Normið
Download on the App Store

Normið episodes

  • 131. Hæhæ Normið!

    Það er ekkert eðlilega gaman að spjalla við Hjálmar og Helga í Hæhæ. Við erum líka öll fjögur aldeilis óeðlilegt fólk, eins og reyndar flestir. Mikið hlegið en líka mikið rætt um mannlegheitin, þeir eru nefnilega mestu ljúflingar og hafa mikið að segja um vellíðan og hamingjuna. Voilá!

    1 hr 28 min
  • 132. Lífshökk pt. 2

    Þetta elsku líf getur verið einn fáránlegasti og skemmtilegasti og mest krefjandi rússíbani sem hægt er að upplifa - svo við ákváðum að henda í annan Lífshökk þátt (fyrsti var þáttur nr. 38) og skoða hvernig við getum komið lífinu í meira jafnvægi og haft gaman af. ATH! það er því miður ekki hægt að skrá sig á námskeiðið sem við tölum um í þættinum. <3

    1 hr 8 min
  • 133. Helgi Rúnar - Öflugasta hugarfar Íslands

    Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66° Norður, er með eitt öflugasta hugarfar sem hægt er að finna. Það eru forréttindi að fá að kroppa í heila og hjarta þessa kraftmikla manns. Sleggjusetningarnar og gullmolarnir flæddu eins og enginn væri morgundagurinn í þessum þætti og við viljum bara bjóða ykkur hjartanlega velkomin í þessa úrvals hlustun, upp með glósubækurnar! 

    Þessi þáttur er í boði Vichy, TÖST, Dr. Teals, Lopi Draumur, BioKult, Innocent og Saffrox. TAKK fyrir að vera partur af Norminu.  

    1 hr 13 min
  • 134. Heyheyy.. Ertu á staðnum?

    Kíkjum á góðar leiðir til þess að líða vel í eigin félagsskap. Þetta getur verið snúið fyrir marga og klárlega þess virði að æfa sig í. Lífsgæðin bíða - lets go!

    Þessi þáttur er í samstarfi við Vichy, New Nordic, Collab, TÖST, CeraVe, Innocent, Dr. Teals og BioKult. Allt vörur sem við notum og njótum. TAKK.

    1 hr 24 min
  • 136. Skrúfaðu hausinn aftur á

    Normið er 3 ára!! Það eru ÞRJÚ heil ár síðan að við Ebbi og Silli lögðum upp í þessa miklu plebbaferð með ykkur. Okkur þykir svo óendanlega vænt um þig kæri hlustandi. Í þessum þætti fórum við aðeins yfir farinn veg. Hóla og hæðir, holurnar sem við höfum dottið ofaní og lærdóminn sem þeim fylgdu. Onelove. 

    54 min
  • 137. Treystum við karlmennskunni? - Matti Osvald

    Síðustu misseri hafa skapast sterkar umræður á milli kvenorkunar og karlorkunnar. Við fengum Matta Osvald, heildrænan heilsufræðing, markþjálfa og fyrirlesara, í hreint og beint spjall um alvöru karlmennsku og samskipti fólks. Hvað þurfum við öll að skoða til þess að ná umræðunni upp á hærra plan? Það er mikilvægt að við kynnum okkur öll málið. 

    1 hr 13 min
  • 139. Skuggahliðarnar - WORKSHOP

    Hvað er það sem er að trufla þig dagsdaglega? Af hverju fer maður stundum í vörn? og hvers vegna í ósköpunum verður maður stundum svo óstjórnlega pirraður á hlutum sem ættu ekki að skipta neitt miklu máli. :) Skoðum og LOSUM. 

    48 min

About Normið

From the publisher's feed

Eva Matta og Sylvía Briem Friðjóns, þjálfarar og athafnakonur, taka hrátt plebbaspjall um mannlegheit og skoða leiðir til þess að gera lífið skemmtilegra.