Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Twitter ömurlegt, rekinn vegna skopmyndar um Gaza, Stop making sense
    Prófessor í blaðamennsku við Stokkhólmsháskóla er staddur á Íslandi. Tilefnið er erindi hans um kaup Elon Musk á samfélagsmiðlinum Twitter í Háskóla Íslands, 'Elon Musk, goðsagnir um málfrelsið og daður við öfga-hægrið.' Við ræðum allar þær ólíku birtingarmyndir þess hversu lélegt og ömurlegt Twitter er orðið við Christian Christensen, og hvernig það hefur mögulega áhrif á upplifun okkar af stríðinu í Ísrael og Palestínu.
    Steve Bell hefur starfað í rúmlega 40 ár fyrir The Guardian en hefur núna misst vinnuna eftir að hafa deilt mynd á samfélagsmiðlum sem hann fékk ekki birta í blaðinu, mynd sem ritstjórar blaðsins álitu að notaðist við and-gyðinglegar klisjur. Við fengum Halldór Baldursson, skopmyndateiknara, til að kíkja á myndina með okkur.
    Í desember 1983 hélt hljómsveitin Talking Heads tónleika í Hollywood?s Pantages Theater. Tónleikarnir voru teknir upp og gefnir út sem tónleikakvikmynd, Stop Making Sense. Myndinni var leikstýrt af Jonathan Demme sem átti síðar eftir að gera The Silence of the Lambs og Philadelphia en myndin er talin sem ein allra besta tónleikamynd sögunnar. Í tilefni af því að 40 ár er frá tónleikunum verður nýuppgerð útgáfa af myndinni sýnd í Bió Paradís í vikunni. Davíð Roach Gunnarsson fjallaði um hana í Lestinni árið 2020 þegar mánuður var liðinn af samkomubanni vegna heimsaraldurs og Davið farinn að sakna lifandi tónleika.
    55 min
  • Snjallsími góða fólksins, hýr illmenni í hundrað ár, goth Atlanta rapp
    Aðstæður verkafólks í Kína, kolefnisfótspor, barnaþrælar í kóbaltnámum í Kongó. Það er ýmislegt sem hönnuður siðferðilega þolanlegs snjallsíma þarf að hafa í huga. Nú er í fyrsta skipti hægt að kaupa siðlega snjallsímann, snjallsíma góða fólksins, Fairphone, á Íslandi. Við pælum í snjallsímum og siðferði með Bjartmari Oddi Þey Alexanderssyni blaðamanni.
    Í dag, 16. Október á Disney fyrirtækið 100 ára afmæli. Við ætlum að halda upp á það í þættinum í dag og rifja upp þætti fyrrum lestarstjórans Önnu Marsý frá árinu 2021 - Veröldin hans Walts. Í þriðja þætti í seríunni ræddi hún við Sigríði Jónsdóttur, sérfræðing á leikminjasafni Íslands og leikhúsgagnrýnanda Fréttablaðsins. Þær íhuga Disney illmenni, sem virðast öll, þegar betur er að gáð, meira og minna hinsegin.
    Við spjöllum við rapparana Suavi Gualla og Lil Lowlife frá Atlanta, höfuðborg rappsins um þessar mundir, um stemninguna þar í borg, borið saman við nýja heimili þeirra Los Angeles. Þórður Ingi Jónsson ræðir við þessa meðlimi tónlistarhópsins Ball Hogg Records sem notið hefur mikillar athygli í heimi neðanjarðarrapps undanfarið.
    55 min
  • Vallarvörður sendur úr landi, Hreyfing hermir eftir, Ísafjarðar-PIFF
    Við byrjum niðri í Laugardal þar sem við röltum í vindi og örlítilli snjókomu um íþróttasvæði Þróttar með vallarverðinum Isaac Kwateng, 28 ára Ganamanni. Isaac, sem hefur spilað fótolta með SR, varaliði Þróttar, og verið virkur í starfi félagsins nokkur undanfarin ár, verður að öllu óbreyttu sendur úr landi á mánudag.
