Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Sniðgöngum Lestina!
    Mikil umræða um sniðgöngu um þessar mundir í tengslum við framferði Ísraelshers á gaza undanfarnar vikur. Stuðningsfólk Palestínu hér á landi hefur reynt að beita þrýstingi á fólk, fyrirtæki og stofnanir til að sniðganga Ísrael eða þá sem styðja árásir ísraelska hersins á Gaza. Þessi krafa nær inn á nánast öll svið samfélagsins: menntakerfið, íþróttir og menningu.
    Við tileinkum Lestina í dag hugtakinu sniðganga. Við fáum sjónarhorn frá Kristínu Sveinsdóttur, Ásgeiri Brynjari Torfasyni, Tómasi Þór Þórðarsyni, Oddnýju Eir Ævarsdóttur og Boris Grebenschikov.
    55 min
  • Ertu greindari en grunnskólabarn? rappað um þjóðarmorð, samísk tónlist
    40% fimmtán ára nem­enda á Íslandi búa ekki yfir grunn­hæfni í lesskiln­ingi. Þetta kem­ur fram í niður­stöðum úr PISA-könn­un­inni 2022 sem voru birt­ar í dag.
    Hvað er OECD? Hvað er PISA? Af hverju fengum við svona lága einkun í PISA? Og hverju er það að kenna? Og hverja erum við að bera okkur saman við og af hverju? Við fáum nokkra Rúvara til að taka PISA-prófið umrædda.
    Katrín Helga Ólafsdóttir heldur áfram að fjalla um listir og menningu nágrannaþjóða okkar á Norðurslóðum. Að þessu sinni fjallar hún um samíska tónlist.
    Við heyrum líka um vinsælasta lagið í Ísrael þessa stundina, Charbu Darbu með dúettnum Ness og Stilla. Umfjöllunarefnið er hefnd og hernaður. ?Í landi þar sem tónlistarmenn hafa yfirleitt nálgast átökin með skarpri greiningu, þá er óþægilegt að sjá þennan stríðsæsingasöng á toppi vinsældalistans,? skrifar blaðamaður ísraelska fréttamiðilsins Forward. Aðrir hafa gengið lengra og sagt það hvetja til þjóðarmorðs.
    55 min
  • Andkristur, hnignun Spotify, Valur fær loksins listamannalaun
    Friedrich Nietzsche er einhver alræmdasti hugsuður vestrænnar nútímasögu og alltaf virðast nýjar kynslóðir heillast af skrifum þessa þýska heimspekings, fólk verður heltekið. Nú á dögunum kom út íslensk þýðing á bókinni Andkristur frá árinu 1888, bók með ógnvænlegan titil, bók sem er skrifuð af knýjandi þörf, jafnvel heift gagnvart kristinni trú, en líka djúpu innsæi og mannskilningi. Andkristur er með því síðasta sem kom frá Nietzsche en aðeins nokkrum mánuðum síðar fékk hann taugaáfall, missti vitið, veiktist á geði. Sigríður Þorgeirsdóttir mætir í Lestina og ræðir um Jesú Krist og Andkrist Nietzsches.
    Við ræðum við Val Gunnarsson rithöfund sem fékk ánægjuleg skilaboð í gær, en hann fær ritlaun í fyrsta skipti, eftir einhverja tvo áratugi af ritstörfum og sjö útgefnar bækur.
    Nýlega var tilkynnt um þriðju hópuppsögnina í ár hjá Spotify, framleiðslu virtra hlaðvarpa hefur verið hætt, og greiðslumódeli tónlistarfólks hefur verið breytt. Fyrirtækið virðist nú gera allt til að byrja að skila hagnaði. Við ræðum við Árna Matthíasson um hagnaðarvon og hnignun Spotify.
    55 min
  • Audible, ættfræði, John Wilson, Ísraelsfáni á Breiðabliksvelli
    Við ræðum leik Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv við Tómas Þór Þórðarson íþróttafréttamann. Hefði Breiðablik getað sniðgengið, hætt við, neitað að keppa? Og hvaða afleiðingar hefði það haft í för með sér? Og hvenær mega íþróttir og pólitík blandast, hvenær ekki?
