Matmenn

Matmenn

By Mat MennArtsFood
Download on the App Store

Matmenn episodes

  • #18 - Túri Hard Rock

    Arthur Pétursson matreiðslumeistari,  yfirkokkur á Hard Rock Cafe Reykjavík og skáti í húð og hár er átjándi viðmælandi Matmanna. Arthur eða Túri eins og hann er betur þekktur,  var yfirkokkur á stærsta Hard Rock stað í heimi sem staðsettur er í Orlando á Flórída. Sá staður tekur 1.040 manns í sæti og er sölumetið þar hvorki meira né minna en 11.800 máltíðir á einum degi.  Áður en haldið var til Bandaríkjanna  hafði hann starfað í fimm ár á gamla Hard Rock Cafe í Kringlunni, en Túri hóf störf þar árið 1989 sem var upphafið af skemmtilegum tíma í hans lífi og einnig botnlausri vinnu. Túri hefur ferðast um allan heim til að aðstoða við opnanir á yfir 20 Hard Rock stöðum um víða veröld. Í þessum þætti fáum við að hnýsast aðeins bakvið tjöldin og heyra af ævintýralegum atvikum sem margir hefðu ekkert á móti að upplifa. Sem dæmi er Shaquille O‘Neal algjör prakkari sem fær Túra af og til heim til sín að elda fyrir sig og vini sína, þar á meðal Adam Sandler, þar sem þeir fela áhöldin fyrir Túra svo hann geti ekki eldað og reka á eftir honum í gríni. Hér er bráðskemmtilegur þáttur á ferð sem engin ætti að láta framhjá sér fara.

    1 hr 17 min
  • #17 - Rósakaffi

    Viðmælendur okkar í þessum sautjánda þætti Matmanna, eru hjónin Jóna Sigríður Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur og Guðmundur Magnús Níelsen garðyrkjumaður. Jóna er frá Vopnafirði þar sem hún ólst upp við bakstur í hópi kvennfélagskvenna og nýtir sér reynslu sína þaðan í fyrirtækinu sínu í dag sem ber heitið Rósakaffi og er í Hveragerði. Rósakaffi býður upp á kökuhlaðborð alla sunnudaga milli kl.14-17 en þar eru á borðum  ca. 17-20 tegundir af kökum á sanníslensku kökuhlaðborði. Á Rósakaffi er heimilislegt yfirbragð, en þar er á ferð  fjölskyldurekið fyrirtæki þar sem hlýlega er tekið á móti manni. Guðmundur, eiginmaður Jónu, er frá Hveragerði og er hann venjulega á hlaupum til að halda öllu fínu í salnum og passa upp á að fylla á kökuhlaðborðið með góðri hjálp frá tveimur börnum þeirra. Á hverjum sunnudegi koma 250+ manns til að gæða sér á góðgætinu hennar Jónu svo það er nóg að gera. Þau hafa verið gift frá því 2006 og tóku við fyrirtækinu árið 2019, sem var áður rósaræktun í garðskálanum. Þau eru með opið alla virka daga í hádeginu, þar sem hægt er að fá heimilismat af hlaðborði og panta sér af grillinu ef svo ber undir. Við mælum með að skella sér í bíltúr og smakka hjá þeim kræsingarnar.

    57 min
  • #16 - Vilhjálmur Sveinn Guðmundsson

    Villi meistara kokkur er sextándi viðmælandi Matmanna að þessu sinni, en skírnarnafn hans er Vilhjálmur Sveinn Guðmundsson frá Reykjavík. Ferillinn hans byrjaði sem sextán ára piltur á Einar Ben í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann hóf samning sinn í matreiðslu til tveggja ára og kláraði svo seinni tvö árin á Hilton Hótel. Villi útskrifaðist með sveinsbréfið árið 2012 og fór svo að starfa á stöðum á borð við Grillmarkaðinn, Sjávargrillið og Grand Hótel Reykjavík. Hann fékk svo meistarabréfið sitt árið 2024, og hefur starfað sem yfirkokkur hjá Finnson Bristro í Kringlunni og einnig hjá Hótel Natúra (gamla hótel loftleiðir). Í þessum skemmtilega spjall þætti er farið aðeins yfir eldhús málin og hvaða mat menn myndu vilja sem sýna síðustu death row máltíð í lífinu, áhugaverðar pælingar hér á ferð.