    Við fáum að kíkja í heimsókn í hljóðver glænýrrar hljómsveitar. Hljómsveitin Hreyfing er skipuð þeim Elíasi Geir Óskarssyni (úr Inspector Spacetime) og Baldri Skúlasyni (úr Sameheads) og á fyrstu plötu þeirra herma þeir eftir völdum augnablikum úr danstónlistarsögunni
    Í dag hefst kvikmyndahátíðin Pigeon International Film Festival, sem fer fram núna um helgina. Júlía Margrét Einarsdóttir ræddi við Steingrím Rúnar Guðmundsson, Denna, sem er einn skipuleggjenda hátíðarinnar.
    55 min
  • Baráttan um hrunsmyndina + Færeysk tónlist
    Baráttan um sögu hrunsins hefur staðið yfir í fimmtán ár og heldur áfram. Á sunnudags og mánudagskvöld var frumsýnd ný heimildarmynd um íslenska bankahrunið á RÚV, Baráttan um Ísland. Myndin er framleidd af Sagafilm fyrir erlendan markað - Good banks, bad banks nefnist hún á ensku. Og þeir sem eru skráðir sem leikstjórar eru sænski verðlaunablaðamaðurinn Bosse Lindquist, Margrét Jónasdóttir og Jakob Halldórsson. Eins og flest allt sem tengist hruninu þá hefur myndin vakið sterk viðbrögð á samfélagsmiðlum. Þá birtist grein á sósíalíska fréttamiðlinum Samstöðin.is þar sem því er haldið fram að einn þriggja leikstjóra myndarinnar. Bosse lindqvist og fleiri sem skráðir eru fyrir myndinni, svo sem Þórður Snær Júlíusson, blaðamaður á Heimildinni, sem er titlaður ráðgjafi við gerð myndarinnar, séu ósáttir við að nöfn þeirra séu í kreditlista myndarinnar. Við ræðum við Bosse, Þórð Snæ og Margréti Jónasdóttur leikstjóra myndarinnar.
    Katrín Helga Ólafsdóttir, tónlistarkona, fjallar um Færeyjar og færeyska grasrótartónlistarsenu í tveimur pistlum.
    55 min
  • Besta afsögn ársins, Julie Byrne, goðsagnakenndir eyðimerkurtónleikar
    Risafréttir úr íslenskum stjórnmálum. Bjarni Benediktsson hefur sagt af sér sem fjármálaráðherra. Snemma í morgun birtist álit umboðsmanns Alþingis á sölu ríkisins á hlut sínum í Íslandsbanka í fyrra. Pabbi Bjarna var meðal þeirra sem keyptu hlut í bankanum. Umboðsmaður segir Bjarna hafa verið vanhæfan. Og Bjarni bregst við með að segja af sér. Sumir hafa túlkað þetta sem snjallan pólitískan leik hjá teflon-Bjarna sem sé núna að setja pressu á Svandísi Svavarsdóttur og ætli svo bara að verða utanríkisráðherra, en margir aðrir hafa hrósað honum fyrir að axla ábyrgð, og fyrir virða lýðræðislegar stofnanir - þó hann sé ósammála þeim. Við ætlum hins vegar að rýna í sjálfa afsagnarræðuna, orðin.
    Árið 1983 voru haldnir þrennir tónleikar í Mojave eyðimörkinni í Kaliforníu þar sem margar af framsæknustu rokksveitum þess tíma komu fram: Sonic Youth, Einstürzende Neubauten og Minuteman. Þessi goðsagnalegu tónleikar, Mojave Exodus, eru oft sagðir hafa lagt grunninn að tónlistarhátíðum á borð við Burning Man og Coachella. Maðurinn á bakvið tónleikana var Stuart Swezey, en hann er viðfangsefni nýrrar heimildamyndar sem nefnist Desolation Center. Þórður Ingi Jónsson útsendari Lestarinnar í Los Angeles ræddi við Stuart um tónleikahald á pönkárunum.
