
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
GLEÐILEGT NÝTT ÁR! Á þessum fyrsta degi ársins ferðumst við bæði til Svíþjóðar og Bandaríkjanna og hittum alls konar fólk.
Ákaflega misgott og misgáfulegt, eins og gengur og gerist.
Þátturinn er í boði Nettó, Ristorante og Happy Hydrate.
Góðan daginn, jólafimmtudaginn!
Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Kanada, kíkir þar í hýrt og hamingjusamt hverfi þaðan sem síðan hverfa alltof margir menn. Málið er hið sorglegasta, sérstaklega þegar að í ljós kemur að jólasveinninn (nema augljóslega ekki hann skiljiði) sjálfur gæti verið viðriðinn málið. Hrikalegt.
Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Göteborgs og 1104bymar.
Í Bandaríkjunum (sjokker) er gríðarlega löng hefð fyrir því að ungmenni stundi mikið partýstand í vorfríi. Fara gjarnan til sólríkari staða og hafa það náðugt, í sæmilegri prósentu.
Það var vissulega planið í þætti dagsins en það plan gekk auðvitað alls ekki eftir, eiginlega bara þvert á móti.
Þáttur dagsins er í boði Göteborgs, Nettó, Ristorante, Happy Hydrate, Forlagsins og 1104 by Mar.
Góðan daginn, fimmtudaginn.
Í þætti dagsins segir Unnur frá algjörlega hörmulegum eltihrelli sem tekur margar hræðilegar ákvarðanir áður en hann tekur síðan hræðilegustu ákvörðunina sem þú getur tekið. Lögreglan er léleg, stelpan er dásamleg og tie dye er æði.
Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Göteborgs, Dineout, 1104byMar og Mfitness.
Ætli það sé nú ekki enn og aftur fimmtudagur. Í þætti dagsins segir Bylgja frá unglingsstelpu sem skrifar í dagbók, elskar dýr, rífst við mömmu sína og fer út úr húsi í bleikum Crocs í góðri trú. Þátturinn er í boði Ristorante, 1104 by Mar, Dineout, Forlagsins, Göteborgs, Happy Hydrate og Nettó
Góðan daginn, fimmtudaginn!
Þáttur dagsins er af ömurlegri endanum. Unglingar taka hræðilegar ákvarðanir, hanga talsvert á netinu, en brjóta líka of mikið á öðrum. Algjör hörmungar samloka.
Þáttur dagsins var í boði Dineout, Mfitness, Forlagsins, 1104bymar, Fulltingi, Göteborgs, Nettó, Ristorante og Happy Hydrate.
Góðan daginn, fimmtudaginn!
Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur í agnarsmáa þyrpingu húsa hvar ung kona finnst látin. Margar spurningar vakna, enn fleiri harmleikir eiga sér stað og síðan þessu lauk eru bæjarbúar búnir að vera eitt stórt spurningamerki. Svoleiðis.
Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Ristorante, Göteborgs kexins, Nettó, 1004bymar, Fulltingi og Forlagsins
Í þætti dagsins erum við í Uttar Pradesh héraði í Indlandi. Þar hittum við fyrir svakalega marga ógeðslega menn, marga feiga menn og eina óþægilega stelpu (finnst sumum). Og typpahálsmen. Við heyrum um typpahálsmen.
Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Göteborgs og 1104 by Mar.
Góðan daginn, fimmtudaginn!
Í dag ferðumst við til Bandaríkjanna á Hrekkjavökunni sjálfri en í staðinn fyrir mikið gerviblóð er alltof mikið alvörublóð. Margt ömurlegt gerist en sem betur fer líka eitthvað gott.
Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Göteborgs, Fulltingi og 1104bymar