    1 hr 10 min
  • #15 - Simmi Vill

    Sigmar Vilhjálmsson, oftast kallaður Simmi Vill er fimmtándi viðmælandi Matmanna. Hann er mikill frumkvöðull, hefur skemmtilega sköpunargáfu og nóg af skoðunum á flestum málum. Simmi hefur verið iðinn við frumkvöðlastörf árum saman, eða allt frá því hann lauk skólagöngu sinni við Menntaskólann á Egilsstöðum. Í dag fæst hann við fyrirtækin Eldum gott, Mamma Mía, Kjötborðið, Brauðfélagið og Mínigarðinn, en það sem kom honum á kortið í veitingabransanum voru fyrirtækin sem hann hefur stofnað eins og Íslenska Hamborgarafabrikkan, Keiluhöllin, Shake & Pizza og fleiri slík. Simmi hefur einnig starfað hjá 365 miðlum, Landsbankanum, Hlöllabátum, Stórveldinu, Lava, Miklagarði og Bankanum svo eitthvað sé nefnt. Farið er um víðan völl í þessum þætti Matmanna, sem endaði í aðeins lengra lagi en vanalega hjá okkur. Í honum bendir Simmi okkur m.a. á að prófa lakkrís vængina í Mínigarðinum, sem gætu verið að fara af matseðlinum bráðlega. Honum fannst líka hlaðvarpskakan góð!


    1 hr 49 min
  • #14 - Ólöf Ólafsdóttir

    Ólöf Ólafsdóttir konditor er fjórtándi viðmælandi Matmanna. Ólöf lærði á sínum tíma hjá Hafliða Ragnarssyni í Mosfellsbakarí og eftir það fór hún að læra konditorinn hjá ZBC Zeland Business College í Danmörku. Ólöf var hluti af kokkalandsliðinu 2024 sem vann til glæsilegra verðlauna á Ólympíuleikunum (gull í Chef's Table, gull í Restaurant of Nations og þriðja sætið All Over). Þessi kraftakona var þó hvergi nærri hætt, heldur hristi svo fram úr erminni eitt stykki eftirréttabók sem ber nafnið Ómótstæðilegir Eftirréttir. Bókin er hin glæsilegasta og eitthvað sem allir nautnaseggir og matgæðingar ættu að eiga. Ólöf hefur verið í fremsta flokki í veitingabransanum í eftirréttagerð á stöðum eins og t.d. Apótekinu og Monkey‘s þar sem hún sá um þróun eftirrétta og á stórt hrós skilið fyrir frábæran afrakstur. Við mælum með að þið hlustið á þennan skemmtilega og áhugaverða þátt.

    1 hr 1 min
  • #13 - Áslaug Ragnarsdóttir Thorarensen

    Áslaug Ragnarsdóttir Thorarensen er þrettándi viðmælandi okkar Matmanna. Hún lærði heimspeki í Oslóarháskóla, og er einnig uppeldis-og menntunarfræðingur frá Háskóla Íslands. Til að fjölga skírteinunum aðeins meira, fór hún líka í Make up og Beauty skólann í Reykjavík þaðan sem hún útskrifaðist sem förðunarfræðingur. Áslaug er eigandi og framkvæmdastjóri fiskvinnslunnar Djúpið sem staðsett og starfrækt er að Fiskislóð 28 úti á Granda. Þar er unnið með gamla íslenska handbragðinu sem Áslaug telur mikilvægt að varðveita og er allur fiskur handflakaður á staðnum. Handtökin lærði hún af gömlum sjómönnum á sínum tíma og hefur síðan þá haldið ótrauð áfram. Mjög áhugaverður viðmælandi sem kallar ekki allt ömmu sína!


    1 hr 2 min
  • #12 - Adam Helgason

    Í tólfta þætti Matmanna fengum við Adam Karl Helgason í skemmtilegt spjall.  Adam sem  er mikill matgæðingur, er best þekktur fyrir TikTok klippurnar sínar um mat og veitingastaði.  Hann vinnur að frumkvöðlastarfi í fyrirtæki sem hann er meðeigandi að og ræðir meðal annars við okkur um það og  það hvernig honum tókst að verða sá áhrifavaldur sem hann er orðinn í dag. Honum Adam er margt til lista lagt og fannst okkur mjög fróðlegt að heyra um sveppaframleiðsluna og bætiefnaútrásina sem er eitt af þeim verkefnum sem hann hefur verið að undirbúa seinustu 4 árin og er nú orðið að veruleika. Bætiefnið sem um ræðir er hágæðavara sem m.a.  læknar taugafrumur í líkamanum, bætir einbeitingu og vinnur á kvíða en  fyrirtækið heitir North Tropics.


    1 hr 1 min
  • #11 - Gabríel Kristinn Bjarnason

    Gabríel  Kristinn Bjarnason er nýkrýndur kokkur ársins 2025 og er ellefti viðmælandi  MatManna. Gabríel hefur verið iðinn við kokkakeppnir hérlendis og erlendis frá unga aldri, hann er einnig í kokkalandsliðinu og hefur gríðarlegan metnað til að komast í gullið í næstu heimsmeistara keppni. Í dag starfar hann hjá fyrirtækinu Fastus sem sölumaður, en Gabríel lærði á Geira Smart Restaurant. Að undanförnu hefur hann haldið úti TikTok síðu um matseld í anda Jamie Oliver, en mottóið hjá okkar manni er að ef maður er ekki í fyrsta sæti þá er maður í því seinasta.


    1 hr 2 min
  • #10 - Siggi Pylsumeistari

    Sigurður Haraldsson er marg verðlaunaður kjötiðnaðarmeistari og einn af lífseigustu mönnum bransans, hann er tíundi viðmælandi Matmanna og hefur frá mörgu að segja. Siggi, eins og hann er gjarnan kallaður,rekur og á kjötvinsluna Kjötpól og einnig kjötbúðina Pylsumeistarann við Laugarlæk í Reykjavík, þar sem áhersla er lögð á gæðavörur og handverk í fremstu röð.  Siggi hefur unnið til tuga verðlauna fyrir vörurnar sem hann hefur til sölu í búðinni sinni (Pylsumeistarinn), þeir sem hafa komið við í búðinni hans vita að veggirnir þar eru fullir af viðurkenningum, medalíum og bikurum. Hann hefur starfað  í kjötbransanum lengur en flestir og hefur séð ýmislegt breytast í gegnum tíðina. Í þættinum rekur hann sögu sína í smáatriðum, segir frá skemmtilegum atvikum og kúnstinni að reka kjötbúð í dag. Siggi er sannkallaður meistari í sínu fagi og lifandi sagnagripur íslensks kjötiðnaðar.

    1 hr 2 min
  • #9 - Beggi Bakari

    Ingibergur Sigurðsson er bakari og Íslandsmeistari í glímu, hann er níundi viðmælandi Matmanna og hefur frá ýmsu að segja. Beggi eins og hann er oftast kallaður, rekur og á Reykjavík Bakarí  sem er heildsölu og framleiðslu bakarívinnsla. Þar er bakað fyrir veisluþjónustu fyrirtæki og bakarí. Beggi hefur starfað á Grand Hótel Reykjavík í tæplega 9 ára og sá um allan bakstur í því bakarí, einnig sá hann meðal annars um rekstur tveggja annara bakarí hér í Reykjavík. Svo er hann líka fyrverandi Íslands meistari í glímu 14 ár í röð og hefur einnig sjö sinnum unnið Grettisbeltið eftirsótta, sem glímukóngur Íslands í þeirri íþrótt.

    1 hr 11 min

About Matmenn

From the publisher's feed

Davið og Bjartur fara yfir allt sem tengjast matreiðslu á léttu nótunum og fær hlustendur til að fræðast og skella uppúr á sama tíma. Þættirnir verða gefnir út á hverjum föstudegi og eru þeir bæði í mynd og hljóði. Viðmælendur eru af ýmsum toga og koma þeir allir að mat á einn eða annan hátt.