Gestir Morgunkaffisins í dag voru rithöfundurinn Auður Ava Ólafsdóttir og útvarps-, tónlistar- og leikaramaðurinn Jóhann Kristófer. Við ræddum bækur, leikhús, óperur, fíkniefni og allskonar við þau og höfðum öll gaman að!
Rykið var síðan dustað af söngleikjahorni Bjargar og Gísla Marteins og fyrsta lagið úr Book of Mormon eftir Trey Parker og félaga, Hello!, var sett á fóninn. Sem sagt góð erlend tónlist í bland við eðalíslenska smelli.