Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Núllið færir þér daglega allt það sem er efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Hvort sem það eru friðarviðræður í Norður Kóreu eða nýjasta Gucci beltið, þá munt þú heyra það fyrst í Núllinu með Jaf... more
FAQs about Núllið:How many episodes does Núllið have?The podcast currently has 94 episodes available.
June 20, 201820. júníVið hlustum á pistil úr Lestinni þar sem farið er yfir áhrif Janelle Monáe og heyrðum viðtal og lög frá tónlistarkonunni GDRN. Jón Bjarni Steinsson einn skipuleggjandi Secret Solstice ræddi hátíðina sem að hefst á fimmtudaginn og Anna Íris Pétursdóttir og Fannar Arnarsson úr leikhópnum Rokkur Friggjar sögðu frá leiksýningunni sinni Forget-me-nots sem að fjallar um samband samkynhneigðs stráks og hermanns á tíma hernámsins á Íslandi....more0minPlay
June 19, 201819. júníGeir Finnson var á sínum stað með allt það heitasta úr tölvuleikja og tækniheiminum, Auður Viðarsdóttir frá Stelpur rokka kom og sagði frá Synth Babes hátíðinni sem að fer fram um þar næstu helgi og við fengum að vita allt um Lýðháskólann á Flateyri frá skólastjóra skólans, Helenu Jónsdóttur. Síðast en ekki síst fór HM Hákon yfir leiki helgarinnar og spáði aðeins í það sem að fram undan er....more0minPlay
June 18, 201818. júníBaltasar Kormákur er mánudagsgesturinn að þessu sinni og fór ítarlega yfir ferilinn með okkur. Karen Björg Þorsteinsdóttir er á sínum stað með tískuhornið og fer yfir tískuna á Secret Solstice sem að hefst í vikunni. Ragnheiður Harpa Leifsdóttir frá Svikaskáldum mætti og ræddi nýja ljóðabók sem að hópurinn gefur út á þriðjudag....more0minPlay
June 15, 201815. júníVið hringdum í Borghildi Indriðadóttur, listamanninn á bak við gjörninginn og ljósmyndasýninguna Demoncrazy sem að fólst meðal annars í berbrjósta konum og hefur verið mikið í umræðunni undanfarið. Egill Spegill kom okkur í gang fyrir helgina eins og alla aðra föstudaga og Jakob Birgisson sagði okkur hvernig maður á að halda alvöru HM partý. Síðast en ekki síst mætti Flóni svo með nýja lagið sitt og ræddi það sem er framundan hjá honum....more0minPlay
June 14, 201814. júníSnorri Hallgrímsson, tónlistarmaður, mætti og ræddi um nýju plötuna sína Orbit, en hún er jafnframt fyrsta platan hans. Við töluðum við Hjalta Ásgeirsson og kynntum okkur Akureyri Dance Festival sem að fer fram nú um helgina og spiluðum brot úr þættinum Veistu hvað? Þar sem að Guðmundur Felixsson og Vigdís Hafliðadóttir fræddu fólk um skátastarf....more0minPlay
June 13, 201813. júníPétur Marteinn Urbancic Tómasson var á sínum stað með stjórnmálahornið og ræddi að þessu sinni nýjan meirihluta í Reykjavík. Hafsteinn Gunnar Sigurðsson og Guðmundur Björn Þorbjörnsson komu og ræddu nýju heimildarmyndina sína Síðasta áminningin sem að fjallar um íslenska landsliðið og það hvernig smáþjóð eins og við hefur tekist að komast svona langt. Hákon Jóhannesson, eða HM Hákon, verður okkar sérlegi sérfræðingur varðandi heimsmeistaramótið en hann mætti og setti tóninn fyrir það sem koma skal næstu vikurnar....more0minPlay
June 12, 201812. júníVið hringdum í Hauk Harðarson sem er staddur í Rússlandi með íslenska landsliðinu, hann sagði okkur hvernig ferðalagið var og hver stemmarinn er hjá liðinu. Við hlustuðum líka á brot úr Lestinni þar sem að Davíð Roach Gunnarsson fór yfir nýjustu plötu Kanye West og Geir Finnsson ræddi um helstu tíðindi af E3 tölvuleikjaráðstefnunni sem að nú fer fram....more0minPlay
June 11, 201811. júníBirgitta Haukdal var mánudagsgesturinn þennan daginn og stiklaði á stóru um lífið sitt og ferilinn. Karen Björg var á sínum stað með tískuhornið og ræddi það sem nauðsynlegt er að eiga í fataskápnum. Kristín Björk Smáradóttir, Dýrleif Sjöfn Andradóttir og Valgerður Stefánsdóttir úr félagsmiðstöðinni Frosta ræddu tímarit sem að þær gáfu út nú nýlega og snýr að líkamsvirðingu og samfélagsmiðlum....more0minPlay
June 08, 20188. júníEmmsjé Gauti er við það að klára 13 daga tónleikaferð sína um landið þannig að við hringdum og heyrðum hvernig hljóðið var í mönnum. Egill Spegill var á sínum stað og sagði okkur hvað er að gerast um helgina og strákarnir í Geisha Cartel mættu með nýju plötuna sína. Róbert Aron Magnússon og Arnór Gíslason standa að opnun Box Skeifan, götumatarmarkaði sem opnaði nú á fimmtudag, þeir sögðu okkur aðeins nánar frá því....more0minPlay
June 07, 20187. júníVið hringdum í Kára Viðarsson, eiganda og listrænan stjórnanda Frystiklefans á Rifi, og spjölluðum um dagskránna hjá þeim í sumar. Edda Sif Pálsdóttir fór yfir það sem er framundan í íþróttunum og Selma Reynisdótir og Ásrún Magnúsdóttir fór svo yfir það sem verður að gerast í Breiðholtinu yfir listahátíð....more0minPlay
FAQs about Núllið:How many episodes does Núllið have?The podcast currently has 94 episodes available.