Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Núllið færir þér daglega allt það sem er efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Hvort sem það eru friðarviðræður í Norður Kóreu eða nýjasta Gucci beltið, þá munt þú heyra það fyrst í Núllinu með Jaf... more
FAQs about Núllið:How many episodes does Núllið have?The podcast currently has 94 episodes available.
July 19, 201819. júlíVið höldum áfram að fylgjast með LungA, listahátíð ungs fólks á Seyðisfirði og í dag heyrum við í Birnu Schram sem er stödd á hátíðinni. Hún er ásamt fleirum að byggja nektarsaunu sem að verður tekin í notkun um helgina. Valur Páll Eiríksson íþróttafréttamaður fór svo með okkur yfir það helsta sem er að frétta úr heimi íþróttanna....more0minPlay
July 18, 201818. júlíLunga, listahátíð ungs fólks hófst á Seyðisfirði síðastliðinn sunnudag. Hátíðinn stendur yfir í heila viku og heilmikil dagskrá er í boði alla vikuna. Við hringdum í Björt Sigfinnsdóttur framkvæmdarstjóra hátíðarinnar. Þorvaldur Sigurbjörn Helgason velti því fyrir sér í nýjasta þætti af Hve glötuð er vor æska hvort að hipsterinn væri dauður, við heyrðum hugleiðingar Þorvalds....more0minPlay
July 17, 201817. júlíÍsak er kominn aftur eftir stutt frí, Geir Finnsson kemur og ræðir hugsanlega kvikmynd um hetjulegu björgunina á tælensku drengjunum sem fastir voru í helli. HM Hákon gerir upp mótið í heild sinni, velur sína uppáhaldsleikmenn og rýnir í úrslit helgarinnar....more0minPlay
July 16, 201816. júlíSöngkonan Hildur er mánudagsgestur vikunnar, við komumst að því hvað hún er búin að vera að gera undanfarið og fáum meðal annars að vita afhverju hún kann japönsku. Karen Björg er á sínum stað með tískuhornið en að þessu sinni skoðar hún tengsl tísku og sjónvarpsþátta....more0minPlay
July 13, 201813. júlíEins og alla aðra föstudaga keyrum við okkur í gang með Agli Spegil og hann segir okkur hvar fjörið verður um helgina. Við fræðumst líka örlítið um föstudaginn 13. sem að er jú í dag og HM Hákon kemur með sína lokaspá fyrir lokaleiki HM sem fram fara um helgina....more0minPlay
July 12, 201812. júlíVið erum á landsbyggðarnótum í þætti dagsins og hringjum bæði á Sauðárkrók og á Neskaupsstað. Pálína Ósk Hraundal er stödd á Sauðárkróki þar sem að Landsmót UMFÍ fer fram um helgina og Hákon Hildibrand er í sólinni á Neskaupsstað þar sem að Eistnaflug hófst í gær. Við förum svo yfir allt það helsta sem er í gangi í heimi íþróttanna með Einari Erni Jónssyni, íþróttafréttamanni....more0minPlay
July 11, 201811. júlíPétur Marteinn fer yfir nýja tilnefningu Donalds Trump til hæstaréttardómara og útskýrir fyrir okkur í leiðinni hvað hæstaréttardómari gerir í Bandaríkjunum. Tónlistamaðurinn Huginn kíkti svo til okkar og sagði okkur frá nýju plötunni sinni sem að hann gaf út fyrir helgi....more0minPlay
July 10, 201810. júlíGeir Finnsson breytir aðeins út af vananum þennan þriðjudaginn og talar um kvikmyndir í staðinn fyrir tölvuleiki, þar ber helst að nefna drama í Star Wars heiminum. Kristín Hulda Gísladóttir formaður geðfræðslufélagsins Hugrúnar kom og sagði okkur frá starfi félagsins og bingói sem að þau ætla að halda í vikunni....more0minPlay
July 09, 20189. júlíEngin önnur en Salka Sól er mánudagsgestur þessarar viku en hún hefur heldur betur í nógu að snúast. Karen Björg Þorsteinsdóttir er svo að sjálfsögðu á sínum stað með tískuhornið og þessa vikuna ætlar hún að tala um töskur....more0minPlay
July 06, 20186. júlíVið keyrum okkur heldur betur í gang fyrir helgina í þætti dagsins, Jakob Birgisson, góðvinur þáttarins, var að gefa út sumarsmell sumarsins og mætti að sjálfsögðu til okkar og ræddi um hann. Egill Spegill var svo á sínum stað með allt það heitasta sem er að gerast um helgina, hvort sem það er í Nauthólsvík eða á Prikinu....more0minPlay
FAQs about Núllið:How many episodes does Núllið have?The podcast currently has 94 episodes available.