Normið
Download on the App Store

Normið episodes

  • 141. Kvíðinn er lygari - Sara Páls

    ÞÚ. VERÐUR. AÐ. HLUSTA. Sara Páls er dáleiðari, orkuheilari, fyrirlesari og lögmaður. Hún hefur sjálf mikla reynslu af kvíða og vinnur nú meðal annars við það að halda námskeið og fyrirlestra sem hjálpa fólki að komast út úr þessu leiðinda kvíðaástandi sem við könnumst mörg við. Þessi þáttur er gamechanger. Taktu þér stund í að heyra hvað Sara hefur að segja. Það gæti einfaldað líf þitt verulega.

    1 hr 10 min
  • 142. Loddaralíðan - Berglind Ósk

    Loddaralíðan (e. imposter syndrome) er að finnast maður ekki eins klár og aðrir halda að maður sé og óttast að það komist upp um mann. Þessi líðan er viðvarandi þrátt fyrir endurtekinn árangur.

    Berglind hefur, eins og mjög margir, farið í gegnum þessa svokölluðu Loddaralíðan - eða Imposter Syndrome. Hún er upplifunarþenkjandi textasmiður og tölvunarfræðingur - virkilega skemmtileg og áhugaverð manneskja! Berglind bjó reyndar til orðið "loddaralíðan" og skifaði bók með hugleiðingum, örsögum og ljóðum um þessa líðan. 

    56 min
  • 143. Flæðum einfaldlega inn í nýtt ár

    ahhh... it's time. Dagurinn er runninn upp - þú ert að stíga inn í nýtt ár og pressan mögulega magnast. Væri ekki ljúft að fara inn í nýtt ár pressulaus í ljúfum gír? Ja tak det er helt fint. Gleðilegt ár baby, gerum þetta saman. 

    58 min
  • 144. Að lifa.. eða lifa af? - Coping Mechanisms

    Það má alveg deila um hversu ágæt þessi síðustu 2 ár hafa verið. Sennilega höfum við öll upplifað þrotið á einhverjum tímapunkti og sumir ef til vill orðnir veeel langþreyttir á þessu ástandi. En hvernig er ástandið á þér elsku? Skoðum coping mekkanisma og athugum hvaða leið er hægt að fara í lífinu! BÆNG

    1 hr 4 min
  • 145. Aldís Amah - "Minnkaðu þjáninguna í þínu lífi"

    Aldís er svona manneskja sem smitar út frá sér lífsneistann. Það er fáránlega skemmtilegt að spjalla við hana, gildin eru sterk og ákveðnin allsráðandi. Það er ekki af ástæðulausu að hún nær stöðugt flottum árangri - hún býr til tækifærin í sínu eigin lífi. Þvílík fyrirmynd! Hlustum og lærum. 

    1 hr 29 min
  • 147. Stressfíkn

    Við getum öll orðið háð einhverjum tilfinningum sem við erum vön að finna… og stressið getur orðið vani. En hver nennir að

    vera háður stressi? Ekki við. Ekki þú. Kíkjum á þetta og útrýmum stressfíkn.

    1 hr 9 min
  • 149. Lífið er leikvöllur - Laðaðu að þér lífið sem þú vilt
    Fólk er mis móttækilegt fyrir hugmyndinni um manifestation. Að maður geti laðað að sér allskonar snilld í lífinu með ákveðnu afli. En við vitum öll að aðdráttarafl er vísindalega sannað fyrirbæri. Við veltum þessu fyrir okkur, ræðum hvernig maður nær sér út úr hausnum á sér og hvað við þurfum að gera til þess að geta treyst lífinu.
    1 hr 23 min
  • 150. Hormónakerfið - Ertu eitthvað tæp/ur eða?

    ALLS ekki vanmeta mikilvægi hormónakerfisins. Þetta er eiginlega bara undirstaða þess að þú náir jafnvægi í lífinu elsku hjartans þú. Hlustaðu, lærðu og náðu þér í ljúft og gott líf - fullt af orku og gleði og jafnaðargeði. 

    1 hr 8 min

About Normið

From the publisher's feed

Eva Matta og Sylvía Briem Friðjóns, þjálfarar og athafnakonur, taka hrátt plebbaspjall um mannlegheit og skoða leiðir til þess að gera lífið skemmtilegra.