Morðcastið

Morðcastið

By Unnur BorgþórsdóttirComedyTrue Crime
Download on the App Store
  • Favorites

    147

    Followers

  • Latest release

    6 days ago

  • Typical duration

    56 min

    per episode

  • If it hooks

    61%

    finish an episode

Based on Podcast App listening data

All Morðcastið episodes

  • Orð dagsins er: Tvíburi

    Ástralskir tvíburar vekja mikla velgju í dag, eins og reyndar furðulega oft áður. Bylgja er komin úr sumarfríi og tafsar sig í gegnum ótrúlega sorglegt mál og segir sögu tveggja kvenna sem báðar áttu betra skilið en þær fengu. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og MFitness.

    Mál hefst: 22:55

    1 hr 5 min
  • Orð dagsins er: Bakari

    Góðan daginn, fimmtudaginn.

    Í dag fer Unnur með ykkur í ferðalag til Frakklands og segir ykkur frá því þegar ógeð með grímu, inspireraður af Scream, heldur af stað í sína eigin vegferð. Ömurleg og ógeðsleg vegferð svo við segjum alveg eins og er.

    Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Better you.

    Mál hefst: 5:30

    58 min
  • Orð dagsins er: Göngugarpur

    Góðan daginn þennan fimmta fimmtudaginn.

    Í dag endurnýtum við áskriftarefni og njótum þess að hafa það gott í sólinni, en það gerði hann Aimo Koivunen alls ekki á sínum tíma. Hans ferðalag var ekki svo fullt af sól og gleði, meira svona stútfullt af stríði og amfetamíni. Frábær saga samt og stórmerkileg.

    Þáttur dagsins er í boði Ristorante og Happy Hydrate.

    Mál hefst: 13:23

    45 min
  • Orð dagsins er: Smoothie

    Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur til Bandaríkjanna (þá ótrúlega sjaldan) og hittir fyrir stóra, samsetta fjölskyldu sem virðist hafa það gríðarlega gott. Hús og bátar og kirkjan og góðgerðarsamtök.

    En sjaldan eru hlutirnir jafn frábærir og þeir líta út fyrir að vera og þannig er það í dag líka. Einhvers staðar leiddist fólk út af beinu brautinni og tók hræðilegar ákvarðanir. Margar.

    Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Findus, MFitness og Sony (I Know What You Did Last Summer)

    Þáttur hefst:

    53 min
  • Orð dagsins er: Messa

    Góðan daginn, fimmtudaginn.

    Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna þar sem hún segir frá fallega samsettri prestsfjölskyldu sem allt í einu mætir svo ekki á réttum tíma í messu. Allt við málið er algjörlega hræðilegt og það hjálpar alls ekki að hafa allar þessar ósvöruðu spurningar.

    Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Better you, Smárabíó og Ajax.

    Mál hefst: 18:25

    1 hr 7 min
  • Orð dagins er: Pabbi

    Í þætti dagsins fáum við Sigríði Fanneyju loksins í heimsókn eftir langa bið. Bylgja segir sögu ungrar konu sem átti gríðarlega bjarta framtíð en fékk ekki að njóta hennar, þökk sé enn einum aumingjanum. Svo koma feður við sögu einnig. Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Findus, Smárabíós og Forlagsins. Þáttur hefst: 17:00.

    1 hr 5 min
  • Orð dagsins eru: Fjórði heimurinn

    Góðan daginn, fimmtudaginn!

    Í þætti dagsins ferðast Unnur með okkur til Nýja Sjálands, segir margar misáhugaverðar staðreyndir um Christchurch áður en hún segir frá tveimur unglingsstúlkum sem tengdust á hreint út sagt ótrúlegan hátt. Of vel segja sumir, mjög illa segja sennilega fleiri. Sama hvað, þá er þetta stórmerkilegt allt og auðvitað hrikalega sorglegt.

    Þáttur dagsins er í boði Nettó, Better you, Ristorante. Happy Hydrate, Ajax og Forlagsins

    Mál hefst: 12:30

    1 hr 5 min
  • Orð dagsins er: Niðursetningur

    Í þætti dagsins kynnumst við bandarískri fjölskyldu, einu sinni sem oftar. Húsfaðirinn ekki kannski eins almennilegur og við helst vildum og börnin áttu eins og vanalega miklu betra skilið. Öll börnin. Líka þau sem hann giftist.

    Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Findus og Happy Hydrate.

    1 hr 26 min
  • Orð dagsins er: Flipparar

    Góðan daginn, fimmtudaginn.

    Í þætti dagsins fer Unnur með okkur um víðan völl, það eru mormónar, nærbuxur, þvæla og vitleysa. Ásamt auðvitað allskonar hörmungum og ógeði eins og alltaf, því miður! Alltaf áhugavert samt.

    Þáttur dagsins er í boði Better you, Ajax, Nettó, Happy Hydrate og Ristorante.

    Mál hefst: 1:30

    42 min
  • Orð dagsins er: Skyrglíma

    Í þætti dagsins er bæði agalega vont veður og tveir aular að slást. Kemur málinu þannig séð ekkert við auðvitað.

    Við lendum í nágrenni Houston í Texas í vatnsveðri og fylgjumst með því hvernig leit að týndri konu gengur alls ekki nógu hratt.

    Þátturinn er í boði: Findus, Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Better You.

    52 min