Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Hugtakið þjóðarmorð, hárkolla kjörin forseti, ný plata frá Ex.Girls
    Javier Milei, el loco, el peluca, klikkhausinn og hárkollan, öfga-hægrimaður sem er nýliði í Argentínskum stjórnmálum bar sigur úr býtum í forsetakosningum í vikunni. Felix Woelflin, Argentínumaður búsettur á Íslandi, ræddi þessar niðurstöður við okkur.
    Davíð Roach rýnir í nýja plötu hljómsveitarinnar Ex.Girls, Verk.
    Stöðvið þjóðarmorðin, er ákall stuðningsfólks Palestínu. Við ræddum þetta hugtak, þjóðarmorð, við hernaðarsagnfræðinginn Erling Erlingsson.
    55 min
  • Afsagnir vegna Gaza, Grindavík í biðstöðu, best skrifaða hjónarifrildi
    Við rýnum í myndina sem fékk Gullpálmann í Cannes í ár, Anatomie d'une chute, Anatomy of a Fall, sem mætti kannski þýða sem Fallið er hátt. Mynd eftir Justine Triet sem inniheldur mögulega best skrifaða hjónarifrildi kvikmyndasögunnar. Kolbeinn Rastrick segir frá.
    Við höldum áfram að heyra hljóðdagbækur Grindvíkinga sem þurftu að rýma heimili sín fyrir 10 dögum. Reiði, sobril, Skopp, körfubolti og gasmengun koma meðal annars við sögu.
    Afsagnir og uppsagnir í listheiminum eru ein birtingamynd átákanna á Gaza. Við förum yfir nokkrar afsagnir og uppsagnir sem hafa gerst í kjölfar yfirlýsinga listamanna eða fólks í menningargeiranum í Evrópu og Bandaríkjunum.
    55 min
  • Iceland Noir sniðgengin, Trúbadorinn Stella Haux, Drif á Lækjartorgi
    Við förum yfir menningarátökin sem standa nú yfir í bókmenntaheiminum. Þar er verið að ræða hvort rithöfundar eigi að sniðganga Iceland Noir, glæpasagnahátíð í Reykjavík, vegna þátttöku Hillary Clinton, fyrrum forsetaframbjóðanda og fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á hátíðinni. Stríðið á Gaza og afstaða Hillary Clinton til vopnahlés er ástæðan fyrir því að nokkrir hafa ákveðið að taka ekki þátt í ár. Er bókmenntahátíð vettvangur fyrir pólitísk átök og er Hillary Clinton meira en bara umdeild?
    Á morgun hefði Stella Haux, Guðný Stella Hauksdóttir, orðið sjötug. Rauðsokka, verkalýðsbaráttukona, trúbador, Stella var eldheit baráttukona. Á morgun verður hennar minnst á tónleikum á Dillon, í tilefni sjötugsafmælisins. Dagný Krisjtánsdóttir, prófessor emerítus í Íslenskum nútímabókmenntum, var vinkona hennar. Hún kom í Lestina og sagði frá Stellu.
    Danstónlistarútvarpið Drif hefur haldið út metnaðarfulli dagskrá allar helgar frá því í sumar. Heimili stöðvarinnar er nú í Hljómturninum á Lækjartorgi en þar þeyta plötusnúðar skífum og streymt er beint frá turninum á Yotutube. Atli James, betur þekktur sem Jamesendir, tekur á móti okkur í Hljómturninum og segir frá Drifinu og stöðunni í íslensku raftónlistarlífi.
    55 min
  • Skilnaður
    Það getur fylgt því ný sjálfsmynd að skilja, það myndast gapandi tóm, sorgin er talin annars flokks, við erum öll að fylgja ósýnilegu handriti. Við ræðum þetta og meira við sviðslistakonurnar Evu Rún Snorradóttur og Vilborgu Ólafsdóttur í Kviss Búmm Bang. Þær eru að hefja rannsóknarvinnu fyrir nýtt sjálfsævisögulegt verk sem fjallar um menningu og arfleið hjónabandsins - og ekki síst algengnan fylgifisk þess, skilnað.
    Svo rifjum við upp ástarrannsóknir, viðtal við hjónabandsráðgjafa og framsögur frá 1958, þar sem ástæðum hjónaskilnaða var velt fyrir sér.
