
Sign up to save your podcasts
Or


Gestur okkar í þessum þætti er Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar. Hún er Grundfirðingur, lögfræðingur að mennt, með mastersgráðu í verkefnastjórnun, MPM, og diplóma í opinberri stjórnsýslu og stjórnun. Björg hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum samhliða störfum sínum, bæði á vettvangi sveitarstjórnarmála og nú síðari árin m.a. í íþróttastarfi og í skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Hvað er það sem heillar svona mikið við sveitastjórnarmálin að Björg hefur verið bæjarstjóri í samtals 14 ár! Hlustið og þið munið komast að því.
Í sjötta þætti Munnbita og menningarvita eru viðmælendur okkar Guðrún Lilja Magnúsdóttir (Lilja Magg) og Signý Gunnarsdóttir. Þær, ásamt Karitas Eiðsdóttur, opnuðu Græna kompaníið í Grundarfirði 20. mars 2021. Hvernig datt þessum ungu athafnakonum að skella sér í rekstur á kaffihúsi, bóka- og garnbúð þessum tímum?
Í fimmta þætti Munnbita og menningarvita er viðmælandi okkar Runólfur (Runni) Guðmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri sjávarútvegsfyrirtækisins G.RUN. Runni fer yfir sögu G.RUN ásamt því að segja okkur frá því þegar hann meig fyrst í saltan sjó 14 ára. Frá því að hann hóf sjómennsku og að vinna í fjölskyldufyrirtækinu hefur margt breyst.
Í fjórða þætti Munnbita og menningarvita er viðmælandi okkar Ragnhildur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Svæðisgarðs Snæfellsness. Það má með sanni segja að Ragnhildur brennur fyrir Snæfellsnesinu og gott að hún fann ástina á svæðinu. Hugmyndaauðgi og kraftur einkenna hana og verður spennandi að fylgjast með hennar störfum á komandi árum.
Hjalti Allan Sverrisson er viðmælandi Munnbita og menningarvita og verður farið yfir víðan völl í þessum þætti. Strax í byrjun varpaði Hjalti bombu inn í samtalið sem varð til þess að matreiðslumaðurinn missti kjálkann niður á gólf. Til að bjarga kjálkanum þurfti að fara hægt yfir málin. Hjalti er vel giftur, skemmtilegur og metnaðargjarn fyrir samfélagið í heild sinni.
Lúðvík Karlsson (Lúlli Kalla, Steinríkur, Liston, Lúlli heitinn) er viðmælandi Munnbita og menningarvita að þessu sinni. Fróðlegt spjall um hvernig er að alast upp í litlu samfélagi, um frelsið sem því fylgir og tækifærin.
Í þessum fyrsta þætti Munnbita og menningarvita er rætt við Inga Hans Jónsson, barinn og berfættan Grundfirðing, um það að vera alinn upp af samfélagi. Farið er vítt og breitt um víðan völl og hlátur kemur mikið við sögu sem og sögumiðstöðina sem Ingi Hans er að setja upp í Grundarfirði (í ekki á!!!).
From the publisher's feed