Málið er

Málið er

Download on the App Store

Málið er episodes

  • „Getur verið að þú sért pabbi minn?“
    Í þættinum í dag heyrum við sögur tveggja einstaklinga sem á óvæntan hátt fundu blóðfeður sína á fullorðinsárum. Sögurnar eru ólíkar en samt er margt líkt með þeim.
    Hrafnhildur S. Mooney vissi alltaf að hún ætti pabba í Ameríku en pældi ekkert sérstaklega í því - og hitti hann ekki fyrr en fyrir tæpum tíu árum síðan og um leið stækkaði fjölskylda hennar töluvert. Aron Leví Beck var átján ára þegar maðurinn sem hann taldi vera föður sinn fór fram á faðernispróf, sem leiddi hann í sannleikann um að sá sem hann taldi hafa verið föður sinn frá fæðingu var það ekki. Hann fann föður sinn og sex tónelsk systkini.
    Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
    Viðmælendur: Aron Leví Beck, Hrafnhildur S. Mooney og Rúnar Þór.
    57 min
  • Móðir útigangsmanns
    Hvernig er að horfa á eftir syni sínum verða að útigangsmanni? Í Málið er í dag heyrum við sögu móður sem missti son sinn rétt fyrir jól en hann hafði lengi tilheyrt hópi útigangsfólks. Móðirin berst nú fyrir bættum aðstæðum fyrir heimilislausa en aldrei hafa fleiri tilheyrt þeim hópi hér á landi.
    Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
    Viðmælendi: Guðrún Hauksdóttir Schmidt
    50 min
  • Slúður
    Af hverju finnst okkur svona gaman að kjafta um náungann og af hverju spretta upp kjaftasögur. Allt um kjaftasögur í þætti dagsins.
    50 min
  • Fötlunarfordómar
    Eru fötlunarfordómar í samfélaginu og ef svo er, hvernig birtast þeir? Í þættinum fræðumst við um fötlunarfordóma í gegnum þær Ingu Bjork Bjarnadóttur og Jönu Birtu Björnsdóttur, sem báðar eru fatlaðar og tilheyra aktivistahópnum Tabú sem stofnaður var árið 2014. Hópurinn berst fyrir meiri sýnileika fatlaðs fólks - enda eigi það rétt á plássi, valdi og virðingu í samfélaginu.
    Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
    Viðmælendur: Inga Björk Bjarnadóttir og Jana Birta Björnsdóttir.
    50 min
  • Frá Afghanistan til Íslands
    Í þættinum heyrum við sögu Zöhru Mesbah Sayed Ali sem kom til Íslands frá Íran ásamt systur sinni og móður fyrir sex árum síðan. Þó það hafi tekið á í fyrstu að venjast nýju landi þá hafa þær aðlagast vel og nú eru þær allar komnar með íslenskan ríkisborgararétt. Zahra hefur náð góðum tökum á íslensku, stofnað sína eigin túlkaþjónustu og stefnir á að láta drauminn um að verða tannlæknir rætast.
    Viðmælendur:
    Zahra Mesbah Sayed Ali
    Hava Forout­an Mohammad Hossein
    Hass­an Raza Ak­bari
    50 min
  • Stjúptengsl
    Í þættinum í dag fjöllum við um stjúptengsl sem geta oft verið vandasöm en líka gefandi og góð. Hvaða áskoranir mæta slíkum fjölskyldum umfram aðrar og hvaða væntingar eiga stjúpforeldrar og börn að gera til sín? Hvernig á að haga stórhátíðum í slíkum fjölskyldum?
    Við heyrum sögu af stjúpfjölskyldu sem hefur eytt jólunum saman í næstum þrjá áratugi. Fyrrverandi makar, núverandi makar og svo öll börnin. Og líka sögu stjúpmóður sem ætlaði að eiga bestu stjúpfjölskyldu í heimi þar sem allir yrðu glaðir en áttaði sig fljótt á því að besta er að slaka á kröfunum til að allt gangi upp.
    Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
    Viðmælendur: Valgerður Halldórsdóttir, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, Björk Vilhelmsdóttir og Inga Sveinsdóttir.
    50 min
  • Saga fyrrum vændiskonu
