Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Núllið færir þér daglega allt það sem er efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Hvort sem það eru friðarviðræður í Norður Kóreu eða nýjasta Gucci beltið, þá munt þú heyra það fyrst í Núllinu með Jaf... more
FAQs about Núllið:How many episodes does Núllið have?The podcast currently has 94 episodes available.
August 02, 20182. ágústVið rennum yfir það heitasta í þjóðhátíðartískunni með Karen Björg Þorsteinsdóttur, bestu pollagallana og nauðsynlega aukahluti. Svo koma þau til okkar meðleigjendurnir Brynhildur Karlsdóttir og Adolf Smári en þau verða með gjörning á heimili sínu um helgina. Þar munu þau lesa upp bréf sem að þau hafa sent hvort öðru þau tvö ár sem að þau hafa búið saman, við fáum að heyra brot úr einu bréfi....more0minPlay
August 01, 20181. ágústVið komum okkur í þjóðhátíðargírinn í þætti dagsins og byrjum á því að fá Nínu Richter og Davíð Roach til að rýna í nokkur af þeim þjóðhátíðarlögum sem að hafa komið út fyrir þjóðhátíð í ár. Síðan fer Pétur Marteinn yfir sögu frídags verslunarmanna og segir okkur frá verslunarmanninum Petur Bryde og upphafi þjóðhátíðar....more0minPlay
July 31, 201831. júlíGeir Finnsson er á sínum stað eins og alla þriðjudaga, að þessu sinni ræddi hann meðal annars stórar fréttir úr Star Wars heiminum. Við fræddumst líka aðeins um pönk á Íslandi en sagnfræðingurinn Unnur María Bergsveinsdóttir kom til okkar en hún mun leiða kvöldgöngu um helstu pönksvæði Reykjavíkur þann 2.ágúst....more0minPlay
July 30, 201830. júlíMánudagsgestur vikunnar er enginn annar er rapparinn Arnar Freyr Frostason eða Arnar Úlfur. Hann ræddi Sauðárkrók, rappið og viðskiptafræði svo eitthvað sé nefnt og leyfði okkur að heyra lag af væntanlegri sólóplötu sinni. Karen Björg Þorsteinsdóttir var líka á sínum stað með tískuhornið og að þessu sinni fórum við út í heimspekilegar pælingar varðandi mun á tísku í Reykjavík og á Akureyri....more0minPlay
July 27, 201827. júlíEins og aðra föstudaga fer Egill Spegill yfir helgina með okkur, hvað er að gerast og hvar? Á laugardaginn verða haldnir tónleikar í Trékyllisvík en það eru þeir Sigurbjartur Sturla Atlasson, eða Sturla Atlas, og Bjarni Frímann Bjarnason sem að ætla að spila Sturla Atlas lögin í nýjum búning. Strákarnir kíktu til okkar....more0minPlay
July 26, 201826. júlíKristjana Arnarsdóttir íþróttafréttakona fór á Opna breska meistaramótið í golfi um síðustu helgi, hún ræddi það og íþróttafréttir vikunnar hjá okkur í dag. Það hefur verið mikil ólga innan stjórnar SÍF, Sambands íslenskra framhaldsskóla, eftir umdeilda grein sem nú fyrrverandi formaður sambandsins birti varðandi kennslu á kynjafræði í framhaldsskólum. Rebekka Þurý Pétursdóttir situr í stjór SÍF og hún mætti og spjallaði við okkur um málið....more0minPlay
July 25, 201825. júlíPétur Marteinn fer yfir hátíðarfundin umdeilda sem haldinn var á Þingvöllum í síðustu viku í tilefni 100 ára fullveldisafmæli Íslands í ár. Við fáum líka til okkar Gabríel Ólafsson en hann er aðeins 19 ára og er kominn með samning við plötufyrirtækið One little indian sem að hefur meðal annars gefið út plötur Bjarkar Guðmundsdóttur og Ásgeirs Trausta....more0minPlay
July 24, 201824. júlíEins og alla aðra þriðjudaga mætti Geir Finnsson til okkar og ræddi það helsta sem er að frétta úr heimi tölvuleikja, kvikmynda og sjónvarpsþátta. Eva Sigurðardóttir kom svo til okkar og ræddi allt sem að tengist Druslugöngunni sem að verður gengin laugardaginn næstkomandi frá Hallgrímskirkju, hún ræddi meðal annars áhrif metoo-byltingarinnar og breytingarnar sem að orðið hafa á samfélagin frá því að gangan var fyrst haldin....more0minPlay
July 23, 201823. júlíMánudagsgestur vikunnar að þessu sinni er leikkonan og rapparinn Þuríður Blær Jóhannsdóttir og ræddi við okkur meðal annars Austurbæjarskóla, japönsku og söngleiki. Karen Björg Þorsteinsdóttir og tískuhornið var líka á sínum stað eins og venjulega en umræðuefni dagsins voru náttföt....more0minPlay
July 20, 201820. júlíEins og venjulega á föstudögum kemur Egill Spegill til okkar og fer yfir það skemmtilegasta sem er að gerast um helgina. Við fáum líka tónlistarmanninn Davíð Ólafsson, eða David44, til okkar en það eru ekki endilega margir sem að kannast við hann. Lögin hans hafa hins vegar orðið mjög vinsæl í Danmörku og víðar og hann er með yfir milljón spilanir á þau öll á Spotify. Hann sagði okkur frá ferlinum og leyfði okkur að heyra nýjasta lagið sitt, Burn....more0minPlay
FAQs about Núllið:How many episodes does Núllið have?The podcast currently has 94 episodes available.