
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Júllijúhú!
Í þætti dagsins segir Bylgja frá hræðilegri fjölskyldu sem gerir hræðilega hluti og skammast sín ekki neitt. Ógeðslegt og ömurlegt í alla staði.
Unnur segir frá pari sem hefði betur ekki gengið jafn langt og þau gerðu til þess að uppfylla adrenalínþránna.
Í boði Artasan ehf., Ömmu mús og Ristorante.
www.mordcastid.is
Góðan daginn fimmtudaginn!
Þáttur dagsins í dag er þemaþáttur, hvorki meira né minna en tölvuleikja þema. Gaming!
Unnur segir frá allskonar tengingum við tölvuleiki áður en hún segir svo frá ungum strák sem framkvæmir hræðilegan hlut á heimili sínu. Bylgja segir svosem frá svipuðu máli, þó reyndar ekki því sama. Margir fjölskyldumeðlimir sem hljóta sorglegan endi hér í dag.
Í boði Elko, Artasan, Ömmu Mús og Ristorante
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn.
Þáttur dagsins er alls ekki á jákvæðari nótum en einhver annar, því miður, illa farið með alltof margar manneskjur.
Bylgja er staðsett í Bandaríkjunum að venju, þar er hundakona sem hlýtur hræðileg örlög og málið vekur margar spurningar sem við fáum því miður ekki svarað. Já hún er með óupplýst. Unnur hinsvegar segir frá máli sem tengist málinu hennar í Live þættinum, raðmorðingi og hans saga. Í boði Artasan, Ristorante og Ömmu mús.
Góðan daginn fimmtudaginn!
Það eru tvö mál í þætti dagsins og alltof mikill viðbjóður.
Bylgja segir frá ungum systrum í Bandaríkjunum sem elska Elvis Presley á meðan Unnur segir frá konu (og hundi) sem lifir hamingjusöm til æviloka. Djók, því miður.
Í boði Artasan ehf, Ömmu mús og Ristorante. Ps. Ef þið viljið hlusta á fleiri þætti þá mælum við með því að kíkja inná Pardus.is
Það er bara komið haust. Rútínan og endalausir fimmtudagar.
Systur eru í bæði Evrópu og Norður-Ameríku í dag og segja hlustendum frá villuráfandi eista, ógeðslegu fólki og barnapíum sem áttu mun betra skilið en þær uppskáru.
Þið getið fundið óklipptu útgáfu af þessum þætti auk fjölda annarra inná Pardus.is.
Þátturinn er í boði Ristorante.
Skemmtiferðaskip, what a concept. Her líka, hvað er málið með her?
Þáttur dagsins býður uppá tvö mál, í rauninni talsvert fleiri reyndar, en amk mjög mikið af ömurð. Annað málið gerist á skemmtiferðaskipi sem endaði sem ekkert sérstaklega skemmtilegt skip og hitt segir frá ungu pari í Bandaríkjunum sem hefðu ekki endilega átt að vera kærustupar.
Þið getið fundið óklipptu útgáfu af þessum þætti auk fjölda annarra inná Pardus.is.
Í boði Ristorante.
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn.
Það eru hvorki meira né minna en tvö mál tekin fyrir í þætti dagsins og gerast þau bæði í Bandaríkjunum. Það er margt sem gerist en helst er það kannski það að því miður verða alltof mörg börn fyrir ógeðslegu ofbeldi og við erum enn og aftur minnt á að vera frekar bara góð við hvort annað.
Í boði 1104bymar.is og Ristorante
Það eru bara 22 fimmtudagar eftir af árinu, sem þýðir að það eru bara 22 Morðcastsþættir eftir á árinu. Það hlýtur nú svosem að vera feikinóg.
Allavega, í þætti dagsins fáum við systur munnræpu í mjög langan tíma áður en Unnur segir frá ömurlegu máli sem gerist í Orlando. Mjög ömurlegt. Svakalega væri gott ef fólk væri ekki ömurlegt.
Jæja, gleðilegan fimmtudag!
Í boði Ristorante og 1104bymar.is
Jú góðan daginn fimmtudaginn.
Viðeigandi í þessari þrítugustu bylgju af Covid taki Bylgja fyrir mál sem er mjög tengt covid og samkomutakmörkunum? Það hefði ég haldið, alla leiðina frá Bretlandi til Íslands.
Í boði 1104bymar.is og Ristorante.
Þrjúþúsundasti fimmtudagur ársins, merkilegt.
Unnur segir frá áhugaverðu máli sem gerist í Bandaríkjunum, það er heimspeki, ástarþríhyrningur og í rauninni allt sem maður býst ekki við. Samt svo fyrirsjáanlegt eitthvað. Æj þið vitið hvernig þetta er. Í boði 1104bymar.is, Geosilica og Ristorante.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

466 Listeners

215 Listeners

122 Listeners

26 Listeners

90 Listeners

19 Listeners

72 Listeners

31 Listeners

20 Listeners

19 Listeners

14 Listeners

6 Listeners

26 Listeners

14 Listeners

3 Listeners