
Sign up to save your podcasts
Or


** Varúð váhrif / Trigger Warning. Í samtalinu við Hafstein eru mörg erfið málefni rædd eins og einelti, kynferðisofbeldi gegn börnum, nauðgun og sjálfsvígshugsanir. **
-----
Hafsteinn Þórólfsson (hann) er söngvari, tónskáld og einstakur listamaður. Í þætti vikunnar segir hann okkur frá mögnuðu heilunarferðalagi sem hann þurfti að fara í vegna mikilla áfalla sem hafa dunið á honum í gegnum ævina. Við ræðum leiðir til sjálfsástar og heilunar sem og um skömmina, hinseginleikann, ástina, húmorinn og mikilvægi þess að eiga gott bakland og að leita sér hjálpar.
Þátturinn er óvenjulega langur að þessu sinni því frásögn Hafsteins er flókin, margslungin og marglaga.
---
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
www.bjarnisnae.com
IG: bjarni.snaebjornsson
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir
Ljósmynd af Hafsteini: Sunday & White Studio
Þorbjörg Þorvaldsdóttir (hún) er verkefnastýri hjá Samtökunum 78 og hefur verið ósérhlífin síðustu ár að berjast fyrir auknum mannréttindum ólíkra jaðarhópa. Í þættinum ræðum við um muninn á hatursorðræðu og hættulegri orðræðu. Ég læri um gagnvirka orðræðu og hvernig það er hjálplegt að manneskjuvæða hvort annað. Samtalið var mikill innblástur og minnti mig á hvernig mannréttindabarátta er maraþon og hvernig það gengur alltaf betur þegar við leggjum öll eitthvað að mörkum.
-----
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
www.bjarnisnae.com
IG: bjarni.snaebjornsson
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir
Gestur vikunnar er Guðbrandur Árni Ísberg sem er reynslumikill sálfræðingur og höfundur Hann hefur skrifað bækur bæði um NÁNDINA og SKÖMMINA og er þessi misserin að skrifa nýja bók um ÁSTINA. Þetta var svo skemmtilegt og lærdómsríkt samtal þar sem við fórum á dýptina og ég lærði mikið um hvernig skömmin er í raun til staðar til að hjálpa okkur, þó hún sé oftast óþægileg.
Ég mæli einnig með samtalinu sem Guðbrandur átti við Þorstein V. Einarsson hjá hlaðvarpinu Karlmennskunni árið 2022 þar sem hann ræðir einnig náið um skömmina. Hér er hlekkur á þann þátt: https://open.spotify.com/episode/065OXyeuzaYbXOcgHLuoDd?si=efd47eeae6824339
----
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
www.bjarnisnae.com
IG: bjarni.snaebjornsson
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir
Gestur þessa fyrsta þáttar er Vala Kristín Eiríksdóttir. Hún er leikkona, höfundur, framleiðandi og ein af mínum bestu vinkonum. Við kynnumst kvíðnum gíraffa, ræðum um ferðalag hennar í listinni, tilfinningar, breyskleika, vináttuna, innsæi og hlæjum okkur í gegnum klukkutíma af spjalli.
We Can Do Hard Things, viðtal við Alok: https://open.spotify.com/episode/6AzxGzTIB4SNEIkJOfo7fh?si=5734a95d893f457c
From the publisher's feed
Mennska fjallar um fegurð fjölbreytileikans og það sem sameinar okkur. Ég fæ magnað fólk til mín sem er að gera heiminn að betri stað og við ræðum breyskleika manneskjunnar, mismunandi leiðir til…
Mennska (Humanity) adresses the beauty of diversity and what unites us. I meet amazing people who are actively making the world a better place and we discuss the human condition, our frailty and strengths and how we can self-improve. In short, we delve into our humanity with vulnerability as a guiding light.
Most episodes are in Icelandic and some in English.
Tónlist/music: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun/cover design: Emilía Ragnarsdóttir hjá Forlaginu.
www.bjarnisnae.com
Instagram: bjarni.snaebjornsson
---
Hægt er að kaupa áskrift að mennsku hér: www.bjarnisnae.com/styrkja
Mennska verður þó alltaf opin og hverjum og einum er í sjálfsvald sett hversu mikið eða lítið þau vilja borga í "áskrift".