    Það er bara eitt mál á dagskrá í Lestinni í dag, algengur fylgifiskur hjónabandsins, skilnaður.
    55 min
  • Fimm mínútur í Grindavík, ljósmynd í útvarpi, sigurvíma eftir Skrekk
    Við hittum fimm unglinga í Hagaskóla sem sigruðu Skrekk í gær. Þau eru í sigurvímu og ætla að halda hópinn eftir stífar Skrekksæfingar haustsins. Atriðið þeirra fjallaði um símafíkn og heitir 'Líttu upp, taktu eftir'.
    Við höldum áfram að heyra hljóðdagbækur Grindvíkinga, sem fengu að fara heim til sín í fimm mínútur í gær.
    Una María Magnúsdóttir, grafískur hönnuður, veltir því fyrir sér hvernig væri hægt að lýsa ljósmynd í útvarpi.
    55 min
  • Flóttafólk í eigin landi, fréttaljósmyndun, dauðarokk í Botsvana
    Eftir nokkrar vikur af jarðskjálftum og gosóróa á Reykjanesi gáfu Almannavarnir út tilmæli til íbúa Grindavíkur, seint á föstudagskvöld, að rýma bæinn samstundis. Þar með urðu tæplega fjögur þúsund íbúar bæjarins að flóttafólki í eigin landi. Á þrjá daga hafa nokkrir Grindvíkingar skrásett fyrir okkur atburðarásina, hugsanir sínar og tilfinningar: Sigríður Gunnarsdóttir, Siggeir Ævarsson og Teresa Birna Björnsdótir, Teresa Bangsa.
    Þórdís Nadia Semichat pistlahöfundur fjallaði fyrir stuttu síðan um suður-afrísku tónlistarstefnuna Amapiano. Í dag fáum við að heyra um dauðametal frá Botswana.
    Í gær setti fréttaljósmyndarinn Kjartan Þorbjörnsson, Golli, færslu inn á samfélagsmiðla, þar sem hann talaði um hlutverk fréttaljósmyndara í tengslum við mögulegt eldgos í Grindavík. Við hringdum í hann og náðum honum á leið til Grindavíkur, og ræddum drónabann Samgöngustofu og aðgengi fréttaljósmyndara.
    55 min
  • Birdnoise, aðeins meira Airwaves, hasar í kennaraverkföllum
    Hljómsveitin Sucks to be you nigel kom með krafti inn í reykvísku grasrótarrokksenuna fyrir tveimur árum með plötunni sinni Tína Blóm. Þetta var hrátt og unggæðingslegt pönk, gítarriff klippt út úr íslensku 80s pönk bylgjunni, og textarnir súrir og hressir brandarar um það að skera börn í tvennt, um þrána eftir raflost og ljót blóm. Fyrir hana fengu þau Kraumsverðlaunin og hlutu einnig viðurkenningu á tónlistarverðlaunum Reykjavík Grapevine. Á morgun kemur svo önnur plata sveitarinnar, Birdnoise, fugla-hávaði. En á þessari plötu hefur hljómsveitin tekið algjörlega nýja stefnu. Kristján Guðjónsson ræðir við meðlimi hljómsveitarinnar.
    Á dögunum kom út ný íslensk heimildarmynd um kennaraverkföllin á Íslandi fram að aldarmótum. Það er mikill hasar, nokkuð um útskýringar á efnhagslegum hugtökum og Ólafur Ragnar Grímsson útskýrir valdatengsl í Íslensku þjóðfélagi. Leikstjóri og annar handritshöfunda myndarinnar, Einar Þór Gunnlaugsson, ræðir efnistök myndarinnar.
    Katrín Helga Ólafsdóttir lýkur Airwaves-yfirferð Lestarinnar í ár.
    55 min
  • Inspector Spacetime + Airwaves yfirferð
    Þau Vaka Agnarsdóttir og Egill Gauti Sigurjónsson úr hljómsveitinni Inspector Spacetime verða lestarstjórar í þætti dagsins ásamt Lóu Björk. Tilefnið er útkoma nýrrar stuttskífu hljómsveitarinnar, Extravaganza, sem kemur út föstudaginn næstkomandi. Við frumflytjum tvö glæný lög með hljómsveitinni, drekkum kaffi og ræðum málin.
    Er Airwaves komin af léttasta skeiði, eða má hún muna fífil sinn fegurri, einhvern veginn þannig mætti þýði titil skoðanapistil sem birtist í Reykjavík Grapevine í gær. Pistillin er eftir Jón Trausta Sigurðarson, útgefanda og einn stofnenda tímaritsins, en þar rekur hann þróun hátíðarinnar frá frá því að hún var fyrst haldin árið 1999 og til dagsins í dag. Hann veltir fyrir sér æ eldri tónleikagestum, hugmyndafræðinni á bakvið val á tónlistarfólki, og uppröðun þeirra. Kristján ræddi við Jónda um Airwaves og greinina hans Is Iceland Airwaves Past its prime?
    Þau Katrín Helga Ólafsdóttir og Davíð Roach Gunnarsson voru útsendarar Lestarinnar á Airwaves í ár, við fáum að heyra þeirra yfirferð á hátíðinni í þætti dagsins.
    55 min
  • Gaza í story, Íslandsklisjur listafólks, The Blind Side
    Lóa veltir fyrir hvort hún eigi að pósta eða sleppa því að pósta í story um stríð.
    Undanfarna þrjá áratugi hafa óvenjulega margir íslenskir popptónlistarmenn notið vinsælda utan landsteinana. Björk ruddi brautina og í kjölfarið komu hljómsveitir eins og Sigur Rós og Múm, seinna Of monsters and Men og Kaleo, og núna síðast Laufey. Þessum listamönnum hefur mörgum hverjum verið troðið inn í ákveðnar þjóðarklisjur en hafa líka notfært sér þær. Við spjöllum við Þorbjörg Daphne Hall og Nína Hjálmarsdóttir um þessar ímyndir Íslands og birtingarmyndir þeirra í samtímalistum.
    Chanel Björk Sturludóttir horfir aftur á eina af sínum uppáhaldsmyndum úr barnæsku, The Blind Side, i ljósi nýrra upplýsinga Myndin fjallar um hvíta fjölskyldu frá suðurríkjunum í Ameríku sem tekur ungan svartan mann, Michael Oher, og undir sinn verndarvæng og gera hann að yfirburðar íþróttamanni í amerískum fótbolta. Nú hefur Oher kvartað yfir því hvernig saga hans var misnotuð.
    55 min
  • Af hverju styðja Íslendingar Palestínu?, tölvuleikjatónlist, AI-Lestin
    Það er mánuður frá því að átök blossuðu aftur upp fyrir botni miðjarðarhafs þegar liðsmenn Hamas frömdu fjöldamorð á ísraelskum borgurum og tóku nokkur hundruð gísla sem margir hverjir eru enn í haldi. Í kjölfarið hefur Ísraelsher haldið úti fordæmalausum loftárásum á Gaza-svæðið, sprengt íbúðabyggingar, ráðist á flóttamannabúðir. Lokað er fyrir vatn og rafmagn og heilbrigðisstofnanir geta illa starfað. Tala látinna hækkar hratt og nálgast 10 þúsund. Um helgina fór fram fjölmennur fundur í Háskólabíói þar sem margir komu saman og lýstu yfir stuðningi við Palestínu. Stuðningur við málstað Palestínu virðist vera nokkuð mikill meðal íslensks almennings og mörgum blöskrar að Ísland hafi setið hjá í atkvæðagreiðslu í Sameinuðu þjóðunum þar sem kosið var um ályktun um vopnahlé á svæðinu. Sveinn Rúnar Hauksson mætir og ræðir afstöðu Íslendinga til Ísrael og Palestínu, bæði meðal almennings og stjórnvalda.
    Tengsl tölvuleikja og jungle-tónlistar eru meiri en marga grunar. Jungle var gríðarlega oft hluti af hljóðmynd tölvuleikja frá árunum 1995-2005. Og tveimur áratugum síðar njóta handvalin mix af þess konar tónlist mikilla vinsælda á Youtube. Hjalti Freyr Ragnarsson pælir í þessum óvæntu tengslum jungle og tölvuleikja.
    Við endurflytjum líka fyrsta þáttinn í seríunni Gervigreindar-Lestin sem við sendum út í sumar - ævintýralegt ferðalag Kristjáns og Lóu í tilraun til að gera fyrsta gervigreindarsmíðaða útvarpsþátt Íslandssögunnar.
    55 min