    Eiríkur Guðmundsson fór í heimsókn í Skerjafjörðinn árið 2018 og ræddi við Odd F. Helgason, ættfræðing. Oddur og kona hans Unnur Björg Pálsdóttir féllu frá í vikunni, til stóð að fá Odd í Lestina, en við huggum okkur við þetta viðtal sem leyndist í kistu Ríkisútvarpsins.
    Kristján vill segja upp Audible áskriftinni sinni, en getur það ekki, sama hvað hann reynir. Og Hjalti Freyr Ragnarsson, tónlistarmaður og pistlahöfundur í Lestinni hefur sérstakan áhuga á sjónvarpsþáttunum How To With John Wilson. Þættirnir koma úr smiðju Bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar HBO og eru á mörkum þess að vera vídjólist og sjónvarp.
    55 min
  • Ástir og örlög Napóleons, költmyndin Foxtrot, samísk tónlist
    Við heyrum um költ-hasarmyndina Foxtrot frá árinu 1988, en það stendur til að dusta rykið af henni í Bíó Paradís um helgina.
    Kolbeinn Rastrick fjallar um stórmynd Ridleys Scott um franska keisarann Napóleon, eina umdeildustu persónu evrópskrar sögu. Pabbar og sagnfræðinördar hafa flykkst á myndina og eru mjög mishrifnir. Það hefur verið fundið að ýmsum sagnfræðilegum rangfærslum. En Kolbeinn skemmti sér ágætlega þó að myndin væri langt því frá gallalaus.
    Katrín Helga Ólafsdóttir, tónlistarkona, hefur í vetur fjallað um tónlist og menningu nokkurra nágrannaþjóða okkar í Lestinni. Grænlenska tónlistarhefð og færeysku grasrótarsenuna. Nú er komið að menningu og tónlist Sama í norður Skandinavíu.
    55 min
  • Inn í kvikuna á Grindvíkingum, Að hugsa á íslensku
    Nú er byrjað að grafa ofan í sprungur í Grindavík, fólk er mætt til vinnu í fiskvinnslunni, bæjarbúar fá meiri tíma heima hjá sér og einhverjir eru farnir að hugsa um að jólaskreyta. Við höldum áfram að heyra hljóðdagbækur Grindvíkinga sem við höfum fylgt eftir í tæpar þrjár vikur eða alveg frá því því að bærinn var rýmdur 10. nóvember. Siggeir Ævarsson, Teresa Bangsa og Andrea Ævarsdóttir leyfa okkur að fylgjast með hversdeginum sínu.
    Fyrir fimmtíu árum birtist grein Þorsteins Gylfasonar, ?Að hugsa á íslenzku? sem þar sem hann skrifar meðal annars: ?Í fæstum orðum virðist mér eina vonin til þess að Íslendingur geti hugsað og skrifað yfirleitt vera sú að hann geti hugsað og skrifað á íslenzku.? Við ræðum við Loga Gunnarsson, prófessor í heimspeki við Háskólann í Potsdam í Þýskalandi, um þessa klassísku grein Þorsteins, um það að hugsa á íslensku, og það hvernig ensk tunga er farin að móta hugsun heimspekinga um allan heim.
    55 min
  • Rauða Serían ei meir, Kaupaekkertbúðin, skilti í iðnaðarhverfum
    Rauða serían hættir að koma út eftir 38 ár af starfsemi og 2300 titla. Rósa Vestfjörð er konan á bakvið örlagasögurnar, ástarsögurnar og sjúkrasögurnar. Við kíkjum í heimsókn til hennar í Grafarvoginn.
    Una María Magnúsdóttir, grafískur hönnuður, fer með okkur í skoðunarleiðangur um iðnaðarhverfi á Höfuðborgarsvæðinu og rýnir í skiltin með okkur.