    Hildur Maral Hamíðsdóttir fjallar um nýja plötu bandarísku indí-kassagítarsöngkonunnar Julie Byrne, The Greatest Wing. Plötu sem er kláruð í skugga fráfalls hennar helsta samstarfsmanns og kærasta Erics Littman.
    55 min
  • Besta stuttmyndin, Supersport selja út? og stóri hvalurinn
    Ásdís Sól Ágústsdóttir fór að bera kennsl á rauðan þráð Í bókmenntum, bíómyndum og myndlist, hvalinn, hann virtist vera alls staðar. Hún ákvað að lesa Moby Dick eftir Herman Melville og varð stórhrifin, og prófar að setja hana í samhengi við umræðurnar um hvalveiðar á Íslandi.
    Bergur Árnason kvikmyndagerðarmaður hlaut verðlaun fyrir bestu íslensku stuttmyndina á RIFF, fyrir myndina Bókaskipti, síðsumar í Reykjavík, en hátíðinni lauk formlega í gær. Hann nefnir Hlyn Pálmason og Rúnar Rúnarsson sem áhrifavalda sína, en langar að gera myndir sem gerast í Reykjavík, frekar en í sveitinni
    Hljómsveitin Supersport! hefur undanfarin fjögur ár verið einhver mest áberandi sveitin í reykvísku indí-grasrótinni. Síðasta föstudag kom út önnur breiðskífa sveitarinnar, Húsið mitt, hjá Öldu Music. Platan er lágstemmdari en sú síðasta, Tveir Dagar frá 2021. og stuttskífan Dog Run sem kom út ári áður. Þetta er hin fullkomna haustplata, tónlistin melódísk og ljúfsár popptónlist, með þétt ofnum kassagítarfléttum og einkennandi falsettu söngvarans Bjarna Daníels sem syngur íslenska hversdagsljóðrænu um það að vökva blóm, kvöldmat hjá ömmu og hryggð vinnunnar. Við ræðum við Huga, Bjarna og Dag (Þóra var veik) um manifestó, sannleikann í söng, og útgáfusamninginn við Öldu Music
    55 min
  • Tvífari Naomi Klein, GuðblessiÍsland.pdf, Segulmagnaða heimsálfan
    Helga Ólafsdóttir var 26 ára og vann sem skrifta á Ríkisútvarpinu í október 2008. Hún fékk það hlutverk að færa hina íkonísku ræðu Geirs Haarde af USB-lykli yfir á textaskjáinn, prompterinn. Var beðin um að lesa hana ekki en sá þó þessi orð nokkrum mínútum áður en við hin heyrðum þau: Guð blessi Ísland. Anna Marsibil Clausen ræðir við Helgu um ræðuna dramatísku.
    RIFF klárast á sunnudag og gagnrýnendur Lestarinnar halda áfram að segja frá því sem þeir hafa séð á hátíðinni í ár. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar um þrjár heimildarmyndir á RIFF: mynd um djasstrommuleikarann Max Roach, mynd eftir Jean Lucet um suðurskautslandið: Segulmagnaða heimsálfan, og Knit?s Island eða Eyja Knits sem fjallar um tölvuleikjaspilara sem lifa og hrærast í leiknum Day-Z.
    Við heyrum um nýja bók blaðakonunnar Naomi Klein sem nefnist Doppelgänger, en þar skoðar hún heim samfélagsmiðla og nútímastjórnmála út frá tvífara-hugtakinu. Jóhannes Ólafsson úr þættinum Bara Bækur kemur og útskýrir hvernig tvífarahugtakið varpar ljósi á samtímann.
    55 min
  • Átök um nýja útgáfu Dimmalimm, Tilverur (rýni), kryptísk ræða Geirs H.
    Undanfarna daga hafa staðið yfir menningarátök um ævintýrið um þægu kóngsdótturina Dimmalimm. Nú í mánuðinum kemur út hjá bókaforlaginu Óðinsauga ný útgáfa af ævintýrinu þar sem hinar klassísku myndir Muggs hafa verið endurgerðar í nýjum stíl og nýjum myndum bætt við við upprunalega textann. Í tilkynningu frá forlaginu segir: Ný útgáfa er óður til sögunnar um Dimmalimm eftir Guðmund Thorsteinsson, bæði textans og myndanna sem þessi stórsnjalli listamaður skóp.
