
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Yndislegur smiður og fjölskyldufaðir fer í æðislega norðurljósaferð á kayaknum sínum. Lætur eiginkonu sína vita seint og illa, en svo fer einhvern vegin allt í pat. Þáttur dagsins er í boði Anamma, Happy Hydrate, Nettó og Ristorante. Þolandi og gerandi: Ryan Borgwardt
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins förum við til Rússlands og Unnur segir Elínu frá máli sem gestir 5 ára afmælis Morðcastsins hafa nú þegar heyrt. Virkilega áhugavert mál og ómögulegt að deila ekki með fleirum, en í þætti dagsins daga tveir rokkarar alveg hrottalegar ákvarðanir í staðinn fyrir að fá sér bara einn kebab t.d. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Weetabix, Nettó og Happy Hydrate. Óklipptan þátt og áskriftarþætti má finna inná www.pardus.is/mordcastid
Þolandi: Karina Barduchyan Gerendur: Maxim Golovatskikh og Yury Mozhnov
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Bylgja frá einu ótrúlegasta máli sem við höfum heyrt af, í öllum þessum þáttum! Ung kona lendir í flugslysi og lifir af í fjölda daga í Amazon, gleraugnalaus og í einum skó. Alveg ótrúlegt og margfalt meiri seigla en flest okkar hafa að geyma. Þáttur dagsins var í boði Nettó, Happy Hydrate, Ristorante, Dineout og Anamma.
Góðan daginn, fimmtudaginn.
Í dag, sem oftar, erum við staðsett í Bandaríkjunum. Það gerast margir hræðilegir hlutir, margar undarlegar ákvarðanir eru teknar en ótrúlegt en satt eru líka góðir og jákvæðir hlutir sem gerast. Sem er alltaf frábært. Þáttur dagsins er í boði: Dineout, Nettó, Ristorante, Weetabix og Happy Hydrate
Í Bandaríkjunum (WHAT?!?!) verður æðislega sæt, góð og dugleg stelpukona ofsalega veik. Rætt er um hræringa og fæðubótarefni, leiðinlegar tengdamæður og jólahátíðir. Ásamt vangaveltum um það hvort kírópraktorar eru læknar eða miðlar.
Kaos og kjaftæði alla daga.
Þáttur dagsins er í boði Anamma, Nettó, Happy Hydrate, Ristorante og Dineout
Góðan daginn, fimmtudaginn!
Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur til Bandaríkjanna eins og eiginlega alltaf, í raunveruleikasjónvarp og í sturtu. Ekkert af þessu gott og hefur hræðilegar afleiðingar í för með sér. Kona er frábær, maður er vondur - við höfum heyrt þetta alltof oft.
Þáttur dagsins var í boði Ristorante, Happy Hydrate, Weetabix, Nettó og Dineout.
Fyrir óklippta þætti degi fyrr ásamt áskriftarþáttum og öðru aukaefni bendum við á www.pardus.is/mordcastid
Góðan daginn, fimmtudaginn
Í þætti dagsins hverfum við aftur til fortíðar í margskonar skilningi orðsins. Unnur segir frá máli sem gerist í Bandaríkjunum árið 1997 þegar ung háskólastelpa var myrt og málið er óleyst í fjölda ára, en þátturinn sjálfur var jafnframt tekinn upp fyrir einhverju síðan.
Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Ristorante, Nettó og Weetabix. Kíkið inná www.pardus.is/mordcastid fyrir óklippta þætti, áskriftarþætti og annað blaður.
Góðan daginn, fimmtudaginn!
Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur til Bandaríkjanna (sjokker) og segir ykkur frá algjörlega hrikalegu máli. Margir ungir menn taka mjög misgáfulegar ákvarðanir með vægast sagt hræðilegum afleiðingum.
Þáttur dagsins er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate og Weetabix
Í Winnipeg logar heldur glatt í heilu húsi og það virðist eiga rætur að rekja til konu sem hatar tengdamóður sína. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Anamma og Happy Hydrate.
Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins förum við til Bandaríkjanna eins og eiginlega alltaf, nema í þetta skiptið skoðum við eitt allra undarlegasta málið til þessa. Gríðarlega margar spurningar, margar samsæriskenningar, margar misgóðar upplýsingar og endalausar spurningar. Þáttur dagsins var í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Anamma.