
Sign up to save your podcasts
Or


Jón Gísli Jónsson er viðmælandi Matmanna í þessum áttunda þætti okkar. Hann er faglærður kjötiðnaðarmaður og vinnur í dag sem verslunarstjóri hjá Kjötkompaní á Höfða. Hann er einnig landsliðs fyrirliði í kjötiðn en liðið er nýbúið að keppa í heimsmeistara kennini í París í þeirri grein. Jón Gísli útskrifaðist frá Menntaskóla Kópavogs árið 2015. Í dag heldur hann úti instagram síðunni @theicelandicbutcher þar sem má sjá mikið af allskyns fróðleik um kjöt og meðhöndlun þess.
Heiðrún Mjöll Jóhannesdóttir er viðmælandi Matmanna í þessum sjöunda þætti okkar. Hún er faglærður framreiðslumaður og/eða þjónn eins og svo oft er sagt. Hún hefur lokið WSET 3 (Wine & Spirit Education Trust) og hefur margra ára reynslu í veitingageiranum. Í dag rekur hún, ásamt vinkonu sinni Brynhildi, fyrirtækið Vínvísar (vinvisar.is) þar sem þær mæta með vínsmökkun til fólks og fræða þátttakendur um vín á sama tíma og smakkað er. Heiðrún er einnig framkvæmdarstjóri Port 9 bar í miðbæ Reykjavíkur sem staðsettur er við Veghúsastíg 9. Hún Heiðrún bjó um tíma í Nicaragua þar sem hún lærði að vinna með romm sem framleitt er þar og þykir ótrúlega gott á heimsvísu. Hjá Heiðrúnu fræðumst við heilmikið um vín og vínframleiðslu, en hvaða vín ætli parist best með pylsum?
Gestur Matmanna að þessu sinni er hin margverðlaunaði matreiðslumeistari Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, sem er nýtekin við sem yfirmatreiðslumaður á Fröken Reykjavík Kitchen og Bar. Hún er einnig þjálfari íslenska landsliðsins í matreiðslu. Snædís er sú yngsta sem hefur hlotið Cordon bleu orðu hjá Klúbbi matreiðslumeistara á Íslandi. Hún er í raun svakaleg afrekskona sem hefur mikinn keppnisferil að baki og fræðumst við meðal annars aðeins um það í þessum þætti.
Jóhann Gunnar Arnarson sem kemur frá Akureyri er viðmælandi Matmanna. Í þessum þætti er farið yfir, hvað í ósköpunum butler gerir? Hann Jóhann útskrifaðist úr brytaskólanum „The International Butler Academy“ í Hollandi, sem sér hirðum konungsfjölskyldna í Hollandi, Jórdaníu og Sádi-Arabíu fyrir butler, ásamt því að reka öfluga ráðningarþjónustu.„Skólinn er rekinn í suðurhluta Hollands, rétt hjá Maastricht, en hann er þar í gömlu munkaklaustri, sem er aðeins 7.500 fermetrar að stærð, en þar er jafnframt heimili eigandans. Þessi áhugaverði maður er einnig fyrrum danskennari, og dómari í vinsælu sjónvarps þáttunum Allir Geta Dansað. Ferillinn hjá viðmælanda matmanna er skemmtilegur að því leitinu til, að hann vann á Bessastöðum sem ráðsmaður og staðarhaldari á tíma Ólafs forseta og leysti einnig töluvert af þegar Guðni var við völd. Vann hann einnig sem briti hjá landhelgisgæslunni, en í dag rekur hann og eiginkona hans Kristín Ólafsdóttir veiðihús við Selá í Vopnafirði og einnig veiðihúsið við Hofsá. Þessi þáttur er mjög áhugaverður að því leitinu til, að þarna skignumst við inn í líf og störf butler og hvað felst í því.
Gestur Matmanna er að þessu sinni Emil Hallfreðsson fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta og einn af eigendum Olifa. Hér er rætt um líf Emils á Ítalíu og vörurnar sem hann flytur inn til landsins. Spurningin er, hefur Emil lent í ítölsku mafíunni og hver er uppáhalds maturinn hans, kanski Bjúga?
Dóra Svavarsdóttir er formaður Slow Food Iceland einnig er hún menntaður landvörður og matreiðslumeistari svo er hún líka kennari í Hótel og Matvælaskóla Kópavogs.
Dóra hefur rekið sinn eigin veitinarstað og veisluþjónustu culina og heldur reglulega matreiðslunámskeið fyrir hópa og einstaklinga, í samstarfi við fagfélög, stéttarfélög, Vakanda, Landvernd og Kvennfélagasamband Íslands. „Eldað úr öllu“ er markmið til að minnka matarsóun, og hefur hún farið fyrir Íslands hönd á Terra Madre á vegum Slow Food Iceland samtakana.
Gestur Matmanna í dag er Ívar Örn Hansen einnig þekktur sem Helvítis Kokkurinn. Ívar kom með eldpiparsulturnar sínar og tók Bjart í sultu útgáfuna af "Hot ones". Umræðurnar fóru út um víðan völl allt frá ferðalaginu hans í sjónvarpið til stóru spurningarinnar er pulsa samloka?
Þórir er tvöfaldur forseti. Hann er forseti Klúbbs Matreiðslumeistara, ásamt því að vera forseti Nordic Chefs Association.
From the publisher's feed