    Fljótlega eftir að fréttist af útgáfunni sendu ættingjar Muggs frá sér yfirlýsingu þar sem þeir lýstu yfir óánægju sinni með útgáfunni - og sögðu verkið brjóta gegn sæmdarrétti höfundar. í þætti dagsins ræðum við við Geir Rögnvaldsson, dótturson Guðrúnar, systur Muggs, Huginn Þór Grétarsson hjá Óðinsauga og Önnu Magnúsdóttur Eirúnardóttur, sem skilaði BA-ritgerð í vor um Samspil mynda og texta í nokkrum útgáfum Sögunnar af
    Dimmalimm eftir Mugg.
    Sigríður Regína Sigurþórsdóttir rýnir í þrjár myndir á RIFF, The Settlers, How To Have Sex og Tilverur, frumraun leikstjórans Ninnu Pálmadóttur.
    Við fáum að heyra áttunda og seinast þátt Guðna Tómassonar og Þorgerðar E. Sigurðardóttur, Nokkrir dagar í frjálsu falli, frá árinu 2018. Yfirskrift þessa þáttar er Ræðan.
    54 min
  • Hver þarf Ritstjóra? RIFF: Tógólísa, Belonging, May December og Hrunið
    Ritstjóri nefnist nýr fjölmiðill Snorra Mássonar, en hann hefur verið einn mest áberandi ungi fjölmiðlamaðurinn á Íslandi undanfarin ár. Við ræðum hvort að þetta sé raunverulega nýr fjölmiðill eða bara ný framsetning á Moggabloggi. Við pælum líka í einstaklingsfjölmiðlum og vinsældum þeirra í samtímanum.
    Gunnar Theodór Eggertsson rýnir í þrjár kvikmyndir sem hann sá á RIFF. Þetta eru heimildarmyndirnar Tógólísa og Belonging, og ný kvikmynd Todd Haynes sem nefnist May December.
    Við heyrum svo í presti og sálgreini sem fylgdust með sálarheilsu Íslendinga á hrundögunum dramatísku í byrjun október 2008.
    55 min
  • Niðurlægjandi samband við Rannís, morðingi Tupac handtekinn, RIFFrýni
    Í dag, 2. október, klukkan 15:00 rann út frestur hjá Rannís til að sækja um listamannalaun. Dagurinn í dag er því sérstaklega spennuþrunginn fyrir marga listamenn, dagur sem er fyrir flesta aðra ósköp venjulegur. Við ákváðum að trufla listafólk á lokamínútunu og fá innsýn inn í þetta, oft á tíðum, taugatrekkjandi, ferli sem umsóknarskrif eru.
    Maður var handtekinn á dögunum í tengslum við morðið á bandarísku rappgoðsögninni Tupac. Skotárás sem átti sér stað þann 7. september árið 1996, í Las Vegas, varð kveikja fjölda samsæriskenninga, en enginn morðingi fannst, fyrr en mögulega núna.
    Sigríður Regína Sigurþórsdóttir fjallar um þrjár kvikmyndir sem hún sá á RIFF seinustu daga. RIFF-yfirferðin hennar hefst á myndunum Queendom, Apolonia Apolonia og Mannvirki,
    Við flytjum 6. þátt af 8 af örþáttaröðinni Nokkrir dagar í frjálsu falli frá árinu 2018. Þættirnir eru úr smiðju Guðna Tómassonar og Þorgerðar E. Sigurðardóttur og fjalla um atburðina, dagana, stemminguna í kringum Íslenska bankahrunið. Viðmælendur þáttarins eru þær Fjóla Einarsdóttir og Móeiður Hlíf Geirlaugsdóttir, viðfangsefnið er hjálparsíminn í Hruninu.
    55 min