Elín Sif Halldórsdóttir og Eyrún Björk Jakobsdóttir leika aðalhlutverkin í íslensku kvikmyndinni Lof mér að falla sem frumsýnd verður í vikunni, þær spjölluðu við okkur um ferlið, neyslu og margt fleira. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður útskýrir Þjóðardeildina fyrir okkur en Ísland hefur leik í henni nú á laugardag. Svo heyrum við í Pan Thorarensen og hann segir okkur frá Extreme Chill festival sem að hefst í dag.