Lélega Fantasy Podcastið

Lélega Fantasy Podcastið

By Útvarp 101ComedySports
Download on the App Store

Lélega Fantasy Podcastið episodes

  • Gameweek 9 - Geinar Geimgengill

    Uppstokkunarspjaldið sprakk í andlitið á keisaranum, öðru nafni Gulla Femm. Riðar veldið til falls eða mun það slá til baka? Leiðtogi andspyrnuhreyfingarinnar, Geinar geimgengill, hrósar happi en getur hið góða raunverulega sigrað?

    Í þætti vikunnar er rætt um Avril Lavigne, ljótustu búningana í deildinni og möguleikann á því að kúkandi belja verði besti Fantasy spilari í heimi. 

    Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    1 hr 12 min
  • Gameweek 8 - Lille Ole og Lifrapylsan

    Ömurlegasta vika leiktiðarinnar var krufin til mergjar ásamt villikorti Gulla Femm. Glæný gælunöfn litu dagsins ljós, mörg hver matartengd. Logo deildarinnar voru svo sett i listfræðilegt og menningarsögulegt samhengi. 

    Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    1 hr 8 min
  • Gameweek 7 - Varnarveggur Vigdísar Finnbogadóttur

    Það er allt á blússandi siglingu í Fantasy heiminum. Shaw er kominn á síðasta séns og þjálfarar svitna yfir því hvaða tvo af Ron, Rom og Mo þeir eigi að hafa í liðinu sínu. Er kominn tími til að wildcarda núna? Verður Pochettino rekinn eftir að hafa látið Messi leggjast á bak við varnarvegg? Hvað er fyndnasta nafnið á leikmanni í deildinni? Gummi og Pálmi gera sitt besta til að svara öllum þessum spurningum og fleirum í þætti vikunnar. 

    Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    1 hr 3 min
  • Gameweek 6 - FORELDRAFRÍ

    Það var foreldrafrí hjá strákunum því pabbi þáttarins, Ansalegi Gummi Fel, var fjarverandi vegna "veikinda." Unglingurinn (Pálmi) og litli bróðirinn (Geinar) ræddu um partý, hryllingsmyndir, og jú, Fantasy.

    Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1 

    56 min
  • Gameweek 5 - Lélega hlutabréfapodcastið með Hákoni
    Strákarnir bjóða í heimsókn. Þeir fá leikarann og Fantasy þjálfarann Hákon Jóhannesson í stúdíóið. Hákon er hefur spilað Fantasy í nokkur ár og lítur á sig sem áhættusækinn spilara. Hann er einmitt að nota Wildcardið sitt eða endurstokkunarspilið eins og Lélega fantasy podcastið kallar það. Strákarnir gefa Hákoni misléleg ráð og svara spurningum hlustenda. Einnig kynna þeir verðlaun sem hlustendur geta sótt sér ef þeir eru stigahæstir í Lélegu fantasy deildinni hverja umferð. Spennan heldur áfram í Lélega Fantasy podcastinu.
    Fylgdu okkur á Instagram (@lelegafantasy) og taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
    1 hr 13 min
  • Gameweek 4 - Votta Jehóva Wildcard
    Í löngu landsleikjahléi klæjar strákana í varirnar. Þeir geta ekki beðið eftir að útbreiða óumbeðnu visku sinni til Lélega fantasy samfélagsins. Geinar hefur á brattann að sækja eftir hræðilega viku og hefur ákveðið að nota fyrsta „chip” hlaðvarpsins: Wildcard eða Endurstokkunnarspilið. Pálmi og Gummi reyna með misjöfnum árangri að vara félaga sinn við ýmsum Fantasy gildrum sem er auðvelt að falla í þegar sú ákvörðun er tekin. Auk þess er tekið við spurningum og einkunnarorð þáttarins rædd. En auðvitað er reynt að svara stóru spurningunni, á að kaupa Ronaldo eða ekki? Allt þetta og svo miklu fleira í þætti vikunnar.
    Taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
    1 hr 8 min
  • Gameweek 3 - Wreck-It Ralphinha
    Leikvika 2 var áhugaverð að mörgu leyti, gulldrengirnir Salah og Fernandes verðlaunuðu ekki þá sem settu á þá bandið en hinsvegar kom Lukaku sterkur inn og þakkaði hugrökkum þjálfurum traustið. Liverpool tvennan Trent og Tsimikas kom vel út, þó að Fantasy-dagar þess síðarnefnda séu líklega taldir. West Ham tvíeykið Benrahma og Antonio hreinlega hættir ekki að ná inn stigum. Pálmi og Gummi ræða um vikuna og pýramídasvindl fyrir börn, hljómsveitir frá Manchester, gömul heimsmeistaramót og allskonar.
    Taktu þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1
    1 hr 11 min
  • Gameweek 2 - Bandið beint á Lukaku

    Fyrsta leikvika gekk eins og í sögu hjá Pálma og Gumma en Geinar er strax byrjaður að elta. Þolinmæði er mikilvæg dyggð í þessum leik en Geinar ætlar ekki að sitja aðgerðalaus í neðsta sætinu heldur ætlar hann að kaupa Lukaku og setja fyrirliðabandið á hann. Stór ákvörðun þar. Strákarnir ræddu um það hver sé mögulega nettasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. Spoiler alert: Það er allavegana pottþéttt ekki Phil Jones. 

    Þrír vinir hafa gríðarlega ástríðu fyrir Fantasy Premier League en eru samt ekkert sérstaklega góðir í leiknum. Þeir láta þó ekki vankunnáttu stoppa sig og bjóða þér að hlusta á léleg ráð og lélegar pælingar um FPL í hverri viku. 

    Guðmundur Einar, Guðmundur Felixson og Pálmi Freyr Hauksson eru spunaleikarar sem hafa kennt og sýnt spuna með Improv Ísland frá upphafi. Þeir eru einnig höfundar og leikarar í sketsahópnum Kanarí.  

     Þættirnir eru framleiddir í samstarfi við Útvarp 101.

    1 hr 4 min
  • Gameweek 1 - Kötturinn í marki Manchester

    Þrír vinir hafa gríðarlega ástríðu fyrir Fantasy Premier League en eru samt ekkert sérstaklega góðir í leiknum. Þeir láta þó ekki vankunnáttu stoppa sig og bjóða þér að hlusta á léleg ráð og lélegar pælingar um FPL í hverri viku. 

    Guðmundur Einar, Guðmundur Felixson og Pálmi Freyr Hauksson eru spunaleikarar sem hafa kennt og sýnt spuna með Improv Ísland frá upphafi. Þeir eru einnig höfundar og leikarar í sketsahópnum Kanarí.  

     Þættirnir eru framleiddir í samstarfi við Útvarp 101.

    1 hr 10 min

About Lélega Fantasy Podcastið

From the publisher's feed