed