Það var sannarlega hellt upp á gott kaffi í Efstaleitinu á þessum dásamlega laugardagsmorgni þegar sólin skín í Reykjavík. Björg og Gísli Marteinn voru á sínum stað, rúlluðu yfir skandinavísku framlög í Eurovision í ár og fóru yfir eitt og annað í tengslum við fréttir vikunnar og málefni líðandi stundar.
Egill Eðvarðsson, upptökustjóri, dagskrár- og kvikmyndagerðarmaður, myndlistamaður og músíkant, kom síðan í hús í morgunkaffi. Hann fór yfir allskonar skemmtilegar sögur af ferlinum sem spannar um það bil hálfa öld. Einstaklega skemmtilegur og líflegur maður sem hefur á ný helgað sig myndlistinni!
Við slóum líka á þráðinn lengst vestur í Árneshrepp og ræddum við hótelstýruna á staðnum, Evu Sigurbjörnsdóttur, sem hefur frá mörgu að segja.