    Og að lokum fer Kristján Guðjónsson í Kaupaekkertbúðina, þar sem allt er til sölu, og ræðir við Elínu Elísabetu Einarsdóttur og Rán Flygenring, listakonur.
    55 min
  • Íslensk andlit til sýnis, asískar goðsögur, glataðar ljósmyndir
    Kristínu Loftsdóttur mannfræðingi leiddist á safni á Kanaríeyjum þangað til hún kom auga á brjóstmyndir sem voru nokkuð kunnuglegar. Gipsafsteypur af Íslendingum og öðrum þjóðarbrotum endurspegla þá kynþáttahyggju sem var forsenda ofbeldis og rányrkju nýlenduveldavelda á 19. öld. Brjóstmyndirnar urðu kveikjan að rannsókn hennar og nýrri bók, Andlit til sýnis, sem er gefin út af Sögufélaginu.
    Við heyrum um aðra bók sem kemur út fyrir jólin. Goðsögur frá Kóreu og Japan inniheldur 10 goðsögur auk inngangs og skýringa sem setja sögurnar í samhengi við samfélag og menningu Kóreu og Japan. Við ræðum við aðstandendur bókarinnar, en ein þeirra er einmitt stödd í Suður-Kóreu við fornleifauppgröft.
    Helgi Grímur Hermannsson flytur sinn fyrsta pistil hér í Lestinni um minningar sem renna út í sjó, snjallsíma, samfélagsmiðla og ljósmyndir. ?Notkun ljósmynda á samfélagsmiðlum gerir augnablikið einnota og fljótlega ómerkilegt, miðillinn krefst þess að þú framleiðir meira. Og við njótum, eða innbyrðum öllu heldur, í einrúmi.? sagði Helgi Grímur.
    55 min
  • Sam Altman rekinn og ráðinn, Panflautuplata André 3000, Grindvíkingar
    Mörgum aðdáendum rapparans brá í brún þegar þau tóku eftir því að ný plata André 3000 innihélt einungis panflaututónlist. Davíð Roach var einn þeirra, hann rýnir í plötuna New Blue Sun.
    Við förum yfir kaosið í tækniheiminum, brottrekstur og endurráðningu Sam Altman, forstjóra gervigreindarfyrirtækisins OpenAi.
    Og að lokum heyrum við hljóðdagbækur þriggja Grindvíkinga, þeirra Teresu Bangsa, Siggeirs Ævarssonar og Andreu Ævarsdóttur.
    55 min
  • Þjóðarpúls Lóu, rapptextar sem sönnunargögn, sungið á ísl-ensku
    Það er dimmt og það er ömurlegt veður. Það er kominn vetur og skammdegi. Lóa fer í Smáralindina og tekur púlsinn á þjóðinni. Er þunglyndið að hellast yfir fólk, eða er það bara farið að hlakka til jólanna?
    Í dómssal í Atlanta í Georgíuríki Bandaríkjanna er nú réttað yfir einum þekktasta rappara heims. 31 árs grammíverðlaunahafanum og íslandsvininum Yung Thug. Hann er kærður fyrir að standa fyrir skipulagðri glæpastarfsemi í glæpagenginu Young Slime Life. Rapparinn á að hafa notað metsölutónlist sína, útgáfufyrirtæki og samfélagsmiðla til að auglýsa gengið - sem er sakað um ótal glæpi, meðal annars þjófnað, ofbeldi, skotárásir, morð. Nú er tekist á hvort og þá hvernig megi nota textabrot úr lögum rapparans sem sönnunargögn í málinu. Við pælum í rapplögum og lögfræði.
    Sævar Andri Sigurðarson veltir fyrir sér af hverju við Íslendingar, sem skiljum og elskum að tala ensku, sækjumst ennþá frekar í tónlist á íslensku frekar en ensku. Af hverju listamenn sem notast við íslensku snerta frekar við hjartastrengjum almennings.
    Við spilum svo nýja and-sjókvíaeldisins frá Björk og Rosaliu.
    55 min