Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.... more
FAQs about Morgunkaffið:How many episodes does Morgunkaffið have?The podcast currently has 141 episodes available.
January 11, 2020Morgunkaffið - Tyrfingur & UglaMorgunkaffið var á sínum stað í dag, 11. janúar. Björg Magnúsdóttir og Helgi Seljan voru á vaktinni að þessu sinni, í fjarveru Gísla Marteins. Gestir þáttarins voru leikskáldið Tyrfingur Tyrfingsson, sem er nú búsettur í Amsterdam og ritlistarneminn Ugla Egilsdóttir. Á næstunni verður frumsýnt nýtt leikrit eftir Tyrfing, Helgi Þór rofnar í Borgarleikhúsinu. Það mál var rætt sem og ýmislegt fleira, meðal annars reiprennandi frönskukunnátta Uglu og skiptinám hennar í París....more3h 15minPlay
January 04, 2020Morgunkaffið - Árni Vilhjálmsson og Ragnar Ísleifur BragasonFyrsti þáttur nýs árs. Bestu lög 2019 spiluð. Árni Vilhjálmsson og Ragnar Ísleifur Bragason úr leikhópnum Kriðpleiri litu við og spjölluðu meðal annars um jólaleikrit Rúv sem þeir sömdu og fluttu....more3h 15minPlay
December 28, 2019Morgunkaffið - milli jóla og nýárs. Stefán Jón Hafstein.Gestastjórnandi þáttarins í fjarveru Bjargar Magnúsdóttur var Hafdís Helga Helgadóttir. Jólalög og stemning. Viðtal við Stefán Jón Hafstein....more2h 15minPlay
December 21, 2019Morgunkaffið - Jólastemning á Laugavegi. Pétur Gunnarsson, Ólafur ÖrnÞátturinn var í jólaskapi í miðbænum og fékk til sín fjölda góðra gesta sem sögðu okkur frá jólasiðum og stemningu í kringum hátíðirnar. Pétur Gunnarsson rithöfundur sagði okkur frá bók sinni HKL ástarsaga, Ólafur Örn Ólafsson veitingamaður talaði um jólamatinn, Ása Baldursdóttir talaði um jólakvikmyndir og Teitur Magnússon spilaði fallegt lag....more3h 15minPlay
December 14, 2019Morgunkaffið - Vigdís Finnbogadóttir og Rán FlygenringMorgunkaffið var í hátíðarskapi og öll lög þáttarins voru jólalög, nema tvö en þau fjölluðu bæði um Vigdísi Finnbogadóttur sem var einmitt annar gesta þáttarins en hinn var Rán Flygenring sem hefur nýlokið við að skrifa bók um Vigdísi. Þær stöllur töluðu um bókina, kjör Vigdísar, eftirminnilegt samferðafólk hennar, æskustöðvar og fólkið í landinu....more3h 15minPlay
December 07, 2019Morgunkaffið - Manuela Ósk & Jón MýrdalMorgunkaffi-teymið var með óvæntu sniði í dag, því Viktoría Hermannsdóttir fjölmiðlakona stóð vaktina í fjarveru Gísla Marteins. Björg var á sínum stað og tóku dömurnar á móti Manuelu Ósk Harðardóttur athafnakonu og fegurðardrottningu og Jóni Mýrdal eiganda skemmtistaðarins Röntgen á Hverfisgötu. Farið var um víðan völl í spjallinu, samfélagsmiðlar, siðferði, Pepsi Max og heilaæxli svo fátt eitt sé nefnt....more3h 15minPlay
November 30, 2019Morgunkaffið - Páll Baldvin Baldvinsson og Maríanna Clara LúthersdóttiÁ síðasta degi nóvembermánaðar er Morgunkaffið í skammdegisstemningu. Vetrarlög eru spiluð, farið í kringum jólalög einsog köttur í kringum heitan graut en engin slík spiluð. Páll Baldvin Baldvinsson hefur nýlokið við að skrifa bók um Síldarárin og sagði hlustendum frá hinum mörgu síldarævintýrum okkar Íslendinga og Maríanna Clara bókmenntafræðingur og leikkona talaði um jólabækur og uppskeruhátíð skálda og bókaunnenda. Bæði hafa þau svo mikinn áhuga á söngleikjum, sem fá drjúgan tíma í þættinum....more3h 15minPlay
November 23, 2019Morgunkaffið - Guðrún Eva Mínervudóttir og Stefán JónssonGestir þáttarins Guðrún Eva Mínervudóttir og Stefán Jónsson eiga margt sameiginlegt þótt annað þeirra sé alið upp við hliðina á Kaffibarnum og hitt í hinum ýmsu þorpum víðsvegar um landið. Guðrún Eva er með eina af athyglisverðustu bókum þessa árs, Aðferðir til að lifa af, og Stefán Jónsson leikur organistann í Atómstöðinni og er auk þess að leikstýra nýju leikriti í Borgarleikhúsinu. Þau ræddu um bíllausan lífsstíl í Hveragerði og íslenska popp-gerjun í Lundúnum í byrjun níunnar (tíunda áratugarins)....more3h 15minPlay
November 16, 2019Morgunkaffið - Dagur íslenskrar tungu, Auður Jónsdóttir, Halldór HalldÁ degi íslenskrar tungu leikur Morgunkaffið eingöngu lög sem sungin eru á íslensku. Gerð er sérstök leit að slíkum lögum sem sungin eru af fólki sem ekki hefur íslensku sem móðurmál, hlustendur senda inn hugmyndir. Auður Jónsdóttir rithöfundur og Halldór Halldórsson, Dóri DNA líta í heimsókn og ræða um bækur sínar og leikverk og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Einar Þorsteinsson líta við og ræða loftslagsmál....more3h 15minPlay
November 09, 2019Morgunkaffið - Airwaves stemningMorgunkaffið í beinni útsendingu frá Slippbarnum við Mýrargötu í Reykjavík. Fjöldi gesta lítur í heimsókn: Hljómsveitirnar Sykur, Between Mountains og Vök. Fannar úr Hipsumhaps leit við og einnig rithöfundarnir Bragi Páll Sigurðsson og Bergþóra Snæbjörnsdóttir sem eru nýbakaðir foreldrar og bæði með bók þessi jólin....more3h 15minPlay
FAQs about Morgunkaffið:How many episodes does Morgunkaffið have?The podcast currently has 141 episodes available.