Núllið

Núllið

Download on the App Store

Núllið episodes

  • 31. ágúst
    Elísabet Brynjarsdóttir forseti stúdentaráðs fer yfir starfsemi stúdentaráðs og það sem framundan er hjá háskólanum. Elínborg Harpa Önundardóttir tekur á móti Núllinu í Andrými. Egill Spegill fer yfir hvað sé að gerast um helgina.
    0 min
  • 30.ágúst
    Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður, fer yfir helstu og markverðustu fréttir vikunnar, þar er það sérstaklega landsleikur Íslands og Þýskalands í umspili fyrir HM sem er framundan. Pétur Eggerz gaf út sína fyrstu plötu nú í sumar, hann hefur lengi verið að dunda sér í tónlist og sagði okkur meðal annars frá stúdíói sem að hann er að vinna að. Við ræðum svo leikárið við Ebbu Katrínu Finnsdóttur, nýútskrifaða leikkonu sem að mun stíga á svið í Borgarleikhúsinu í haust.
    0 min
  • 29.ágúst
    Pétur Marteinn er á sínum stað í dag og að þessu sinni ætlar hann að segja okkur söguna af því þegar borðtennis breytti heiminum, eða svona um það bil. Við heyrum líka í Elsu Þóreyju hjá Plastlausum september og hún gaf okkur nokkur góð ráð við því að minnka plastnotkun. Ísak fór svo og spjallaði við Snorra Másson sem að gerðist svo frægur að sjá Páfan sjálfann á ferðalagi sínu um Dublin.
    0 min
  • 28.ágúst
    Geir Finnsson er að sjálfsöðgu á sínum stað og í dag ræðir hann umdeildan boxbardaga tveggja YouTubera sem að fram fór í Manchester um helgina. Arnar Logi Hákonarson gaf út sín fyrstu lög nú á dögunum, hann kíkti til okkar og sagði frá sinni tónlist. Svo heyrum við hljóðið í tveimur nemendum Háskóla Íslands, Matthildi Maríu og Eiríki Búa, en eins og margir aðrir byrjuðu þau í skólanum í gær.
    0 min
  • 27.ágúst
    Tónlistarmaðurinn Helgi Kristjánsson mun í vikunni gefa út sína fyrstu plötu, Skýjabönd, hann kíkti til okkar og sagði okkur sína sögu. Mánudagsgestur vikunnar er enginn annar en Högni Egilsson, oft kenndur við Hjaltalín, við ræðum æskuna, Belgíu og ekki síst körfubolta. Karen Björg Þorsteinsdóttir er svo á sínum stað með tískuhornið en í dag ræðum við hið sívinsæla tan.
    0 min
  • 24.ágúst
    Egill Spegill er á sínum stað eins og aðra föstudaga og fer yfir allt það helsta sem er að gerast um helgina. Söngkonan Bríet kíkir líka í heimsókn en hún gaf í dag út lag ásamt Aroni Can. Svo fræðumst við örlítið um FOMO eða Fear of missing out, sem að getur hrjáð marga á samfélagsmiðlaöld.
    0 min
  • 23.ágúst
    Við förum yfir íþróttafréttir vikunnar með Hauki Harðarsyni, Pepsi-deildina og væntanlegan landsleik kvennalandslisðins í fótbolta. Vera Illugadóttir hefur snúið aftur með Í ljósi sögunnar eftir það sem mörgum fannst of langt hlé. Hún byrjar af krafti með þriggja þátta seríu um hinn áhugaverða Thomas Quick, Vera sagði okkur frá honum og því sem má búast við í vetur. Katrín Guðbjartsdóttir og Hjalti Torfason úr hljómsveitinni Hórmónum kíktu líka til okkar og sögðu frá væntanlegri plötu þeirra Nanananabúbú.
    0 min
  • 22.ágúst
    Brynhildur Karlsdóttir og Tómas Gauti Jóhannsson frumsýna í dag sýninguna Allt sem er fallegt í lífinu, þau ræddu ferlið, karlmennskuna og samskipti kynjanna. Pétur Marteinn er á sínum stað og umræðuefni þessa vikuna er ullmálið mikla sem hefur grasserað í borgarstjórn Reykjavíkur. Nú þegar skólarnir eru farnir að hefjast er tilvalið að fá nokkur góð ráð til að halda manni á floti yfir önnina, Kristjana Mjöll Sigurðardóttir náms og-starfsráðgjafi kíkti til okkar.
    0 min
  • 21.ágúst
    Geir Finnsson fer eins og venjulega yfir kvikmyndir, tölvuleiki og sjónvarpsþáttafréttir vikunnar, í dag eru það hryllingsmyndir sem að hann ætlar að ræða við okkur. Rapparinn Birnir gaf á mánudag út sína fyrstu plötu, hann og Arnar Ingi, pródúser, kíktu til okkar, ræddu plötuna og framhaldið. Svo kom Sölvi Kolbeinsson til okkar en hann er ungur saxófónleikari og mun ásamt jazzbandi sínu halda tónleika í Norræna húsinu á miðvikudag.
    0 min
  • 20.ágúst
    Rapparinn GKR og pródúserinn Pálmi Ragnar kíktu til okkar með nýjasta lagið sitt, Kúl. Karen Björg Þorsteinsdóttir var á sínum stað með tískuhornið og að þessu sinni fórum við yfir hausttískuna enda ekki seinna vænna að fara að velta henni aðeins fyrir sér. Arnór Dan Arnarsson er svo mánudagsgestur vikunnar og hann ræddi við okkur allt milli himins og jarðar, frá Agent Fresco yfir í nýútkomið sólólag.
    0 min

About Núllið

From the publisher's feed

Núllið færir þér daglega allt það sem er efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Hvort sem það eru friðarviðræður í Norður Kóreu eða nýjasta Gucci beltið, þá munt þú heyra það fyrst í Núllinu með…