Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík

Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík

Download on the App Store

Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík episodes

  • Þriðji þáttur - Ingólfur Sigurðsson í viðtali

    Hér er þriðji þáttur Ljónavarpsins.

    Ingólfur Sigurðsson kíkti til okkar í gott viðtal þar sem hann ræddi meðal annars um ferilinn sinn, geðheilsumál, stóra rauðaspjaldsmálið, hvað honum finnst um Leikni, sýn hans á liðið fyrir sumarið og hvers vegna hann fór ekki til Spánar í æfingaferð með liðinu.

    Halldór Marteinsson og Snorri Valsson tóku svo Ljónaspjall í kjölfarið þar sem þeir fóru yfir það helsta sem var að frétta af karla- og kvennaliði Leiknis, ræddu stuðningsmannapælingar fyrir sumarið, fóru yfir nýjan fídus á heimasíðu Leiknisljónanna, nýjan samning sem Leiknir gerði um bensínafslátt og ýmislegt fleira.

    Umsjón: Halldór Marteinsson og Snorri Valsson
    Gestur: Ingólfur Sigurðsson

    Heimasíða Leiknisljónanna er leiknisljonin.net
    Netfangið okkar er [email protected]

    1 hr 17 min
  • Annar þáttur - Eyjólfur Tómasson í viðtali

    Í öðrum þætti Ljónavarpsins fengum við fyrirliðann sjálfann í langt og gott viðtal. Eyjó fer þar yfir ferilinn, lífið í Breiðholti og talar meðal annars um Freysa, Davíð, Pepsíævintýrið, Sigurstein Gíslason, stöðu liðsins og verkefnin sem hann er spenntastur fyrir.

    Í Ljónaspjallinu ræddu Árni Þór, Halldór Marteins og Snorri Valsson um nýja heimasíðu Leiknisljónanna, nýjan leikmann liðsins, ferð Árna á leik með kvennaliði Leiknis, rauða spjaldið sem allir hafa verið að ræða auk þess sem við fórum í lögfræðihorn Snorra.

    Umsjón með þættinum: Árni Þór, Halldór Marteins, Snorri Valsson
    Gestur: Eyjólfur Tómasson
    Heimasíða: www.leiknisljonin.net
    Netfang: [email protected]

    2 hr 1 min
  • Fyrsti þáttur - Stebbi Gísla í viðtali

    Hér er það komið, stuðningsmannahlaðvarp Leiknisljónanna.

    Í viðtali þessa fyrsta þáttar kemur þjálfari meistaraflokks karla, Stefán Gíslason, og ræðir við okkur um starfið, liðið og verkefnin framundan. Og auðvitað Markið.

    Í Ljónaspjallinu fara svo Halldór Marteinsson og Árni Þór Gunnarsson aðeins yfir hugmyndina í kringum þáttinn og hvað við stefnum á að gera á þessum vettvangi.

    Netfangið okkar er: [email protected] 

    1 hr 15 min

About Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík

From the publisher's feed

Leiknir í Reykjavík er okkar félag og Leiknisljónavarpið er staðurinn þar sem hægt er að ræða málefni félagsins hispurslaust og jafnvel heyra í leikmönnum og starfsmönnum félagsins.