    Í þættinum í dag heyrum við sögu konu sem var vændiskona í Kaupmannahöfn. Eva Dís Þórðardóttir á að baki átakanlegar lífsreynslur sem hafa mótað hana. Í mörg ár vissi enginn af því að hún hefði stundað vændi og hún óttaðist ekkert frekar en að það kæmist upp. Eftir að hún sagði frá því opinberlega hefur hún upplifað algjört frelsi, nú getur enginn notað leyndarmálið gegn henni. Hún segir vændi vera ofbeldi ekki starfsgrein og eftir mikla sjálfsvinnu hefur hún nýtt sína reynslu öðrum til hjálpar.
    Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
    Viðmælandi: Eva Dís Þórðardóttir
    50 min
  • Fastur í úrræðaleysi kerfisins eftir alvarlegan heilaskaða
    Ungur maður féll niður í líkamsrækt og í ljós kom að hann hafði fengið heilablæðingu. Hann var sendur til Svíþjóðar í aðgerð sem fór ekki eins og vonast var til og heili hans varð fyrir miklum súrefnisskorti. Hann hlaut alvarlegan heilaskaða og lífið breyttist, ekki bara hans eigið líf heldur allra aðstandanda hans. Í þættinum í dag heimsækir Viktoría Hermannsdóttir Einar Óla og móður hans, Aðalheiði Bjarnadóttur, á Grensásdeild. Þar hefur hann búið í eitt og hálft ár meðan beðið er eftir að hann komist í annað úrræði, en aðstandendur hans hafa upplifað algjört úrræðaleysi í kerfinu.
    Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
    Viðmælendur: Aðalheiður Bjarnadóttir
    Jóhanna
    50 min
  • Úr fangelsi í frelsi
    Í þættinum í dag heyrum við sögu Sturlu Þórhallssonar, sem var dæmdur í tíu ár fangelsi í Danmörku fyrir skipulagningu á umfangsmiklu fíkniefnasmygli. Hann hefur á undraverðan hátt snúið blaðinu við. Fór í meðferð í fangelsinu og starfaði á hestaleigu síðustu fjögur ár afplánunartímans. Hann losnaði fyrir tveimur mánuðum við ökklaband sem hann bar síðasta árið í afplánunni og er nú orðinn frjáls maður á ný - sem hann segir ekki vera jafn einfalt og það kann að hljóma. Við heyrum magnaða sögu Sturlu - frá þaulskipulögðu fíkniefnasmygli yfir í frelsið í sveitinni.
    Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
    Viðmælendur: Sturla Þórhallsson, Sólmundur Sigurðarson.
    50 min
  • Úr fangelsi í frelsi
    Í þættinum í dag heyrum við sögu Sturlu Þórhallssonar, sem var dæmdur í tíu ár fangelsi í Danmörku fyrir skipulagningu á umfangsmiklu fíkniefnasmygli. Hann hefur á undraverðan hátt snúið blaðinu við. Fór í meðferð í fangelsinu og starfaði á hestaleigu síðustu fjögur ár afplánunartímans. Hann losnaði fyrir tveimur mánuðum við ökklaband sem hann bar síðasta árið í afplánunni og er nú orðinn frjáls maður á ný - sem hann segir ekki vera jafn einfalt og það kann að hljóma. Við heyrum magnaða sögu Sturlu - frá þaulskipulögðu fíkniefnasmygli yfir í frelsið í sveitinni.
    Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
    Viðmælendur: Sturla Þórhallsson, Sólmundur Sigurðarson.
    50 min

About Málið er

From the publisher's feed

Í þættinum er rætt við fólk sem þú vilt vita meira um, sagðar sögur af körlum og konum sem þú vissir ekki að væru til og aflað heimilda um atburði sem þú gast ekki ímyndað þér að hefðu átt sér stað, skildir ekki eða hafðir ekki uppgötvað að væru áhugaverðir.

More shows like Málið er

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

92 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Morðskúrinn by mordskurinn

Morðskúrinn

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners