
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Góðan daginn fimmtudaginn!
Í þætti dagsins segir Bylgja okkur frá hrottalegu máli sem tekur alltof langan tíma að upplýsa. Ungur maður vildi bara dansa við unga konu en það var að venju reiður maður sem fann sig knúinn til að eyðileggja það.
Þátturinn er í boði: Nettó, Happy Hydrate, Óskaskrín, BL, Giggó, Fulltingi og Sassy
Þolandi: Timothy Coggins Gerendur: Frankie Gebhardht og Bill Moore
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn!
Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna og þar kynnumst við nokkrum einstaklingum í fjölkæru sambandi. Sem er vel, sérstaklega ef öll vita af því. Mikið kaos, margar spurningar og mikil undrun.
Þáttur dagsins er í boði Sassy, Happy Hydrate, BL, Giggó, Fulltingi, Óskaskrín og Nettó.
Þolandi: Desiree Sunford Gerandi: Marty Grismer. Allavega hann, kannski fleiri.
Góðan daginn, þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur alla leið til Ástralíu og segir okkur frá konu sem fannst myrt og brunnin í röri. Í kjölfarið fer af stað röð atburða sem gefur okkur þó alveg merkilega fá svör. Eiginlega alveg óþolandi, og líka stórmerkilegt. Þolandi: Linda Agostini, amk í einhverju máli. Þátturinn var í boði: Sassy, Happy Hydrate, BL, Óskaskrín, Fulltingi, Giggó og Nettó. Fyrir óklipptan þátt, sjónvarpsþátt eða áskriftarþætti þá mælum við með því að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Bylgja okkur frá alveg svakalega undarlegu máli. Blautum þvotti í poka, andliti á glugga, konu á tánumog manni með alveg svakalega stóra barta. Allt hið undarlegasta og enginn veit neitt.
Þáttur dagsins er í boði Sassy, BL, Fulltingi, Happy Hydrate, Nettó, Óskaskrín og Giggó. Fyrir óklipptan þátt, áskriftarþætti og sjónvarpsþætti mælum við með því að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
Góðan daginn, þennan fallega lestrardaginn. Í dag förum við yfir bókina Irpu eftir Hildi Knútsdóttur. Fyrir sjónvarpsþáttinn getiði kíkt inná www.pardus.is/mordcastid
Góðan og glæsilegan fimmtudaginn. Þáttur dagsins er aðeins kaotískur en það er einungis (ekki alveg kannski) vegna þess að málið er mjög kaotískt. Unnur fer með okkur í einskonar Evrópureisu hvar gamall kall tekur margar hræðilegar afleiðingar og margar konur eru fórnarlömb. Alltof týpískt.
Þáttur dagsins er í boði Nettó, gjafabréf.is, Happy Hydrate, BL, Fulltingi, Giggó og Sassy. Fyrir áskriftarþætti, óklippta vikuþætti og sjónvarpsþættina mælum við með að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
Góðan daginn, fimmtudaginn. Maður á leið í vinnu mjög snemma morguns rekst á kassa sem hann óskar mjög heitt að innihaldi matvöru úr Nettó. Hann gerði það ekki. Við sögu koma börn, fátækt, ömurð og buffalóar. Í boði Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, BL, Óskaskrín, Giggó og Sassy.
Góðan daginn, almyrkvadaginn.
Í dag er Unnur með okkur í Nýju Mexíkó, hvar fullorðinn maður flýr til Mexíkó með nýrri kærustu sinni. Eða hvað? Líklega alls ekki.
Þolandi: Craig Thetford Gerandi: Deana Thetford
Í boði BL og MG, Nettó, Happy Hydrate, Sassy, Giggó, Fulltingi og Óskaskrín
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Maður fær í bakið, missir vinnuna og endar á einhvern ótrúlegan hátt á því að láta særa úr sér illu andana. Suma. Ekki alla.
Þolandi: Christine Taylor
Þátturinn er í boði: Happy Hydrate, Nettó, Óskaskrín, Sassy, Giggó, Fulltingi og BL.
Góðan daginn, fimmtudaginn!
Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna, beinustu leið inná skyndbitastað til að fá okkur hamborgara og franskar. Það er þó ekki það eina sem við gerum í dag, því miður, því fjórir unglingar týnast og spurningarnar sem kvikna í kjölfarið eru óteljandi. Betra væri ef franskarnar væru óteljandi.
Í boði Giggó, Nettó, Happy Hydrate, Nettó, Fulltingi og Sassy.
Þolendur: Jayne Friedt, Mark Flemmonds, Ruth Shelton og Daniel Davis.